Skinfaxi - 01.04.2017, Page 22
22 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs
vill að hið opinbera veiti sveitar-
félögum meiri stuðning til að
halda íþróttamót á borð við
Unglingalandsmót UMFÍ.
„Stjórnvöld þurfa að átta sig betur á forvarna-
gildi íþróttamóta,“ segir Björn Ingimarsson,
bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði. Birni var mikið
niðri fyrir þegar hann hélt harðort erindi við
setningu 50. sambandsþings UMFÍ á Hótel
Hallormsstað í október sl. Unglingalandsmót
UMFÍ fór einmitt fram á Egilsstöðum um
verslunarmannahelgina með mótshaldaran-
um UÍA og var Björn á meðal þeirra sem
lögðu á sig ómælda vinnu til að halda gott
mót. Hann sagðist hafa orðið fyrir vonbrigð-
um með viðbrögð stjórnvalda þegar forsvars-
menn sveitarfélagsins leituðu til hins opin-
bera eftir stuðningi.
Björn sagði í ávarpi sínu að sveitarfélög,
sem hafa haldið mótið með viðkomandi sam-
bandsaðila UMFÍ, hafi ætíð fengið góðan fjár-
hagslegan stuðning frá stjórnvöldum. Hann
rifjaði upp að þegar Unglingalandsmót var
síðast haldið á Egilsstöðum árið 2011 hafi
Forvarnagildi íþróttamóta er mikið
Björn Ingimarsson:
sveitarfélagið fengið um 18 milljónir króna
frá hinu opinbera til framkvæmda sem meðal
annars fólust í því að byggja upp íþróttamann-
virki fyrir mótið og styrkja innviði í tengslum
við mótshaldið. Árið 2017 hafi fjárveitingunni
verið breytt. Stuðningur fyrir landsmót hafi
ekki lengur verið á fjárlögum heldur verið sótt
um í sérstakan landsmótssjóð. Fljótsdals-
hérað hafi aðeins fengið fimm milljónir króna
úr sjóðnum í aðdraganda Unglingalands-
mótsins á Egilsstöðum þetta árið. Mótfram-
lag sveitarfélagsins nam 24 milljónum króna.
Björn segir stjórnvöld ekki hafa sýnt mála-
leitunum forsvarsmanna sveitarfélagsins
skilning þegar leitað var eftir mótframlagi frá
hinu opinbera fyrir síðasta mót.
„Ég varð fyrir vonbrigðum. Þetta kom okk-
ur á óvart. En svo virðist sem stjórnvöldum
finnist búið að setja nóg í þetta. Mér finnst
það þröngt sjónarmið,“ segir Björn og ítrekar
forvarnagildi Unglingalandsmóts UMFÍ.
„Við tökum þetta auðvitað á okkur nú. En
menn þurfa að hafa augun opin. Með Ungl-
ingalandsmóti UMFÍ er mikið forvarnastarf
unnið. Gildi mótsins er gífurlegt. Það er ekki
verið að halda mótið fyrir Egilsstaði heldur
fyrir allt landið. Hagsmunir allra eru undir,“
sagði Björn og lagði áherslu á að sökum þess
ættu stjórnvöld að sjá hag í því að styðja við
viðburði eins og Unglingalandsmót UMFÍ.Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs.