Skinfaxi - 01.04.2017, Qupperneq 24
24 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
styrkir fjölda góðra verkefna
Umsóknir í fræðslu- og verkefnasjóð hafa
aldrei verið fleiri. Sjóðurinn hefur heldur
aldrei úthlutað til jafnmargra verkefna og á
þessu ári.
Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ úthlut-
aði í nóvember sl. 6,5 milljónum króna til 65
verkefna. Þetta var önnur úthlutunin úr sjóðn-
um á árinu. Fyrsta úthlutunin var í maí þegar
sjóðurinn veitti rúmum 8,2 milljónum króna
Ungmennafélag Kjalnesinga (UMFK) fékk
fimmtíu þúsund króna styrk úr Fræðslu-
og verkefnasjóði UMFÍ vegna stofnunar
leiklistardeildar innan félagsins.
Ungmennafélög á Íslandi hafa sinnt marg-
víslegum verkefnum í gegnum tíðina. Ung-
mennafélag Kjalnesinga (UMFK) heldur úti
víðtæku félagsstarfi á svæði sínu, að stórum
hluta í samstarfi við Klébergsskóla. Það sinnir
skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi barna
og ungmenna, heldur íþróttamót, þorrablót
og sér um páska- og jólabingó og skötu-
veislu ásamt mörgu fleiru. Í nóvember fékk
ungmennafélagið 50.000 króna styrk úr
til margra verkefna. Heildarúthlutun sjóðsins
á árinu nemur 14,7 milljónum króna til 152
verkefna.
Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ hefur
þann tilgang að styrkja félags- og íþróttastarf
sambandsaðila sem vilja auka menntun og
þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á
íþróttagreinum, í þjálfun, í félagsmálum og
í félagsstarfi.
Rétt til styrkveitingar úr sjóðnum eiga
allir félagar í ungmennafélögum sem eru
virkir í starfi og hafa uppáskrift félags síns
eða sambands til að afla sér aukinnar þekk-
ingar á sérsviði sínu sem gæti nýst við-
komandi félagi, sambandi og ungmenna-
félagshreyfingunni í heild.
Umsóknarfrestir eru 1. apríl og 1. okt.
Úthlutun er sem næst 1. maí og 1. nóv.
Blakdeild Ungmennafélagsins Kormáks fékk í nóvember úthlutað
100.000 króna styrk til uppbyggingar blakíþróttar á sambands-
svæði Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga (USVH).
„Flestir mæta nú orðið í blak í hópíþróttum á Hvammstanga.
Körfubolti er að gera það gott en blakið er í fyrsta sæti. Ástæðan
fyrir því er að það er svo skemmtilegt og búið er að byggja greinina
hægt og rólega upp í sveitarfélaginu með stuðningi Fræðslu- og
verkefnasjóðs UMFÍ,“ segir Sveinbjörg Grétarsdóttir. Hún stundar
blak hjá blakdeild Kormáks á Hvammstanga.
Sveinbjörg segir blak hafa verið stundað á Hvammstanga þegar
hún var yngri. Ástundun hafi hins vegar ekki verið mikil fyrr en hesta-
konan Vigdís Gunnarsdóttir flutti með manni sínum að Sindra-
stöðum árið 2011. Þar reka þau eitt myndarlegasta hrossabú lands-
ins. Vigdís kom frá Grundarfirði og hafði æft blak þar. Þegar norður
var komið ýtti hún undir áhuga sveitunga sinna á íþróttinni og sá
um æfingar. Nú æfa um 30 manns blak, frá 15 ára aldri og upp að
sextugu, á Hvammstanga. Karlaliðið heitir Húnar og kvennaliðið
Birnurnar.
Blakdeild Kormáks fékk í októberlok síðastliðnum styrk úr fræðslu-
og verkefnasjóði UMFÍ upp á 100 þúsund krónur til uppbyggingar
greinarinnar. Félagið hefur áður fengið styrki til uppbyggingar blaks
á Hvammstanga. Sveinbjörg segir styrkina nýtast til að halda helgar-
námskeið í blaki. Í fyrra og nú í október hafi Hilmar Sigurjónsson,
þjálfari blakliðs Hamars í Hveragerði, komið norður til að þjálfa
áhugasama Húnvetninga um heila helgi. Blakdeildin leigði íþrótta-
húsið á Hvammstanga og nýtti styrkinn til að greiða fyrir mat, gist-
fræðslu- og verkefnasjóði vegna stofnunar
leiklistardeildar.
Björgvin Þór Þorsteinsson, formaður UMFK,
segir mikið líf í félaginu og teygist angar
þess sig víða. Leiklistardeildina segir hann
bundna við grunnskólann og sé horft til
þess að leiklist verði valgrein í skólanum.
„Við þurfum að halda unglingunum í ein-
hverju og því varð leiklist fyrir valinu fyrir
14–15 ára. Þetta er á byrjunarreit en hefur
gengið vonum framar. Þau kepptu í Skrekki
og svo höldum við áfram,“ segir hann.
Björgvin Þór Þorsteinsson,
formaður Umf. Kjalnesinga.
U
M
FÍ
Blakið slær í gegn á Hvammstanga
ingu og laun Hilmars. Námskeiðsgjöld iðk-
enda bættust við styrkinn.
Sveinbjörg segir frábært að geta sótt um
styrk hjá UMFÍ svo að félagið geti fengið þjálf-
ara og styrkt uppbyggingu greinarinnar.
Nú er svo komið á Hvammstanga að blak-
deild Kormáks hefur alltaf sent lið á öldunga-
mót í blaki. Tvö lið fóru líka á Íslandsmótið í
blaki. Hilmar skipuleggur æfingar liðanna og
heldur utan um félagið.
Blak hefur verið stundað með skipulögðum hætti á Hvammstanga síðan árið 2011.
Ungmennafélag Kjalnesinga stofnaði
leiklistarfélag fyrir ungmenni á svæðinu