Skinfaxi - 01.04.2017, Page 3
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 3
Aldarafmæli Ungmennafélagsins
Stjörnunnar í Dalabyggð var fagnað
með pompi og pragt í byrjun desember.
Boðið var upp á kaffi og kökur og gömul
atvik úr sögu félagsins voru rifjuð upp.
„Við vorum ekki með neina skrifaða dagskrá
og lékum þetta af fingrum fram. Þetta var
mjög fín stund og tíminn þaut áfram. Ein
kona sem kom sagðist ekki hafa viljað missa
af þessu kvöldi,“ segir Arnar Eysteinsson í
Stórholti, formaður Ungmennafélagsins
Stjörnunnar í Dölunum, um þá fínu stemn-
ingu sem var í aldarafmæli félagsins laugar-
dagskvöldið 2. desember. 70–80 gestir komu
í veisluna sem var haldin í félagsheimilinu
Tjarnarlundi, samkomuhúsi Saurbæinga en
Stjarnan á hlut í húsinu.
Halda tengslum við
heimabyggð
Arnar segir svipuðu máli gegna um Stjörnuna
og önnur ungmennafélög í dreifðari byggð-
um. Fólki hafi fækkað mikið og samstarf ver-
ið tekið upp við önnur félög í sveitinni til að
halda íþróttastarfinu gangandi. Boðið er upp
á æfingar í fótbolta, frjálsum, leikjanámskeið
fyrir yngstu iðkendur og ýmislegt vetrarstarf.
Fyrir utan að bjóða upp á æfingar í ýmsum
greinum hafi Stjarnan haldið stöku réttar-
dansleiki og sérstaklega þorrablót síðastliðin
55 ár. Félagar eru engu að síður um 180 tals-
ins. Margir þeirra eru fluttir suður en vilja ekki
segja sig úr félaginu.
„Við ætluðum að hreinsa til í félagaskránni
en þá sagði fólk okkur að það vildi vera áfram
í félaginu og halda tengslum við sveitina í
gegnum það,“ segir Arnar.
„Þótt starfsemin hafi ekki verið mikil und-
anfarin ár vildum við blása til fagnaðar og
hampa félaginu,“ segir hann og rifjar upp að
í veislunni hafi verið boðið upp á kaffi og
kökur og fíflagang í boði Fagradalsfrænda
sem vakti lukku.
Tveir formenn, 85 ára og
89 ára, mættu í afmælið
Arnar minntist sérstaklega á tvo gesti sem
mættu í afmælið. Það voru fyrrverandi for-
menn Ungmennafélags Stjörnunnar, þeir
Jóhann Sæmundsson frá Ási í Dalasýslu sem
er 89 ára og Sigurður Þórðarson sem er 85
ára. Þeir voru formenn á sjötta áratug síðustu
aldar og flutti Sigurður erindi um sögu sam-
komuhússins.
Fíflalæti á 100 ára afmælinu
Fagradalsfrændur rifjuðu upp gömul atriði frá þorrablótum Umf. Stjörnunnar.
Arnar formaður er hér við púltið ásamt þeim Jóni Agli
gjaldkera og Heiðrúnu Söndru, ritara félagsins.
Leikritið
Skugga-Sveinn
Ungmennafélagið Stjarnan stóð lengi
fyrir leiksýningum. Leikritið Skugga-Sveinn
eftir þjóðskáldið Matthías Jochumsson
var sett upp í fyrsta sinn í samkomuhúsi
félagsins árið 1921 eða 1924 og fimm
sinnum til viðbótar til ársins 1951.
Héraðsskjalasafni Dalasýslu áskotnaðist
fyrir nokkru þessi mynd af fyrstu uppsetn-
ingunni að talið er árið 1921. Ólafur
Magnússon (1889–1954), konunglegur
hirðljósmyndari, tók myndina.