Skinfaxi - 01.04.2017, Blaðsíða 17
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 17
Árangur í íþróttum byggir ekki aðeins á líkamlegri getu. Gott
hugarfar og góður liðsandi geta einnig skipt höfuðmáli.
Með markvissri þjálfun andlegra þátta styrkjum við börn og
unglinga fyrir lífið og þátttöku í samfélaginu um leið og við aukum
möguleika þeirra á að blómstra á íþróttavellinum.
Sýnum karakter er átaksverkefni um þjálfun sálrænnar og
félagslegrar færni barna og ungmenna í íþróttum. Hugmyndafræði
verkefnisins byggir á að hægt sé að þjálfa og styrkja sálræna og
félagslega færni iðkenda eins og líkamlega færni. Verkefnið er
samstarfsverkefni stærstu íþróttahreyfinga Íslands, Ungmenna-
félags Íslands (UMFÍ) og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ).
Áherslan í íþróttaþjálfun hefur til þessa verið á líkamlega og
tæknilega færni. Helsta markmið með verkefninu er því að hvetja
þjálfara og íþróttafélög til að leggja enn meiri og markvissari
áherslu á að byggja upp góðan karakter hjá iðkendum, með þjálfun
sálrænna og félagslegra eiginleika barna og ungmenna. Þjálfun
karakters barna og ungmenna í íþróttum gerir íþróttafélögum
kleift að sinna hvoru tveggju í senn: uppeldishluta og afrekshluta
íþróttastarfsins, því að góðir karakterar eru vel í stakk búnir til að
takast á við lífið og einnig til að ná árangri í íþróttum.
Sýnum karakter er viðbót við stefnu og annað fræðsluefni íþrótta-
hreyfingarinnar og byggir á því að nokkru leyti. Þar er bætt við hag-
nýtum upplýsingum og aðferðum sem þjálfarar geta nýtt sér í þjálf-
un barna og ungmenna með einföldum hætti. Verkefnið er þó
hvorki altækt né endanlegt. Þvert á móti er því ætlað að þróast og
dafna með framlagi þjálfara – og annarra sem áhuga hafa – sem
hafa tækifæri til að koma með ábendingar og frekari fræðslupunkta
inn í verkefnið.
www.synumkarakter.is
Á heimasíðu verkefnisins má finna pistla eftir sérfræðingana dr.
Viðar Halldórsson og dr. Hafrúnu Kristjánsdóttur. Þau setja fram
góðar leiðbeiningar sem þjálfarar geta nýtt sér og sett inn í þjálf-
unaraðferðir sínar. Auk þeirra hafa fjölmargir þjálfarar og aðrir, sem
láta sig málefnið varða, skrifað gagnlega pistla, komið með ráð-
leggingar og fjallað um aðferðir sínar í anda verkefnisins. Sýnum
karakter skiptist í sex áhersluþætti sem eru áhugi, markmiðasetn-
ing, félagsfærni, sjálfstraust, leiðtogafærni og einbeiting. En hvað
einkennir karaktera? Þessari spurningu er ekki auðvelt að svara en
karakterar rísa sterkir upp eftir mistök (tilraunir), takast á við álag
og þrauka í mótlæti, þeir trúa á sjálfa sig og hafa óbilandi trú á að
þeir ráði sínum eigin örlögum en slík viðhorf eru tiltölulega óháð
keppnisaðstæðum eða mótlæti. Karakterar eru áhugasamir og
jákvæðir, þeir eiga auðvelt með að einbeita sér þegar það skiptir
máli en öðru fremur eru þeir öflugir leiðtogar og góðir liðsfélagar.
Er hjálplegt að vera karakter?
Markhópur verkefnisins Sýnum karakter er fyrst og fremst þjálfarar
barna og ungmenna í íþróttum. Mikilvægt er þó að allir sem koma
að íþróttastarfi barna og ungmenna, stjórnarfólk, starfsfólk, kennar-
ar og foreldrar, kynni sér innihald og áherslur verkefnisins. Ef allir
vinna saman að því að bæta og styrkja karakter ungu kynslóðar-
innar verður framtíð þeirra – og okkar allra – enn bjartari og betri.
Góðir karakterar eru líklegri til þess að ná árangri í íþrótt sinni,
þeir hafa betra sjálfstraust, eiga auðveldara með tilfinningastjórnun,
hafa meiri og betri samskiptahæfni, þeir hugsa á jákvæðum nótum
og eru staðfastari. Góðir karakterar hafa hæfni sem nýtist þeim á
flestum sviðum lífsins og því gott veganesti til framtíðar að fá slíka
þjálfun í æsku.
Það er von íþróttahreyfingarinnar að verkefnið hjálpi þjálfurum
og fleirum við að tileinka sér aðferðir og leiðir til markvissrar þjálf-
unar karakters ungu kynslóðarinnar og beiti þeim í daglegu starfi.
Það er allra hagur en nú þegar hafa fjölmörg íþróttafélög og þjálf-
arar tekið verkefnið markvisst inn í þjálfun sína.
Eysteinn Hauksson
knattspyrnuþjálfari í
Keflavík nýtir Sýnum
karakter í þjálfun.
„Ég hef verið að prófa
mig áfram með knatt-
spyrnuverkefni, sem lík-
lega má tengja við
„karakterþjálfun“, hjá
6. flokki kvenna í Kefla-
vík. Með vissu millibili byrjum við æfingar á
að kynna ákveðið gildi eða hugtak með því
að segja frá því, hvað það þýðir og hvernig
það getur verið íþróttafólki eða íþróttaliðum
mikils virði. Síðan er lögð áhersla á að hrósa
fyrir þá hegðun á æfingunum sem fylgja, sem
tengist því að styrkja viðkomandi hugtak
innan hópsins. Engum er sagt að hann EIGI
AÐ VERA svona eða hinsegin, heldur er hug-
tökunum og mögulegum kostum þeirra ein-
faldlega lýst og svo er þeim hampað við hvert
tækifæri. Stelpurnar eru svo spurðar reglu-
lega, í upphafi æfinga, hver gildin okkar séu
og þær telja þau upp og þannig eflast þau
vonandi innan hópsins. Svo er reglulega bætt
inn nýjum hugtökum, þó alls ekki of oft,“
segir Eysteinn.
Karl Ágúst Hannibalsson
körfuknattleiksþjálfari
hjá FSu á Selfossi leggur
áherslu á mikilvægi
þess að byrja strax á því
að huga að andlegri
sem og félagslegri hlið
barnanna sem hann
þjálfar. Karl einbeitir sér
markvisst að því að efla
þessa þætti í starfi sínu. Karl settist niður með
iðkendum og þjálfurum þar sem allir settu
sér sameiginleg markmið fyrir allt liðið. Fyrir
valinu varð að stefna að því að verða flottasta
körfuboltaliðið á landinu. Út frá þessu var
svo rætt um það hvað þyrfti til þess að verða
flottasta liðið. Eftir góða vinnu varð niður-
staðan sú að búa til fimm gildi sem lið stefndi
á að fara eftir, hvort sem væri er á æfingum eða
í keppni. Liðið skilgreindi vel merkingu gild-
anna þannig að allir væru með sitt á hreinu.
Iðkendur fengu síðan allir útprentað blað
með gildum til þess að taka með heim.
Til þess að minna leikmenn á gildin á æfing-
um er eitt og eitt gildi tekið fyrir í einu og
nýtt sem þema í tvær vikur í senn. Karl skrifar
þá gildið, sem unnið er með hverju sinni, á
töflu og hefur inni í sal á meðan á æfingu
stendur til að minna iðkendur á. „Við leggjum
mikla áherslu á skilgreiningu iðkenda á vin-
áttu sem er meðal annars að hugsa um sam-
herjana, vera góðir hver við annan og tala
við þá sem eru leiðir á æfingunum. Þeir sem
sýna öðrum vináttu fá mikið hrós fyrir bæði
frá þjálfara og samherjum,“ segir Karl.
Ósk Kristinsdóttir
er knattspyrnuþjálfari
hjá HK (Handknattleiks-
félagi Kópavogs).
„Ég hef farið úr því að
vera með átta stelpur á
æfingum í litlum íþrótta-
sal í það að vera með
40–50 stelpur á æfingu
á hálfum velli í Kórnum í
Kópavogi. Við þessa breytingu hefur teng-
ingin við iðkendur breyst,“ segir Ósk.
Ósk hefur tekið Sýnum karakter markvisst
inn í þjálfun sína sem og HK í heild. HK ákvað
að nýta verkefnið markvisst í öllu félaginu en
allir þjálfarar félagsins komu að þeirri vinnu.
„Ég leit á verkefnið Sýnum karakter sem kjörið
tækifæri til þess að kynnast iðkendum mín-
um betur og aðstoða stelpurnar við að átta
sig á stöðu sinni innan félagsins. Þær höfðu
margar hverjar ekki hugmynd um hvað það
er að vera félagsmaður, góður liðsfélagi eða
leiðtogi. Fyrirmynd var hugtak sem þær
þekktu en áttuðu sig ekki á að þær sjálfar
væru fyrirmyndir, til dæmis í augum yngri
iðkenda. Það fyrsta sem ég fór að vinna með
eftir fund með þjálfurum innan HK, þar sem
við kynntum okkur Sýnum karakter, var að
efla liðsandann og gera þær meðvitaðri um
að þær væru hluti af HK, HK væri ekkert án
iðkenda og að þær skiptu máli fyrir félagið,“
segir Ósk.
Það er hægt að þjálfa góðan liðsanda!