Skinfaxi - 01.04.2017, Síða 18
18 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Nemendur í 9. bekk í Varmahlíðar-
skóla í Skagafirði fóru í fyrsta sinn
í byrjun október í heila viku í Ung-
menna- og tómstundabúðirnar á
Laugum í Sælingsdal. Aðstoðarskólastjórinn
segir krakkana í skýjunum eftir dvölina og er
búinn að panta pláss aftur á næsta ári.
„Krökkunum fannst alveg frábært á Laug-
um. Þau undirbjuggu sig vel og þegar þau
komu aftur í skólann sögðu þau yngri bekk-
ingum að það yrðu allir að fara þangað,“
segir Lára Gunndís Magnúsdóttir, aðstoðar-
skólastjóri Varmahlíðarskóla í Skagafirði.
Næstum allir nemendur í 9. bekk Varmahlíð-
arskóla fóru í Ungmenna- og tómstundabúð-
irnar á Laugum í heila viku í byrjun október
2017. Þetta var í fyrsta skipti sem nemendur
við Varmahlíðarskóla fara í Ungmenna- og
tómstundabúðir UMFÍ.
Lára vissi um Ungmenna- og tómstunda-
búðir UMFÍ og þá kosti sem prýða þær. Þegar
landsfulltrúi UMFÍ heimsótti Varmahlíðar-
skóla árið 2015 og kynnti þær var fræjunum
sáð víðar. Svo vildi líka til að umsjónarkenn-
ari árgangsins, sem var að fara vestur, hafði
farið þangað með bekk í öðrum skóla nokkr-
um árum fyrr.
Nemendurnir undirbjuggu ferðina mjög
vel, seldu vöfflur og seldu inn á leiksýningu á
verki eftir sögu sem var til náms í skólanum
til að fjármagna hana. Foreldrar nemendanna
greiddu það sem upp á vantaði, fjárhæð sem
jafngildir fæðiskostnaði ungmennanna í þá
daga sem þau voru á Laugum. Með í ferðina
fóru tveir starfsmenn á vegum skólans, einn
kennari og umsjónarmaður félagsmála.
Lára segir dvölina í Ungmenna- og tóm-
stundabúðum UMFÍ hafa stutt við námið í
skólanum. „Þau fengu fjölbreytt verkefni og
lærðu að koma fram og tala. Námið rímaði
líka mjög vel við það sem við gerum í Varma-
hlíðarskóla, sem er heilsueflandi skóli, í sjálfs-
styrkingu, útiveru og öðru. Krakkarnir fengu
líka að prófa alls konar íþróttir og útivist,“
segir Lára Gunndís aðstoðarskólastjóri.
Vildu vera á
Laugum að eilífu
„Ferðalangarnir höfðu áhyggjur af því að þurfa að
ferðast inn í annan heim, eiginlega horfinn heim,“
segir Trostan Agnarsson, umsjónarkennari 9. bekkjar
við Varmahlíðarskóla. Hann á þar ekki við Laxárdal-
inn, sögusvið Laxdælu og Auðar djúpúðgu, heldur
það að þetta var heimur án rafrænna samskipta við
umheiminn.
„Símar og annað slíkt fékk því ekki að fljóta með
þar eð slíkt var talið trufla um of hin fallegu mann-
legu samskipti sem eiga að einkenna daglega lífið.
Tækin, sem skilin voru eftir, gleymdust furðu fljótt
og fólk naut þess að dvelja í þessum horfna heimi
mannlegra samskipta. Nemendur höfðu á orði að
í ævintýraheimi sem þessum væri hægt að dvelja
lengi, jafnvel að eilífu.“
Það verða
allir að fara
þangað