Skinfaxi - 01.04.2017, Blaðsíða 26
26 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Hallgrímur Óskarsson segir það
hafa haft góð áhrif á bæjarbúa að
halda Landsmót UMFÍ 50+ í bænum
í sumar. Mótið hafi bætt samstöðu
íbúa í Hveragerði.
„Áhrif mótshaldsins á Hveragerði og bæjar-
búa eru margvísleg,“ segir Hallgrímur Óskars-
son, formaður Hamars í Hveragerði, spurður
um áhrifin af því að halda Landsmót UMFÍ
50+ í bænum í sumar. Mótið fór fram í blíð-
skaparveðri og sól dagana 23.–25. júní.
Mótshaldarinn var síður en svo óreyndur
á sínu sviði, hann var Héraðssambandið
Skarphéðinn (HSK).
Fjárhagsleg og félagsleg áhrif
Hallgrímur telur áhrifin vera af tvennum toga.
Í fyrsta lagi hafi þau verið bein og fjárhagsleg
og skilað íþróttafélaginu Hamri verulegum
fjárhagslegum ávinningi. Hin áhrifin hafi ekki
verið síðri en af félagslegum og óræðari toga.
„Það var eftirtektarvert hvað margir bæjar-
búar tóku þátt í mótinu með einum eða öðr-
um hætti. Margir höfðu tekið þátt í mótum
og viðburðum á vegum UMFÍ, sumir í mörg
ár. En aðrir höfðu aldrei gert það, þar á meðal
ég sem var að taka þátt í 50+ í fyrsta sinn.
Þátttakan opnaði augu margra, þetta var svo
skemmtilegt,“ segir Hallgrímur og leggur
áherslu á að hann hafi fundið fyrir einhverju
skemmtilegu á meðan undirbúningi mótsins
stóð.
„Það var ungmennafélagsandinn. Hann er
ekki hluti af fortíðinni. Þvert á móti var hann
sterkur í Hveragerði alla vikuna fyrir mótið.
Og líka á meðan því stóð. Við höfum ekki
fundið fyrir þessu á öðrum mótum í bænum,“
segir Hallgrímur og rifjar upp að við undir-
búning Landsmóts UMFÍ 50+ hafi fólk verið
tilbúið til að redda hlutum og sýna frumkvæði
á áður óþekktum sviðum. „Þarna þurfti ekki
að nefna neitt við neinn, fólk var í samkeppni
um að vera fyrst til að gera eitthvað.“
Fann sterkt fyrir ungmenna-
félagsandanum í Hveragerði
Hallgrímur nefnir sem dæmi fánaborgir
sem voru settar upp í Hveragerði á mánu-
deginum fyrir mót. Þær fóru margar á hliðina
í roki tveimur dögunum síðar. Eftirlitsteymi
fór óumbeðið af stað til að kanna allar
fánaborgir.
Allir taka þátt
Hallgrímur er fullviss um að mótið hafi þjapp-
að bæjarbúum saman. „Þótt eitt íþróttafélag
sé í Hveragerði vinna deildirnar ekki mikið
saman. Fólk var því að kynnast þarna, þvert
á kynslóðir. Og allir að taka þátt,“ segir hann.
Allir ánægðir
með mótið
„Ég skemmti mér konunglega við að
fylgjast með keppnisgreinum og sýning-
um og ætlaði aldrei að geta slitið mig frá
kennslu í línudansi, sem var afar skemmti-
legur og fjölmennur. Landsmótið setti
mikinn svip á bæjarlífið þessa helgi og
vakti athygli víða. Við mótsslit bauð ég
Hveragerði fram aftur sem vettvang
þessa landsmóts en ég held að það hefði
ekki verið gert ef bæði bæjaryfirvöld og
bæjarbúar hefðu ekki verið yfir sig ánægð
með það hvernig til tókst,“ segir Aldís
Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði.
Hallgrímur (annar frá vinstri) tók
meðal annars þátt í utanvegahlaupi
á Landsmóti UMFÍ 50+ í Hveragerði.