Skinfaxi - 01.03.2016, Page 50
50 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Á vorfundinum voru tveir gestir
með erindi. Það voru þeir
Sævar Kristinsson, sérfræð-
ingur hjá KPMG, sem flutti
erindi um framtíð íþróttamála, og Fjalar
Sigurðarson, markaðsstjóri Nýsköpunar-
miðstöðvar Íslands, en hann flutti einkar
áhugavert erindi um mikilvægi upplýsinga-
gjafar frá ýmsum hliðum.
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, setti
vorfundinn og bauð gesti velkomna. Auk
erinda þeirra Sævars og Fjalars ræddi
Auður Inga Þorsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, um stefnumótun
ungmennafélagshreyfingarinnar. Sú vinna
hefur staðið yfir í nokkur misseri og er hún
langt komin. Þá gerði Sabína Steinunn
Halldórsdóttir, landsfulltrúi UMFÍ, grein
fyrir Hreyfivikunni, sem var vikuna á eftir
vorfundinum. Ómar Bragi Stefánsson,
framkvæmdastjóri landsmóta UMFÍ, fór
yfir næstu landsmót og nefndi sérstaklega
næsta Landsmót UMFÍ sem haldið verður á
Sauðárkróki 2018. Mótið verður geysistórt
enda bætist við það Unglingalandsmót
þess árs. Gert er ráð fyrir miklum fjölda
þátttakenda og verða ýmsar nýjungar í
boði.
Framtíð íþrótta
og meiri samvinna
rædd á vorfundi
UMFÍ
Vorfundur UMFÍ var haldinn laugardaginn
21. maí í húsakynnum þjónustumiðstöðvar
UMFÍ í Sigtúni í Reykjavík. Á fundinn mættu
framkvæmdastjórar og formenn sambands-
aðila UMFÍ auk stjórnar.