Skinfaxi - 01.04.2017, Qupperneq 20
20 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Hlynur C. Guðmundsson, frjáls-
íþróttaþjálfari Aftureldingar í Mos-
fellsbæ, hefur kennt börnum íþróttir
og tómstundir í 1.–4. bekk í grunn-
skólum Mosfellsbæjar. Hann segir
það skila sér í ófeimnari og opnari
ungmennum.
„Ég er sannfærður um að ungmenni búa að
þeirri þekkingu á íþróttum sem þau fá í æsku.
Hún nýtist þeim og minni líkur verða á því að
þau leiðist út á óæskilegar brautir, hvað þá að
þau brjóti af sér. Frístundakynning í æsku eyk-
ur líkurnar á því að ungmennin stundi heil-
brigðari lífsstíl,“ segir Hlynur C. Guðmunds-
son, frjálsíþróttaþjálfari Aftureldingar í Mos-
fellsbæ.
Hann hefur á síðastliðnum 20 árum skipu-
lagt og stýrt Íþróttafjöri fyrir börn í Mosfells-
bæ. Hugmyndina segir hann hafa komið upp
fyrir síðustu aldamót þegar hann sá hvert
virtist stefna í forvörnum í bænum.
„Íþróttalífið var orðið nokkuð staðnað í
Mosfellsbæ árið 1997. Fá börn og ungmenni
voru í skipulögðu tómstunda- og æskulýðs-
starfi og lítið var að gerast á þeim vettvangi.
Ég fór varla orðið á heimaleiki hjá Aftureldingu
því að ég þekkti fáa í liðinu. Svo urðu til hópar
12–15 ára unglinga sem slæptust og þvæld-
ust um og höfðu ekkert fyrir stafni,“ segir
Hlynur. Hann átti ungling á þessum tíma og
fór nokkrum sinnum í foreldrarölt með öðrum
að kvöldi til. „Krakkarnir hittust í sjoppu í mið-
bænum á kvöldin og þau áttu sér sína staði.
Við fórum á nokkra staði og ræddum við þá.
Íþróttir og tómstundir eru besta forvörnin
Mér þótti þetta leiðinlegt að sjá enda kannaðist ég við krakkana úr
skólastarfinu í bænum,“ segir Hlynur. Hann fór að spjalla við krakk-
ana og hlusta eftir því hvort þau ættu sér einhverjar tómstundir á
daginn og um helgar. Svo reyndist ekki vera.
„Það var eins og þau langaði til að vera í íþróttum eða tómstund-
um en væru feimin við það á þessum aldri,“ segir Hlynur og tók að
brjóta heilann um það hvað hann gæti gert til að ungmennin yrðu
opnari og hefðu eitthvað skapandi að fást við.
40–50 börn á dag
Sigurður Guðmundsson, íþróttafulltrúi Mosfellsbæjar, og Hlynur
ræddu saman og fengu þá hugmynd sem enn er unnið eftir.
Í henni fólst að bjóða börnum í fyrstu bekkjum grunnskóla upp á
skipulagt tómstundastarf þar sem kynnt voru fyrir þeim grunn-
atriði í þeim íþróttagreinum sem Afturelding býður upp á og allt
tómstundastarf í Mosfellsbæ. Ekki var um skipulagðar æfingar
að ræða heldur kynningar þar sem nemendur fengu nasasjón af
ýmsum greinum og fengu að prufa.
„Við fórum af stað með þetta sem tilraunaverkefni árið 1998 og
það hefur gengið eftir það,“ segir Hlynur og er sáttur við árangur-
inn nú 19 árum síðar. Í Íþróttafjörið mæta 40–50 börn á dag úr
grunnskólum Mosfellsbæjar, um 170–200 í hverri viku.
Íþróttafjörið fer fram að skóla loknum, í frístundinni, það fellur
innan skólastarfsins og því þurfa foreldrarnir ekki að skutla börnun-
um neitt. Í Íþróttafjörinu eru kynntar ýmsar árstíðabundnar greinar
á borð við golf að vori, skák, íslenska glímu, hestamennsku og
margt fleira. Yfir háveturinn er einblínt á það íþróttastarf sem
Afturelding í Mosfellsbæ býður upp á.
Hlynur segir árangurinn stórkostlegan. Ungmennin séu hætt að
slæpast á kvöldin og fleiri stundi íþróttir og tómstundir. „Ég tók
eftir því í kringum 2008 að ég var farinn að hafa gaman af því að
fara á heimaleiki Aftureldingar til að sjá bæði karla- og kvennaliðin
keppa í meistaraflokkum. Þar og sérstaklega síðar sá ég nefnilega
marga sem höfðu komið í íþróttafjörið hjá mér og hafa fundið fjöl-
ina sína fyrir unglingsárin,“ segir Hlynur C. Guðmundsson að lokum.
Íslenska glíman er vinsæl
„Það kom mér mikið á óvart, en íslenska
glíman er ein vinsælasta íþróttagreinin sem
krakkarnir prófa,“ segir Hlynur. Árið 2006 lét
Hlynur útbúa tuttugu glímubelti fyrir börn.
Þau eru úr hestataumi með smellulás og
hafa staðist tímans tönn. Glíman er kynnt
bæði á haustin og vorin og hafa börnin,
bæði kyn, mjög gaman að því að læra
brókatök og axlatök, hælkróka og önnur
brögð í glímu án þess að meiða. Þetta er
kynt sem fyrsta íþróttagrein íslenskra vík-
inga og þau bera mikla virðingu fyrir henni.
„Frístundakynning í æsku eykur
líkurnar á því að ungmennin
stundi heilbrigðari lífsstíl“