Skinfaxi - 01.04.2017, Blaðsíða 27
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 27
Það fyrsta sem Sema Erla Serdar
gerði, þegar hún hóf störf hjá
Æskulýðsvettvanginum, var að
fara á námskeiðið Verndum þau.
Námskeiðin eru fyrir þjálfara,
sjálfboðaliða og starfsfólk
íþrótta- og æskulýðsfélaga.
„Áhugi á námskeiðum Æskulýðsvettvangs-
ins er að aukast. Æ fleiri óska eftir fræðslu um
kynferðisofbeldi og einelti og aðgerðir gegn
þeim hjá okkur. Það er gott að finna fyrir því
að fólk sem vinnur með börnum og ung-
mennum er meðvitað um skyldur sínar og
ábyrgð og vill fræðast um málin,“ segir Sema
Erla Serdar, verkefnastýra Æskulýðsvettvangs-
ins. Hún er önnum kafin þessa dagana við að
bóka á námskeið vettvangsins um fræðslu
í barnaverndarmálum. Námskeiðið heitir
Verndum þau.
Æskulýðsvettvangurinn er samstarfsvett-
vangur UMFÍ, Bandalags íslenskra skáta,
KFUM og KFUK á Íslandi og Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar. Vettvangurinn var formlega
stofnaður sumarið 2012.
Æskulýðsvettvangurinn vinnur að sam-
eiginlegum hagsmunamálum barna og ung-
menna. Tilgangur hans og markmið er að
stuðla að samræðu og samstarfi aðildar-
félaganna á sviði leiðtogaþjálfunar, fræðslu-
og forvarnamála, útbreiðslu og kynningar
sem og á öðrum sviðum eftir því sem þurfa
þykir. Æskulýðsvettvangurinn hefur frá stofn-
un staðið fyrir námskeiðum, ráðstefnum og
öðrum sameiginlegum verkefnum sem lúta
að hagsmunum barna og ungmenna.
400 manns á nám-
skeiði um ofbeldi
Sema Erla hóf störf hjá Æskulýðsvettvangin-
um fyrir um ári. Það fyrsta sem hún gerði var
að fara á námskeiðið Verndum þau. Umsjón-
armenn námskeiðsins eru höfundar sam-
nefndrar bókar. Sema segir námskeiðið skila
miklum árangri.
„Fræðslan skilar sér í heilbrigðara og örugg-
ara starfsumhverfi. Þegar starfsfólk og sjálf-
boðaliðar eru meðvituð um einkenni ofbeld-
is gegn börnum og ungmennum og veit
hvernig það á að bregðast við slíku eru hags-
munir barna og ungmenna tryggðir. „Það er
ofar öllu,“ segir Sema.
Sema segir mikla vitundarvakningu vera í
samfélaginu gagnvart ofbeldi í ýmsum mynd-
um. Á þessu ári hafi um 400 einstaklingar
setið námskeiðin Verndum þau. Gera má ráð
fyrir sambærilegum eða meiri fjölda á næsta
ári og það er fagnaðarefni, segir hún.
Sema bendir á að þegar grunur vakni um
einelti, kynferðisofbeldi eða aðra óæskilega
hegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi séu verk-
ferlar mjög skýrir. Slíkt vanti á mörgum öðr-
um sviðum samfélagsins.
„Það er grundvallaratriði að hafa skýra verk-
ferla því að þá vitum við alltaf hvernig á að
bregðast við þegar svona mál koma upp,“
segir hún. „Verkfærin eru til staðar, þolendur
og gerendur fá nauðsynlega aðstoð, málun-
um er ávallt komið strax í réttan farveg og
þau eru leyst.“
Hatursorðræðan
Æskulýðsvettvangurinn stóð í september s.l.
fyrir ráðstefnu um hatursorðræðu í íslensku
samfélagi. Um 100 manns mættu á ráðstefn-
una og vakti hún mikla athygli í fjölmiðlum,
ekki síst hjartnæm saga knattspyrnumanns-
ins Pape Mamadou Faye, framherja Víkings í
Ólafsvík, um kynþáttahatur og misrétti sem
hann hefur orðið fyrir.
Á að halda aðra ráðstefnu um hatursorðsræðu?
Sema segir það óvíst. „Þetta vandamál er það
stórt að það þarf að fá stjórnvöld, yfirvöld, fjöl-
miðla og almenning til samstarfs. Það þarf
fræðslu, stefnumótunarvinnu og aukið fé í
fræðslu og forvarnir svo að hægt sé að auka
þekkingu og vitund um hatursorðræðu og
alvarlegar afleiðingar hennar,“ segir Sema og
bætir við að skaðsemi hatursorðræðu felist
m.a. í því að með henni sé með markvissum
hætti verið að brjóta einstaklinga niður.
Sema segir að verið sé að skoða næstu
skref. Hún bendir á að alltaf sé hægt að leita
til Æskulýðsvettvangsins og fá fræðslu um
málið, um það hvað hatursorðræða sé og
hvaða alvarlegu afleiðingar hún geti haft.
• Sambandsaðilar Æskulýðsvettvangsins geta sótt námskeið
á vegum hans sér að kostnaðarlausu. Námskeið á vegum
Æskulýðsvettvangsins eru ætluð þjálfurum, starfsfólki og
sjálfboðaliðum íþrótta- og æskulýðssamtaka.
• Alltaf er hægt að tilkynna mál til Æskulýðsvettvangsins á
netfangið fagrad@aev.is. Þar er jafnframt hægt að fá ráð-
gjöf og aðrar upplýsingar um það hvernig eigi að leysa úr
málum. Trúnaðar er gætt við meðferð allra upplýsinga.
„Við erum að tala
um hagsmuni barna
og ungmenna. Þeir
eru alltaf ofar öllu.“
Fólk vill vita hvernig á að
bregðast við ofbeldi