Skinfaxi - 01.04.2017, Qupperneq 12
12 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
S
ambandsþing UMFÍ fór fram í blíð-
skap ar veðri í afar fallegu umhverfi á
Hótel Hallormsstað á Fljótsdalshér aði
dagana 13.–15. október sl. Sam bands-
þing UMFÍ er haldið annað hvert ár
og hefur það æðsta vald í málefnum UMFÍ.
Þingfulltrúar sambandsaðila voru sammála
um að góður andi hefði ríkt á þinginu.
Haukur Valtýsson, sem varð sjálfkjörinn for-
maður UMFÍ til næstu tveggja ára, sagði í opn-
unarávarpi að þau tvö undangengin ár sem
hann hefði verið formaður hefðu verið anna-
söm. Mörgu hafi verið komið í verk og starf-
semi UMFÍ tekið breytingum frá því sem
áður var.
Spenntur fyrir Landsmótinu
Landsmót UMFÍ voru ofarlega í huga Hauks.
Hann rifjaði upp ferð sem fimmtíu fulltrúar
UMFÍ, formenn sambandsaðila og fram-
kvæmdastjórar, auk Hauks sjálfs, fóru til Ála-
borgar í Danmörku um mitt sumar til að
skoða landsmót DGI og tengjast dönsku ung-
mennahreyfingunni betur. Hauki leist vel á
það sem hann kynntist og sagðist hann sann-
færðari en áður um að framtíð UMFÍ væri
björt. Forsvarsfólk DGI hefði áður staðið
frammi fyrir sömu úrlausnarefnum og UMFÍ
og hefðu hann og fulltrúar ungmennafélag-
anna lært mikið af ferðinni.
Haukur segir að vinna sé hafin við „Lands-
Nýjungar á 50. sambandsþingi UMFÍ
mótið“ – næsta landsmót UMFÍ, sem verður
með nýju og nútímalegu sniði. Það verður
haldið á Sauðárkróki dagana 13.–15. júlí 2018.
Hann sagðist mjög spenntur fyrir þessu nýja
fyrirkomulagi og í framhaldinu þyrfti svo að
meta hvernig til hefði tekist og ákveða fram-
hald á tilhögun slíkra móta.
Gott að gera langtímasamninga
En víkjum aftur að því sem Haukur sagði að
væri jákvætt í Danmörku og mætti taka upp
hér á landi. Nýverið hefðu DGI og DIF, sem líta
má á sem systursamtök UMFÍ og ÍSÍ í Dan-
mörku, endurnýjað samning við ríkisvaldið.
Samningurinn sé tengdur framkvæmd á lýð-
heilsuverkefni sem ætlað er að bæta lýðheilsu í
Danmörku. Þar sé horft til lengri tíma og lögð
áhersla á samstarf á breiðum vettvangi. UMFÍ
þurfi að hugsa stórt og langt fram í tímann.
Haukur sagði stjórn UMFÍ leita eftir því að
ná sambærilegum langtímamarkmiðum. Svo
að þetta takist verði UMFÍ að breyta ýmsu og
gera áætlanir og samninga sem gilda til lengri
tíma en til árs í senn. Lengri samningar styrkja
grunninn fyrir verkefni hreyfingarinnar.
Þetta varð að veruleika að hluta á sam-
bandsþinginu nú í haust. Á síðasta þingdegi
sótti Kristján Þór Júlíusson, mennta- og
menningarmálaráðherra, þingið heim og
hafði hann meðferðis samning við UMFÍ til
þriggja ára. Samningurinn var á margan hátt
nýlunda, ekki aðeins í sögu UMFÍ. Þetta var
fyrsti samningurinn sem UMFÍ hefur gert til
svo langs tíma og sá fyrsti sem stjórnvöld
hafa gert við félagasamtök og er til lengri
tíma en eins árs í senn. Kristján Þór sagði
við undirritun samningsins að hann gerði
félagasamtökum eins og UMFÍ kleift að
skipuleggja sig til lengri tíma.
Haukur Valtýsson segir Íslendinga geta lært mikið af Dönum.
Undirritun samninga. F.v.: Óskar Ármannson, sérfræðingur
hjá MMR, Kristján Þór Júlíusson, mennta- og menningar-
málaráðherra, Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ, og
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.
Aldrei hefur áður verið kosið með rafrænum hætti á sambandsþingi UMFÍ.
Rafræn kosning
Ýmislegt nýtt leit dagsins ljós á sambandsþingi UMFÍ
á Hallormsstað. Kosningar voru þar rafrænar í fyrsta
sinn. Tilhögunin var sú að hver fundargestur fékk
rafræna hnetu með tökkum á. Hægt var að vera
fylgjandi málum, á móti eða hlutlaus. Áður en farið
var í kosningar á öðrum degi þingsins var farið yfir
rafrænu kosninguna og það hvernig kerfið virkaði.
Niðurstaðan var mun fljótvirkari en áður. Þegar gengið
var til kosninga birtist á tjaldi hvenær mátti byrja að
kjósa, hversu margir höfðu kosið og um hálfri mínútu
síðar hver niðurstaðan var.
Vilja ræða málið betur
Eitt af stærri málum þingsins var umsókn um aðild flestra íþróttabandalaga landsins
að UMFÍ. Vinnuhópur um aðildina sendi frá sér tillögur í byrjun árs til kynningar og
umfjöllunar hjá sambandsaðilum. Á þinginu sjálfu voru tillögur um aðild bandalag-
anna ýmist felldar eða vísað frá þinginu. Tillögur um breytingar á lögum sem tengd-
ust inngöngunni náðu ekki 2/3 hluta atkvæða en þó var meira en helmingur þing-
fulltrúa sem studdi lagabreytingarnar eða 63 af 109. 12 sátu hjá og 34 voru á móti.
Þingfulltrúar vilja ræða málið frekar og var tillaga borin upp á þinginu um að fela
stjórn boðun aukaþings varðandi málið. Hún var samþykkt með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða. Stjórn UMFÍ hefur í framhaldinu fundað og komist að þeirri niður-
stöðu að ekki sé heimild til boðunar aukaþings en hefur samþykkt að boðað verði
til aukasambandsráðsfundar varðandi málið. Hann fer fram 13. janúar 2018.