Skinfaxi - 01.03.2016, Síða 42
42 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Reynt að komast yfir
hindranir að Laugum.
Anna Margrét Tómasdóttir, for-
stöðumaður Ungmenna- og
tómstundabúðanna, segir eftir-
spurnina hafa aukist ár frá ári en
nú séu bókanir svipaðar og í fyrra. Undir
lok júní hafði hún þegar bókað 1.600 ung-
menni í búðirnar, sem geta tekið við 2.000
manns. Allt síðasta tímabil voru 1.900 ung-
menni í 9. bekk grunnskóla að Laugum í
Sælingsdal og geta 90 ungmenni verið viku
í senn. Ungmennin koma flest að vestan og
sunnan, allt til Hafnar í Hornafirði, en færri
úr skólum fyrir austan og norðan. Skólar í
Þingeyjarsýslu og Skagaströnd eru undan-
tekning en skólastjórnendur þar hafa sótt
í að fá viku að Laugum í Sælingsdal.
Ungmenna- og tómstundabúðirnar að
Laugum eru ætlaðar nemendum 9. bekkj-
ar grunnskóla og geta þeir komið þangað
yfir veturinn, frá 1. september til loka maí
ár hvert. Yfir sumartímann reka Icelandair
Edduhótel að Laugum.
Tækjalausir
krakkar
Ungmennum, sem koma
á Laugar, er óheimilt að
hafa með sér snjallsíma,
spjaldtölvur og önnur
nettengjanleg tól og tæki.
Anna Margrét segir starfs-
fólk Lauga taka strangt á
þessu banni. Það hafi líka
skilað árangri.
„Foreldrarnir skilja það vel að við bönn-
um tækin, þau eru orðin að vandamáli því
að börnin ræðast nánast ekkert við í ferð-
inni hingað nema í gegnum þau og eru
svo alltaf í símunum sínum,“ segir Anna
Margrét og bendir á að fyrst í stað hafi
stöku ungmenni ekkert botnað í banninu.
Flestir skilji það nú orðið að þau verði að
skilja tækin eftir heima. Þá séu foreldrarnir
líka þakklátir fyrir að börn þeirra fái frí frá
þeim og upplifi að kúpla sig út úr dagsins
önn og prófa eitthvað nýtt og óhefðbundið.
„Við erum með krakkana í stífri dagskrá
sem byggist á hópefli. Við erum líka mikið
með þau úti í gönguferðum og útileikjum,
kynnum þeim íslenska þjóðtrú og prófum
ýmislegt sem ungmennin hafa ekki reynt
áður. Þar kynnast þau styrkleikum sínum
og veikleikum og læra að vinna með þá
auk þess að kynnast hvert öðru betur. Við
Alltaf fullt í ungmenna-
búðunum í Sælingsdal
Viðtal við Önnu Margréti Tómasdóttur, forstöðumann að Laugum í Sælingsdal
Fullt er í ungmenna- og tómstunda-
búðunum að Laugum í Sælingsdal
fram í miðjan nóvember og búið að
bóka meira í maí á næsta ári en nokkru
sinni fyrr. Eins og fyrri ár eru eyður frá
miðjum nóvember og inn í janúar.
erum líka með tómstunda-
herbergi, opið er í sundlaug-
inni og íþróttasalnum og
ungmennin fá alveg tíma
til að velja hvað þau gera,“
segir Anna Margrét.
Margir vilja
snúa aftur
Það eru ýmist skólastjórnendur
eða foreldrar ungmenna í 9. bekk
grunnskóla sem eiga frumkvæðið að því
að bóka viku að Laugum í Sælingsdal.
Anna Margrét segir foreldra og krakkana
sjálfa vera stærsta þrýstihópinn ásamt
þeim skólastjórnendum og kennurum
sem hafi sjálfir farið í ungmennabúðir.
„Nokkrir skólastjórnendur hafa ákveðið
að ferð í Ungmennabúðirnar sé hluti af
skólastarfinu og tilkynna kennara og bekkn-
um fyrirfram að þau fari á Laugar,“ segir
hún. „Ef einhverjir foreldrar ráða ekki við
ferðina af fjárhagslegum ástæðum er leyst
úr því. Í öðrum skólum halda foreldrar ung-
menna fund um málið í september og
hefja fjáröflun. Síðan panta þeir viku hjá
okkur. En það er aðeins gert með samþykki
skólastjórnanda,“ segir Anna Margrét og
bendir á að sumir skólastjórnendur sjái dvöl
að Laugum sem tækifæri til að hrista bekk-
inn saman og efla tengsl ungmennanna.
Hópnum er þjappað
saman í Ungmenna-
búðunum að Laugum.