Skinfaxi - 01.03.2016, Qupperneq 10
10 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Ungmennasamband
Borgarfjarðar
er mótshaldari 19. Ungl-
ingalandsmóts UMFÍ
2016. Aðildarfélög UMSB
eru nítján talsins og eiga
mörg þeirra rætur að rekja
allt aftur til upphafsára
ungmennafélagshreyfingarinnar.
Í stjórn UMSB sitja ellefu manns. Sam-
bandsstjóri er Sólrún Halla Bjarnadóttir en
framkvæmdastjóri er Pálmi Blængsson.
Skrifstofa UMSB er að Skallagrímsgötu 7a
í Borgarnesi.
Aðildarfélög UMSB
Nítján íþróttafélög eru með aðild að UMSB.
Félögin eru misvirk í netvæddum nútíma-
heimi. Það sama gildir þó ekki um starf-
semi félaganna en mörg ungmennafélaga
í Borgarfirði halda fast í upphaflegt starf
sitt og gildi hreyfingarinnar. Í samræmi við
Aðildarfélög Ungmennasam-
bands Borgarfjarðar (UMSB)
Dansíþróttafélag Borgarfjarðar, Borgar-
nesi / Frjálsíþróttafélag Borgarfjarðar,
Borgarnesi / Golfklúbbur Borgarness /
Golfklúbbur Húsafells / Hestamanna-
félagið Faxi / Golfklúbburinn Glanni,
Bifröst / Golfkúbburinn Skrifla, Reykholtsdal /
Skotfélag Vesturlands, Borgarnesi / Hestamanna-
félagið Skuggi, Borgarnesi / Ungmennafélagið
Björn Hítdælakappi / Ungmennafélagið Íslend-
ingur / Ungmennafélagið Dagrenning / Ungmenna-
félagið Egill Skallagrímsson / Ungmennafélagið
Skallagrímur / Ungmenna- og
íþróttafélag Hvalfjarðarsveitar /
Ungmennafélag Stafholts-
tungna, Þverárhlíðar- og
Norðurárdalshrepps / Ung-
mennafélag Reykdæla, Reyk-
holti / MSB, Mótorsportfélag
Borgarfjarðar, Borgarnesi /
Dansíþróttafélag Borgarbyggðar.
það hafa Umf. Reykdæla og Umf. Lund-
dælinga haldið þorrablót og gamlársfagn-
aði, sett upp leikrit annað slagið og staðið
fyrir ýmsum uppákomum í kringum tylli-
daga, s.s. á þjóðhátíðardaginn, 17. júní.
Unglingalandsmótsnefnd
UMFÍ 2016
Sólrún Halla Bjarnadóttir, formaður, Kristín
Gunnarsdóttir, ritari, Sigurður Guðmunds-
son, gjaldkeri, Páll Brynjarsson, keppnis-
stjóri, Hrafnhildur Tryggvadóttir, tjald-
búðastjóri, Kristján Finnur Kristjánsson,
öryggisstjóri, Ingunn Jóhannesdóttir,
svæðisstjóri, Hrönn Jónsdóttir, afþreyingar-
stjóri, Halldóra Gísladóttir, þjónustu- og
veitingastjóri, Agnes Guðmundsdóttir,
starfsmannastjóri.
Framkvæmdastjóri mótsins er Ómar Bragi
Stefánsson og verkefnastjóri Eva Hlín
Alfreðsdóttir. Ingólfur Sigfússon hefur
umsjón með skráningarkerfi mótsins.
„Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi leggst rosa-
lega vel í okkur. Við höfum unnið vel á öllum víg-
stöðvum og dreift verkefnum á fleiri hendur,“ segir
Sólrún Halla Bjarnadóttir, formaður Unglingalands-
mótsnefndar 2016 og sambandsstjóri Ungmenna-
sambands Borgarfjarðar.
Sólrún tók við formennsku í landsmótsnefndinni
með tiltölulega skömmum fyrirvara um mitt sumar.
Hún segir það ekki hafa komið að sök, enda búi
Borgnesingar yfir góðri reynslu af því að halda
landsmót í gegnum tíðina, síðast árið 2010.
„Það hjálpar til að búa að reynslunni, sem við
nýtum okkur til að sjá hvað var gert vel og hvað
megi gera betur en fyrir sex árum,“ segir hún.
Sólrún segir ganga vel að finna sjálfboðaliða á
alla pósta. „Þeir eru lykillinn að starfinu okkar og
því að UMSB geti haldið svona stórt mót, án þeirra
myndi þetta aldrei ganga upp,“ segir hún og bætir
við að flestir íbúar Borgarbyggðar séu að verða
tilbúnir fyrir mótið.
„Nú er mikilvægt að vinna saman og virkja sam-
stöðuna,“ segir Sólrún.
Virkjum samstöðuna í Borgarbyggð
Unglingalandsmót UMFÍ Borgarnesi
Sólrún Halla Bjarnadóttir.