Skinfaxi - 01.03.2016, Side 54
54 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
L andsmót UMFÍ 50+ var haldið
dagana 10.–12. júní sl. á Ísafirði.
Þetta var í fyrsta sinn sem mótið
var haldið fyrir vestan. Gestir
mótsins voru sammála um að vel hafi tek-
ist í alla staði og sannaðist á Ísafirði að þeg-
ar boðið er upp á gott mót lætur fólk vega-
lengdirnar ekki trufla sig. Til leiks voru
skráðir tæplega 300 manns sem var í takti
við væntingar.
„Allir eru ánægðir með mótið. Heimafólk hér í bænum hefur
lýst yfir rosalegri ánægju með það og það heyrði líka í ánægð-
um mótsgestum. Við erum í skýjunum yfir hlýjum orðum gest-
anna,“ segir Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði.
Gísli segir Landsmót gera miklar kröfur um mannskap,
meiri en aðrir viðburðir, svo sem bæjarhátíð, húsbílamót og
annað. Fólk í sveitarfélaginu búi orðið yfir mikilli reynslu af
öðrum íþróttaviðburðum og hafi því íbúarnir lagst á eitt með
það fyrir augum að gera Landsmót UMFÍ 50+ að skemmti-
legum viðburði. Miðað við viðbrögð bæði bæjarbúa og þátt-
takenda hafi það tekist.
Gísli verður fimmtugur í haust. Það veitti honum rétt til
þátttöku á Landmótinu. Gísli tók þátt í bogfimi en gekk illa.
Ástæðuna segir hann þá að hann hafi ekkert æft sig. Sagan
mun ekki endurtaka sig á næsta landmóti. „Ég naut mín
mjög vel á mótinu þótt ég hafi ekki tekið þátt af fullum krafti.
En ég kem tilbúinn til næstu keppni og verð búinn að æfa
mig í bogfiminni,“ segir Gísli.
Brakandi blíða
á Ísafirði
Mótið hófst með keppni í boccia í
íþróttahúsinu á Ísafirði. Boccia er með
vinsælustu greinunum á Landsmóti 50+
ásamt pútti. Sem fyrr var þátttakan góð.
Sömu sögu var að segja af púttkeppninni
sem var fjölmenn og völlurinn erfiðari
en en búist var við. Af þeim sökum tók
keppni lengri tíma en áætlað var.
Veðurguðirnir drógu flestar litapallett-
ur sínar upp úr pússi sínu og buðu upp á
ágætisveður á fyrsta mótsdegi, skúrir á
laugardeginum, en skínandi sól á loka-
degi mótsins. Það skipti auðvitað höfuð-
máli enda fer stígvélakastið, ein af vinsælli
greinum mótsins, fram utan dyra.
Skemmtikvöld voru haldin tvö kvöld í
röð á Ísafirði en þetta var fyrsta skiptið sem
slíkt hefur verið gert. Á fyrra kvöldinu á
föstudeginum var brugðið á ýmsa leiki
ásamt því að keppa í dansi. Sama kvöldið
spiluðu þeir Villi Valli og Baldur Geir-
mundsson, sem margir þekkja betur sem
BG í BG og Ingibjörgu, undir dansi og öðru
tralli. Á laugardagskvöldinu var svo boðið
upp á gómsætt fiskihlaðborð ásamt því
sem Baldur tróð upp öðru sinni, nú með
BG-flokknum og Margréti. Mikil stemning
var fyrir skemmtikvöldinu á laugardegin-
um og komust mun færri að en vildu.
Heyrir ekkert nema ánægjuraddir
Gísli Halldór Halldórs-
son ætlar að æfa sig
fyrir næsta Landsmót.