Skinfaxi - 01.03.2016, Qupperneq 8
8 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Allir vinnustaðir
ættu að hafa
lýðheilsufulltrúa
Viðtal við Unu Maríu Óskarsdóttur, verkefnisstjóra ráðherranefndar um lýðheilsu:
Er neyslustýring í lýðheilsumálum lands-
manna skref í rétta átt? Það telur Birgir
Jakobsson landlæknir. Í síðasta tölublaði
Skinfaxa (2. tbl. 2016) gagnrýndi hann
stjórnvöld fyrir stefnuleysi í lýðheilsumál-
um. Þau þyrftu að sýna meiri ábyrgð og
beina bæði mataræði og áfengisdrykkju
landsmanna á réttar brautir. Landlæknir
tók sem dæmi sykurskattinn sem var lagð-
ur á sykraðar vörur vorið 2013 en afnum-
inn í lok árs 2014 og frumvarp nokkurra
þingmanna bæði úr stjórnarflokkum og
stjórnarandstöðu sem miðar að því að
auka aðgengi landsmanna að áfengi.
Þetta sagði hann dæmi um stefnuleysi í
lýðheilsumálum og sölu áfengis í búðum
áhættusama og dýra tilraun. Ef skref yrði
stigið í þá átt yrði ekki aftur snúið og
hugsanlega yrðu forvarnaaðgerðir síðustu
ára orðnar að engu.
Lýðheilsa er eins og jafnréttismál
Una María Óskarsdóttir er uppeldis-,
menntunar- og lýðheilsufræðingur og
verkefnisstjóri ráðherranefndar um lýð-
heilsu. Hún er sammála landlækni að
flestu leyti en tekur ekki undir orð hans
um stefnuleysi stjórnvalda.
„Það tekur alltaf tíma að þróa málin
áfram en sérfræðingar í lýðheilsu hafa um
skeið lagt mikla áherslu á að heilsa verði
liður í allri stefnumótun hins opinbera,
þannig að ákvarðanir séu metnar með
hliðsjón af því hvaða áhrif þær hafa á
heilsu,“ segir hún. „Það ætti auðvitað að
vera framtíðin að allar ríkisstofnanir og
vinnustaðir setji sér lýðheilsustefnu og að
lýðheilsufræðingar eða aðrir með sam-
bærilega menntun hefðu yfirumsjón með
þeim málum líkt og gert er með jafnréttis-
málin og lög mæla fyrir um. Lög um jafna
stöðu og jafnan rétt kvenna og karla gætu
því á ákveðinn hátt verið fyrirmynd að lög-
um um lýðheilsu hér á landi. Bætt lýðheilsa
þarf að vera samstarfsmál. Stjórnvöld,
almenningur, frjáls félagasamtök og sér-
fræðingar um heilsu þurfa að taka hönd-
um saman og bæta lýðheilsu allra lands-
manna.“
Stofnuðu ráðherranefnd um
lýðheilsu
Una María segir ríkisstjórnina hafa frá upp-
hafi stjórnarsamstarfsins sett bætta lýð-
heilsu og forvarnastarf í forgang. Það megi
sjá á málefnasamningi flokkanna. Í sam-
ræmi við það hafi forsætisráðherra sett á
laggirnar ráðherranefnd um lýðheilsu. Í
nefndinni sitja forsætisráðherra, heilbrigðis-
ráðherra, félags- og húsnæðismálaráð-
herra og mennta- og menningarmálaráð-
herra. Velferðarráðherra skipaði svo sam-
ráðsvettvang fulltrúa hagsmunaaðila og
sérfræðinga, lýðheilsunefnd, sem ásamt
sérstakri verkefnisstjórn vann drög að
lýðheilsustefnu og aðgerðaáætlun sem
velferðarráðherra og Inga Dóra Sigfús-
dóttir, formaður nefndarinnar, munu
leggja fram í ráðherranefndinni. Aðgerðir
stefnunnar eru margar hverjar þegar
komnar í framkvæmd. Embætti landlækn-
is, sem er undirstofnun velferðarráðuneyt-
isins, hefur um skeið unnið að heilsuefl-
andi samfélagi, heilsueflandi leikskólum,
grunnskólum og framhaldsskólum. Land-
læknisembættið kynnti fyrr í sumar lýð-
heilsuvísa fyrir hvert heilbrigðisumdæmi
á Íslandi.
„Lýðheilsuvísarnir eru safn mælikvarða
sem gefa vísbendingar um heilsu og líðan
þjóðarinnar og áhrifaþætti þeirra. Þeir eru
mikilvægt tæki til að bæta lýðheilsu á
Íslandi. Í verkefnunum um heilsueflandi
skóla og samfélög er bæði tekið á matar-
æði og áfengisdrykkju. Sveitarfélög og
skólar vilja auðvitað kappkosta að boðið
sé upp á hollt fæði í skólum og vilja
sporna gegn áfengisdrykkju í samfélag-
inu,“ segir Una María.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO)
hefur sýnt fyrirkomulaginu sérstakan
áhuga þar sem það þykir einstakt í mál-
efnum lýðheilsu hér á landi að fjórir ráð-
herrar sitji við lýðheilsuborðið.
Stjórnvöld grípi til aðgerða
Una María segir að rannsóknir á áhrifum
sykurskattsins hafi bent til að dregið hafi
úr sykurneyslu á því um eina og hálfa ári
sem hann var lagður á sykraðar vörur.
Aðgerðir lýðheilsustefnunnar geri þó ekki
ráð fyrir sköttum á óhollustu og því verði
„Það yrði bæði dýrt fyrir skattborgara
og mesta afturför í lýðheilsumálum
á Íslandi ef leyft yrði að selja áfengi
í matvöruverslunum.“
Þetta segir Una María Óskarsdóttir,
verkefnisstjóri ráðherranefndar um
lýðheilsu. Hún telur frumvarp
þingmanna um áfengissölu í búðum
hafa dagað uppi og vonar að það
verði ekki að veruleika.