Skinfaxi - 01.04.2017, Qupperneq 8
8 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ hefur þann tilgang að styrkja
félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar, m.a. með
því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á
íþróttagreinum, þjálfun, í félagsmálum og félagsstarfi. Umsóknar-
frestir eru tveir á næsta ári, til 1. apríl og til 1. október 2018.
Umhverfissjóður UMFÍ hefur þann tilgang að styrkja umhverfis-
verkefni félaga eða einstaklinga innan ungmennafélagshreyfingar-
innar. Umsóknarfrestur er til 15. apríl 2018.
Styrkur til náms við lýðháskóla í Danmörku. UMFÍ styrkir ung-
menni sem hyggja á nám við lýðháskóla í Danmörku vorönnina
2018. Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2018.
Evrópa unga fólksins (EUF) veitir styrki til
æskulýðsgeirans á Íslandi úr Erasmus+ sem
er mennta-, æskulýðs- og íþróttaáætlun ESB.
Umsóknarfrestirnir eru þrír á næsta ári, til 1.
febrúar, til 26. apríl og til 4. október. Nánari
upplýsingar er að finna á heimasíðunni
www.euf.is.
Ungt fólk og lýðræði er ungmennaráð-
stefna sem leggur áherslu á að efla lýðræðis-
lega þátttöku ungs fólks í leik og starfi. Þar
er lögð áhersla á að einstaklingar geti styrkt
sjálfsmynd sína og tekið upplýstar ákvarð-
anir um eigið líf og lífsstíl. Ráðstefnan hefur
verið haldin árlega frá árinu 2009 og hefur
því fest sig í sessi á meðal mikilvægustu
viðburða fyrir ungt fólk á Íslandi.
Hreyfivika UMFÍ felur í sér hvatningu til
almennings um að finna uppáhaldshrey-
fingu sína og stunda hana reglulega eða að
minnsta kosti í 30 mínútur daglega. Jafn-
framt er markmið verkefnisins að gefa ein-
staklingum, félögum, sveitarfélögum og
fyrirtækjum tækifæri til að kynna fjölbreytta
hreyfingu sem almenningi stendur til boða.
Þessar dagsetningar
þarftu að muna
Hjá UMFÍ er undirbúningur fyrir næsta ár hafinn.
Hér má sjá helstu dagsetningar árið 2018
og stutta útskýringu á verkefnunum.
10. janúar Umsóknarfresti lýkur vegna styrks til náms
við lýðháskóla í Danmörku.
1. febrúar Umsóknarfrestur hjá Evrópu unga fólksins (EUF).
21. – 23. mars Ungt fólk og lýðræði.
1. apríl Umsóknarfrestur í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ.
15. apríl Umsóknarfrestur í Umhverfissjóð UMFÍ.
26. apríl Umsóknarfrestur hjá Evrópu unga fólksins (EUF).
28. maí – 3. júní Hreyfivika UMFÍ
13. – 15. júlí Landsmótið og Landsmót UMFÍ 50+ á Sauðárkróki.
2. – 5. ágúst Unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn.
1. október Umsóknarfrestur í Fræðslu- og verkefnasjóð
UMFÍ.
4. október Umsóknarfrestur hjá Evrópu unga fólksins (EUF).
Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus fjöl-
skyldu- og íþróttahátíð sem fram fer um
verslunarmannahelgina. Á hátíðinni reyna
11–18 ára börn og ungmenni með sér í fjöl-
mörgum íþróttagreinum en samhliða er
boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og
skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþrótta-
keppni og annarri keppni, hreyfingu og því
að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman sam-
an. Mótið er opið öllum sem verða 50 ára
og eldri á árinu.
Landsmótið er ný íþróttahátíð sem fram fer
í fyrsta sinn sumarið 2018. Á mótinu verða
í boði ríflega 30 mismunandi keppnisgreinar
fyrir einstaklinga og hópa ásamt skemmti-
legri afþreyingu við allra hæfi. Mótið verður
sannkölluð íþrótta- og lýðheilsuveisla þar
sem allir eiga að geta fundið íþróttagrein og
önnur verkefni sem þeim líkar. Tónlist og
menning verður í hávegum höfð til að krydda
þessa helgi í Skagafirði og gera hana eftir-
minnilega.
2018