Skinfaxi - 01.04.2017, Side 11
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 11
Nýtt mótsfyrirkomulag
Landsmótið á Sauðárkróki verður með breyttum hætti,
fyrirkomulagi sem hefur ekki sést áður á Íslandi. Á mótinu
verða í boði ríflega 30 keppnisgreinar fyrir einstaklinga
og hópa ásamt skemmtilegri afþreyingu við allra hæfi.
Mótið verður sannkölluð íþróttaveisla þar sem allir eiga að
geta fundið íþróttagrein og önnur verkefni við sitt hæfi.
Tónlist og menning verður í hávegum höfð til að krydda
þessa helgi í Skagafirði og gera hana eftirminnilega.
Samhliða þessu nýja móti verður Landsmót UMFÍ 50+
einnig haldið á Sauðárkróki. Mótið verður með svipuðu
sniði og áður en töluvert fleiri keppnisgreinar og afþrey-
ing verður í boði en áður.
Ungmennafélag Íslands hvetur til þátttöku í þessu
nýja móti og vonar sannarlega að með því verði stigin
góð skref inn í nýja tíma. UMFÍ hvetur þig til að taka
strax frá dagana 12.–15. júlí 2018.
Sjáumst hress og glöð á Sauðárkróki!
Bandý er íþróttagrein sem nýtur vax-
andi vinsælda hér á landi. Í bandý eru
sex liðsmenn, þar af er einn markvörð-
ur og hafa þeir allir fyrir utan mark-
mann kylfu til að stjórna og skjóta
plastkúlu (kölluð bandýkúla), en mark-
maður ver markið með höndum og
fótum. Markmið leiksins er að skjóta
bandýkúlunni í mark andstæðingsins.
Leikmenn mega ekki viljandi nota
hendur eða höfuð til að stjórna kúlunni,
en leyfilegt er að snerta hana einu sinni
í einu með fótunum, oftast til að stoppa
hana, en ekki má skora mörk með fót-
unum eða gefa kúluna með þeim.
Krolf er önnur nýstárleg íþrótta-
grein sem þátttakendum á
Landsmótinu gefst tækifæri til
að prófa. Krolf er blanda af
krikket og golfi og er vaxandi
grein á meðal eldri aldurshópa í
Danmörku. Í leiknum nota þátt-
takendur ákveðnar kylfur til þess
að slá ákveðna bolta ofan í holur.
Sá sigrar sem notar fæst högg
við það að koma boltanum í hol-
una. Lágmarkslengd á milli hola
er 5 m en hámarkslengd er 30 m.
Þetta er íþrótt sem allir aldurs-
hópar geta haft gaman af.
Eitthvað fyrir alla
Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á
Landsmótinu þar sem boðið verður upp á
fjölmargar ólíkar íþróttagreinar. Greinarnar
eru: bandý, bíatlon, boccía, bogfimi, brenni-
bolti, bridds, danssmiðja, fimleikar, fitness,
fjallahjólreiðar, fótboltabiljard, fótboltapanna,
fótbolti, frisbígolf, frjálsar, glíma, golf, götu-
fótbolti, 65 km götuhjólreiðar, 10 km götu-
hlaup, gönguferðir, hjólaskíðaganga, hjóla-
stólarall, hjólastólakörfubolti, júdó, karfa 3:3,
karfa streetball, línudans, minigolf, móto-
cross, ólympískar lyftingar, pútt, pönnuköku-
bakstur, ringó, salsa, sandhlaup, sjósund, skák,
skotfimi, stígvélakast, strandblak, strandfót-
bolti, strandhandbolti, sund, þrautabraut og
þríþraut.
Einnig verða í boði fyrirlestrar, götupartý,
hestasýning, ráðstefna, tónleikar og „Palla-
ball“ svo að eitthvað sé nefnt.
Nýstárlegt fyrirkomulag
Fyrirkomulag mótsins verður með nýstárlegu
sniði sem hefur ekki sést áður á Íslandi. Öllum
dagskrárviðburðum verður skipt niður í fjóra
liti sem eru gulur, rauður, grænn og blár.
Gulur felur í sér keppnisgreinar. Rauður
táknar „láttu vaða“ þar sem um kynningu og
kennslu er að ræða. Þátttakendur fá afslætti
á græna viðburði sem geta verið aðgangur
að söfnum, út að borða eða sundferð. Bláir
viðburðir eru hins vegar opnir fyrir alla, þátt-
takendur sem aðra.
Bandý
Krolf