Skinfaxi - 01.04.2017, Qupperneq 25
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 25
Dæmi um fleiri verkefni sem hlutu styrk
úr fræðslu- og verkefnasjóði UMFÍ
• Taekwonodeild Aftureldingar – sjálfsvarnanámskeið
fyrir konur
• Fimleikadeild Stjörnunnar – Þjálfaranámskeið
• Körfuknattleiksdeild Fjölnis – Námskeið og fræðsla um
íþróttasálfræði fyrir iðkendur
• Ungmennafélag Laugdæla – Kortavinna á göngu-,
skokk- og hjólaleiðum
• Ungmennafélag Breiðabliks – Aukin hreyfing eldri
borgara/útbreiðsla
• Körfuknattleiksdeild Ungmennafélag Gnúpverja
– Stofnun nýrrar deildar
• Íþróttafélagið Gerpla – Þróunarverkefni
hópefli/sjálfsstyrking
„Við gætum ekki gert þetta öðruvísi. Styrkur
úr fræðslu- og verkefnasjóði UMFÍ gerir okk-
ur kleift að niðurgreiða námskeiðin, kaupa
reiðtygi og fleira,“ segir Hólmfríður Halldórs-
dóttir. Hún ásamt Berglindi Árnadóttur reið-
kennara og fleirum hafa um nokkurra ára
skeið stýrt reiðskóla fyrir fatlaða og fólk með
þroskahömlun hjá Hestamannafélaginu Herði
í Mosfellsbæ. Hestamannafélagið Hörður er
aðildarfélag UMSK (Ungmennasambands
Kjalarnesþings), sambandsaðila UMFÍ.
Námskeiðin hafa verið mjög vel sótt og
komast færri að en vilja. Hestamannafélagið
hlaut 100.000 króna styrk úr sjóðnum í maí
árið 2017.
Hólmfríður segir styrki hjálpa mikið til við
námskeiðahaldið. En félagið sé nú á milli
stafs og hurðar, það geti ekki auglýst nám-
skeiðin því þá komi fleiri en félagið ræður
við. Af þeim sökum er ekki vitað með vissu
hver eftirspurnin er um allt land. En hún er
mikil, að sögn Hólmfríðar. Biðlað hefur verið
til fleiri félaga að bjóða upp á reiðnámskeið
fyrir fatlaða í öðrum sveitarfélögum. Kallinu
hefur verið svarað og eru námskeið byrjuð á
Akureyri, Siglufirði og víðar.
Í upphafi voru 4-5 nemendur á nokkrum
námskeiðum sem haldin voru að jafnaði einu
sinni í viku. Töluverð ásókn hefur verið í reið-
námskeið frá sveitarfélögum á höfuðborgar-
svæðinu, Reykjanesi og Selfossi og nám-
skeiðin orðin átta á viku. Félagið getur hins
vegar aðeins sinnt þremur námskeiðum á
viku.
Hugmyndin er að stofna sérstakt félag í
áföngum utan um reksturinn í félagi við fleiri
hestamannafélög, sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu, félagasamtök á borð við
Öryrkjabandalag Íslands, Íþróttasamband
fatlaða, Einhverfusamtökin og fleiri.
Gætum þetta ekki án styrksins
Byggðu reiðhöll fyrir námskeiðin
Eitt af þeim markmiðum sem stefnt var að þegar ráðist var í
hönnun reiðhallar Hestamannafélagsins Harðar var að gera
fötluðu fólki kleift að stunda reiðmennsku. Höllin var vígð í
nóvember árið 2009. Fræðslunefnd fatlaðs fólks hjá Hesta-
mannafélaginu Herði var stofnuð um ári síðar. Síðan námið
hófst hefur eftirspurnin vaxið mikið og er nú svo komið að í
september 2017 leitaði stjórn félagsins eftir samstarfi við
hestamannafélög á höfuðborgarsvæðinu um að halda reið-
námskeið fyrir fötluð börn. „Það er gríðarleg eftirspurn eftir
námskeiðunum. Námskeiðahaldið er svo vel sótt að það er
algjörlega sprungið,“ segir Hákon Hákonarson, formaður
Hestamannafélagsins Harðar.
Hákon Hákonarson segir reið-
námskeið félagsins fyrir fatlað
fólk fyrir löngu sprungið.