Skinfaxi - 01.04.2017, Qupperneq 10
10 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Landsmótið 2018
verður haldið á Sauðárkróki dagana 13.–15.
júlí 2018. Fyrsta Landsmót UMFÍ var haldið
árið 1909 en frá árinu 1940 hafa þau verið
haldin á 3–4 ára fresti.
Eftir síðasta Landsmót UMFÍ, sem haldið
var á Selfossi sumarið 2013, var ákveðið að
staldra við og endurskoða mótið, markmið
þess og tilgang. Haldnir voru stefnumótandi
fundir um land allt, auk þess sem stór hópur
fór á danska landsmótið í sumar til að horfa
á og fá hugmyndir. Niðurstaðan varð að fara
nýjar leiðir. Mótið verður opnað öllum, 18 ára
og eldri, og gert aðgengilegra þeim sem hafa
einfaldlega gaman af því að hreyfa sig reglu-
lega.
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
hefur skipulagt mót á vegum UMFÍ frá
árinu 2004.
„Landsmótið á Sauðárkróki er eitt af þeim
verkefnum sem ég er hvað spenntastur fyrir,“
segir Ómar Bragi sem er framkvæmdastjóri
mótsins.
Skrifstofa Ómars er á Sauðárkróki en hann
þeysist mörg þúsund kílómetra landshorna
á milli við skipulagningu móta UMFÍ. Hann
hefur verið framkvæmdastjóri móta UMFÍ
í 13 ár eða frá því að Landsmót UMFÍ var
haldið á Sauðárkróki árið 2004.
„Eitt af því mikilvægasta í starfinu er að
hitta fólk í eigin persónu,“ segir Ómar og rifjar
upp eitt af ráðunum sem hann heyrði á fyrir-
lestri á landsmóti DGI í Álaborg í sumar. „Þar
sagði einn fyrirlesarinn: Þið getið sent út tölvu-
pósta og fréttabréf. En þið náið ekki árangri
nema þið farið út og hittið fólk. Ég finn það
hvar sem ég kem, að það er metið að ég sé á
staðnum.“ Stærsta verkefni Ómars nú er hið
nýja landsmót UMFÍ sem haldið verður á
Sauðárkróki í júlí 2018. Mótið verður með
breyttu sniði, nokkuð sem fólk hefur ekki áður
kynnst á Íslandi. „Þetta er feikilega skemmti-
legt og spennandi verkefni,“ segir Ómar.
Á Landsmótinu næsta sumar gefst þátttakendum tækifæri til
að spreyta sig við nýjar og áhugaverðar íþróttagreinar. Ein slík
íþróttagrein er strandhandbolti. Handbolta þekkja allir lands-
menn en strandhandbolti er ein útfærslan á íþróttagreininni.
Eins og heitið gefur til kynna er spilað í sandi á heldur minni
velli en í hefðbundnum handbolta enda getur reynst nokkru
erfiðara að hlaupa og hreyfa sig um í sandi heldur en í sal. Leikið
er í 2x6 mínútur og eru fjórir leikmenn í hverju liði inni á vellin-
um. Liðin samanstanda af markmanni, svokölluðum sérfræð-
ingi og tveimur almennum leikmönnum. Íþróttin er mjög áhorf-
endavæn enda fá lið aukastig fyrir glæsileg mörk sem skoruð
eru með miklum tilþrifum og eins fæst aukastig ef markmaður
skorar. Reglurnar eru á þá leið að lið þurfa að vinna tvo hluta. Ef
lið eru jöfn að stigum eftir tvo hluta ráðast úrslit í vítaskotskeppni.
Á Landsmótinu verður boðið upp á keppni í strandhandbolta.
Íþróttaveisla í undirbúningi
á Sauðárkróki
Nýjar og spennandi
íþróttagreinar
Strandhandbolti