Skinfaxi - 01.04.2017, Page 14
14 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
20. Unglingalandsmót UMFÍ var
haldið í blíðskaparveðri um
verslunarmannahelgina á Egils-
stöðum. Mótshaldari var Ungmenna- og
íþróttasamband Austurlands (UÍA) og Fljót-
dalshérað. Að sjálfsögðu var mótið vímulaus
íþrótta- og fjölskylduhátíð.
Á mótinu var boðið upp á keppni í 23 mis-
munandi greinum fyrir ungmenni á aldrinum
11–18 ára þar sem allir á þessu tiltekna aldurs-
bili gátu tekið þátt, óháð því hvort viðkom-
andi væri í íþróttafélagi. Keppnisgreinarnar
voru: boccia, bogfimi, fimleikalíf, fjallahjól-
reiðar, frisbígolf, frjálsar íþróttir, glíma, golf,
götuhjólreiðar, knattspyrna, kökuskreyting-
ar, körfuknattleikur, mótocross, ólympískar
lyftingar, rathlaup, skák, skotfimi, stafsetn-
ing, strandblak, sund, þrekmót og upplestur.
Auk keppninnar var boðið upp á fjölbreytta
afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Hægt var að
fara í ratleik, minigolf, spila fótbolta á panna-
velli og fara í víkingaleiki ásamt mörgu öðru.
Á kvöldin fóru síðan fram skemmtanir í stóru
samkomutjaldi á mótssvæðinu þar sem helstu
tónlistarmenn og hljómsveitir landsins komu
fram.
Á mótinu voru keppendur alls 980 talsins,
eða 538 drengir og 442 stúlkur, og hefur hlut-
fallið aldrei verið jafnara. Flestir keppendur
voru 12 ára en fæstir 11 og 18 ára. Eins og
undanfarin ár tóku flestir þátt í knattspyrnu,
körfubolta og frjálsum íþróttum. Í fyrsta skipti
á mótinu var boðið upp á keppni í kökuskreyt-
ingum. Óhætt er að segja að keppnin hafi
vakið mikla lukku því að rúmlega 100 þátttak-
endur tóku þátt.
Undirbúningur fyrir 21. Unglingalandsmót
UMFÍ er hafinn en mótið fer fram um verslun-
armannahelgina (2.–5. ágúst) í Þorlákshöfn.
Mótshaldarar eru Héraðssambandið Skarp-
héðinn (HSK) og sveitarfélagið Ölfus. Sjáumst
hress á Unglingalandsmóti í Þorlákshöfn 2018!
Hvað finnst móts-
gestum um mótið?
Samkvæmt könnun á meðal þátttakenda
mótsins líkaði 99,6% gesta mótið vel eða
mjög vel og 99,5% mótsgesta mæla með
mótinu við aðra. Hvar verður fjölskylda þín
um næstu verslunarmannahelgi?
„Þetta er klárlega skemmtilegasti
viðburður ársins!“
„Þetta er alvöru fjölskyldumót sem
enginn ætti að missa af!“
„Það er algjör snilld að hafa þetta mót
þessa helgi. Ég var efins fyrst en er það
svo sannarlega ekki núna!“
„Stórskemmtilegt mót og ekkert annað
í stöðunni en að fara á mótið eins
lengi og börnin hafa keppnisrétt!“
„Við skulum halda í ungmennafélagsandann
eina og sanna, ræktun lýðs og lands. Það er
svo mikilvægt að setja sér markmið og vinna
saman, ekki bara í íþróttum heldur lífinu öllu.
Við erum samfélag þar sem allir eiga að geta
spreytt sig, skarað fram úr ef vel gengur en
hlýtt um leið sanngjörnum reglum í heiðar-
legri keppni.“ Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands.
Unglingalandsmót UMFÍ
Egilsstöðum 2017