Skinfaxi - 01.04.2017, Qupperneq 4
4 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Ný stjórn UMFÍ, sem tók við á sambands-
þingi UMFÍ í október, hefur í mörg horn
að líta. Ég vil fyrst nefna Landsmótið,
nýtt og endurbætt 28. Landsmót UMFÍ sem
verður haldið á Sauðárkróki 13.–15. júlí 2018.
Veigamiklar breytingar verða á umgjörð og
umfangi mótsins og því er mjög mikilvægt
að standa vel að framkvæmd þess í samvinnu
við UMSS og sveitarfélagið Skagafjörð.
Á Landsmótinu verður boðið upp á marg-
ar íþróttagreinar, annars vegar keppnisgrein-
ar, hins vegar greinar sem gestir mótsins geta
reynt sig við og fengið leiðsögn í. Margar
jaðargreinar verða í boði og er höfðað til
þeirra sem vilja æfa á eigin vegum og finna
sína hreyfingu.
Landsmótið er nýjung, nokkuð sem félagar
í ungmennahreyfingunni hafa ekki séð áður.
Formið á mótshaldinu er nýtt af nálinni hér á
landi. Ég hvet alla sambandsaðila UMFÍ til að
vinna með okkur, með því að koma á mótið
og styðja á þann hátt við verkefnið. Eftir mótið
verður það metið og ákvörðun tekin um það
hvort Landsmót verði aftur í svipuðu formi
eða með öðrum hætti.
Unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn
verður á sínum stað um verslunarmanna-
helgina. Mikilvægt er að aðsóknin verði góð.
Mótið fer nú fram í næsta nágrenni við þétt-
býlissvæði suðvesturhornsins og hefur upp
á að bjóða mjög fjölbreytta og góða aðstöðu
fyrir hinar ýmsu greinar íþrótta og einnig
afþreyingu. Baklandið er sterkt og með mikla
reynslu en við þurfum öll að taka þátt í að
auglýsa og hvetja til þátttöku barna og ungl-
inga í mótinu. Þetta er mikilvægt forvarna-
verkefni.
Sterkari íþróttahéruð
Eitt mál sem legið hefur á mér er misjöfn
staða íþróttahéraða á Íslandi. Þetta er stórt
verkefni, en nauðsynlegt er að leggja út í
vinnu til að styrkja starf og rekstur þeirra.
Héraðssambönd, ungmennasambönd og
íþróttabandalög eru misjafnlega í stakk búin
til að styðja við starf aðildarfélaga sinna. Þar
hefur íbúafjöldi hvers héraðs mikið að segja,
stærð þess, fjöldi sveitarfélaga innan íþrótta-
héraða, áhugi sveitarstjórna á málefnum
íþrótta- og æskulýðsmála og margt fleira.
Landsmót í nýjum búningi
Við höfum íþróttalög og æskulýðslög en
þar er ekki fjallað um mun á milli íþróttahér-
aða hvað snertir aðstöðu til rekstrar og þjón-
ustu við íbúa og sveitarfélög. Á hinn bóginn
segir í íþróttalögum að Ungmennafélag
Íslands og Íþrótta- og Ólympíusamband
Íslands annist skiptingu íþróttahéraða. Að
mínu mati er orðið aðkallandi að fara yfir þau
mál og styrkja íþróttahéruð landsins með
öllum tiltækum ráðum.
Ég tel að við inngöngu íþróttabandalaga í
UMFÍ verði tekið skref inn í nýja tíma, þar
skapist tækifæri til að taka þessi mál til gagn-
gerrar skoðunar með hinu opinbera og ÍSÍ og
um leið endurskoðun á skiptingu hagnaðar
frá Íslenskri Getspá til eigenda fyrirtækisins.
Framtíðin felst í samvinnu og því styð ég
eindregið inngöngu bandalaganna í UMFÍ.
Ég gæti rætt endalaust um þau mýmörgu
spennandi verkefni sem bíða nýrrar stjórnar.
Vinnum saman að mikilvægum málum í
þágu sambandsaðila okkar og samfélagsins.
Með ungmennafélagskveðju,
Haukur F. Valtýsson, formaður UMFÍ
Leiðari Skinfaxa:
Efnisyfirlit
Ása Inga:
Stjarnan safnar
sakavottorðum 6
LM 50+ Hveragerði:
Ungmennafélags-
andinn fannst 24
Björn Grétar:
Mælir með því að
fólk sækist til áhrifa 26
Ómar Bragi:
Íþróttaveisla
í undirbúningi 10
3 Fíflalæti á 100 ára afmælinu.
8 Dagsetningar sem allir verða
að muna 2018.
12 Nýjungar á sambandsþingi UMFÍ.
17 Það er hægt að þjálfa góðan
liðsanda.
18 Allir verða að upplifa Laugar.
20 Íþróttir og tómstundir eru besta
forvörnin.
21 Forvarnagildi íþrótta er mikið.
25 Fólk vill vita hvernig á að bregðast
við ofbeldi.
26 Mælir með því að ungt fólk sækist
til áhrifa.
28 Vefsíða félaga á að upplýsa
notendur.
29 Nám fyrir stjórnendur
félagasamtaka.
30 UMFÍ styrkir ungmenni til náms
í lýðháskólum í Danmörku.
34 Þetta er stjórn UMFÍ.
37 Vissir þú þetta um UMFÍ?
38 Alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða.
39 Samvinna af hinu góða.
Myndasyrpa:
Unglingalandsmót UMFÍ
Egilsstöðum 14–16
Lisbeth Trinskjær:
Telur lýðháskóla draga
úr brottfalli úr námi 30–31
www.pei.is
Borgaðu eftir 14 daga
eða dreifðu kaupunum
á allt að 36 mánuði
Kíktu á pei.is/heimild
og skoðaðu þína heimild!
Einföld og örugg
leið til að versla á netinu