Skinfaxi - 01.04.2017, Blaðsíða 6
6 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 4. tbl. 2017
Skinfaxi er tímarit Ungmennafélags Íslands.
Það hefur komið út samfleytt síðan árið 1909.
Blaðið kemur út ársfjórðungslega. Tímaritið
dregur nafn sitt af hestinum fljúgandi sem
dró vagn goðsagnaverunnar Dags er ók um
himinhvolfin í norrænum sagnaheimi.
Ritstjóri: Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
Ábyrgðarmaður: Haukur Valtýsson,
formaður UMFÍ
Ljósmyndir: Haraldur Jónasson, Gunnar
Gunnarsson, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson,
Hafsteinn Snær Þorsteinsson, Sabína
Steinunn Halldórsdóttir, Daníel Starrason,
Steinþór Arason, Ingimundur Pálsson o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó
Prófarkalestur: Helgi Magnússon
Auglýsingar: Miðlun ehf. o.fl.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Kápa Skinfaxa er prentuð á 150 gr Munken
pappír sem er innfluttur frá Svíþjóð. Innsíður
eru prentaðar á 65 gr pappír.
Ritnefnd:
Gunnar Gunnarsson formaður, Örn Guðnason,
Birgir Örn Sigurðsson, Jón Páll Hreinsson og
Vigdís Diljá Óskarsdóttir.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ, Sigtúni 42,
105 Reykjavík, sími: 568-2929
umfi@umfi.is – www.umfi.is
Starfsfólk UMFÍ:
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynningar-
fulltrúi og ritstjóri Skinfaxa
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi og
framkvæmdastjóri Landsmóta
(með aðsetur á Sauðárkróki)
Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi
og verkefnastjóri
Ragnheiður Sigurðardóttir, landsfulltrúi og
verkefnastjóri
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari
Stjórn UMFÍ:
Haukur Valtýsson, formaður
Örn Guðnason, varaformaður
Hrönn Jónsdóttir, ritari
Guðmundur Sigurbergsson, gjaldkeri
Ragnheiður Högnadóttir, meðstjórnandi
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi
Jóhann Steinar Ingimundarson, meðstjórnandi
Varastjórn UMFÍ:
Sigurður Óskar Jónsson,
Gunnar Þór Gestsson,
Lárus B. Lárusson og
Helga Jóhannesdóttir.
Forsíðumynd:
Forsíðumyndina tók Gunnar Gunnarsson af
keppni í glímu á Unglingalandsmótinu á
Egilsstöðum um verslunarmannahelgina 2017.
Ungmennafélag Íslands, skammstafað UMFÍ,
er landssamband ungmennafélaga á Íslandi.
UMFÍ var stofnað á Þingvöllum 2. ágúst 1907.
Sambandsaðilar UMFÍ eru 29 talsins.
Í hreyfingunni eru í dag um 160.000 félagar í
rúmlega 300 ungmenna- og íþróttafélögum
um land allt.
Framkvæmdastjóri Stjörnunnar í Garða-
bæ vinnur að því að fá sakavottorð allra
þjálfara félagsins. Það er hægt að gera
beint í gegnum þjónustumiðstöð UMFÍ. Sú
leið sparar Stjörnunni í kringum eina milljón
króna.
Sambandsaðilum UMFÍ er óheimilt að ráða
einstakling til starfa sem hefur hlotið refsi-
dóma vegna ofbeldisbrota, ávana- og fíkni-
efnabrota eða vegna kynferðisbrota. Skili
starfsmaður ekki inn sakavottorði með um-
sókn eða ráðningu þarf að óska eftir því hjá
sýslumanni. Slíkt getur verið bæði tímafrekt
og kostnaðarsamt fyrir sambandsaðila en
hvert sakavottorð kostar 2.500 krónur. Hægt
er að óska eftir því að UMFÍ geri þetta fyrir
sambandsaðila, félögunum að kostnaðar-
lausu. Nauðsynlegt er að undirrituð heimild
fylgi vegna þessa og útfyllt eyðublað með
helstu upplýsingum.
Stjarnan í Garðabæ er eitt þeirra félaga
sem hefur nýtt sér þessa þjónustu sambands-
aðila UMFÍ en Garðabær gerir þær kröfur að
leiðbeinendur/þjálfarar og allir aðrir, sem
starfa með æskufólki á vegum félagsins,
uppfylli skilyrði æskulýðslaga um hreint
sakavottorð.
Nýta sér þjónustu UMFÍ
„Stjórn Stjörnunnar ákvað árið 2014 að afla
sakavottorða fyrir alla þjálfara félagsins. En
við erum með um 400 þjálfara. Það væri erfitt
fyrir okkur að fá sakavottorð þeirra allra sjálf,
bæði tæki það tíma og yrði mjög dýrt. Það
léttir mikið undir hjá okkur að nýta mögu-
leikann á því að fá sakavottorð fyrir þjálfara
og starfsfólk í gegnum þjónustumiðstöð
UMFÍ,“ segir Ása Inga Þorsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Stjörnunnar. Félagið fer kerfis-
bundið í verkið og hefur sótt um sakavottorð
fyrir hverja deild Stjörnunnar í einu. Nokkur
tími mun því líða þar til búið verður að fara í
gegnum félagið allt.
Ása bendir á að ekki hafi komið upp tilvik
hjá Stjörnunni þar sem dómur eða brot hafi
komið óvænt upp í sakaskrá þjálfara. Spurð
að því hvernig félagið myndi bregðast við
því segir Ása að það yrði metið metið út frá
verklagsreglum í samræmi við brotin.
Stjarnan fær
sakavottorð
allra þjálfara
Ása Inga segir mikið sparast fyrir Stjörnuna með því
að fá sakavottorð þjálfara og starfsmanna í gegnum UMFÍ.
• Samkvæmt æskulýðslögum er óheimilt að ráða einstakl-
inga til starfa sem hafa hlotið refsidóma vegna ofbeldisbrota,
ávana- og fíkniefna- eða kynferðisbrota. UMFÍ áréttar að
æskilegt er að allir þeir sem starfa með börnum og ung-
mennum skili inn samþykkt fyrir því að aðildarfélag þeirra
fái heimild til að sækja upplýsingar úr sakaskrá.