Skinfaxi - 01.04.2017, Qupperneq 28
28 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Björn Grétar Baldursson er yngsti
einstaklingurinn til að setjast í aðalstjórn
UMFÍ í sögu hreyfingarinnar í 108 ár.
Hann var kosinn í stjórnina á 49. sambands-
þingi UMFÍ 2015. Á 50. sambandsþingi
UMFÍ gaf Björn ekki kost á sér til áframhald-
andi setu. Björn sat í tvö ár í aðalstjórn
UMFÍ og í níu ár í Ungmennaráði UMFÍ.
Byrjaði í ungmennaráði UMFÍ
Björn segir að það hafi verið tilviljun fremur en einbeittur vilji hans
sjálfs sem varð til þess að hlutirnir röðuðust svona upp hjá honum
og að hann hafi sest í ungmennaráðið. Hann var þá 16 ára og árið
var 2008.
„Þetta byrjaði allt á því að ég var spurður að því hvort ég vildi
fara á ráðstefnu til Þýskalands. Ég var auðvitað til í það. En þá var
mér sagt að þetta væri um næstu helgi og að ég yrði að skrá mig
í ungmennaráð UMFÍ. Ég hugsaði ekkert út í það, pakkaði bara og
brunaði suður,“ segir Björn Grétar, sem þá var nemandi við Fram-
haldsskólann á Laugum og hafði keppt í frjálsum undir merkjum
Héraðssambands Þingeyinga (HSÞ).
Björn Grétar kom inn í ungmennaráð UMFÍ í stað Gunnars Sigfús-
sonar sem þá var að hætta. Björn Grétar segir ráðstefnuna í Þýska-
landi hafa verið áhugaverða. Hún fjallaði um það hvað félagasam-
tök gætu gert til að virkja sjálfboðaliða og halda í þá. Hann lærði
mikið af þessu sem nýtist honum í félagsstarfi enn í dag.
Björn Grétar segist ekki hafa gert mikið í ungmennaráðinu fyrstu
árin. „Ég var mjög hlédrægur, sat aftast á öllum fundum og vissi í
raun ekki hvert hlutverk mitt væri. Við vorum heldur ekki að gera
mikið í Ungmennaráðinu. Ég upplifði það sem uppfyllingu. Það var
ekki fyrr en við fórum út í stærri verkefni á borð við ungmennaráð-
stefnuna Ungt fólk og lýðræði sem ég fór að láta til mín taka. Þá
færði ég mig framar á fundum. Ég fór líka ósjálfrátt að hafa sterkari
skoðanir og segja frá áliti mínu. Það var líka þá sem ég fann hverju
Ungmennaráðið gat áorkað ef það vildi og hvert það stefndi.“
Utanumhald þarf að vera gott
Björn Grétar segir breytta áherslu á utanum-
haldi Ungmennaráðsins hafa skipt miklu og
hreyft við honum að fara að vinna meira. Þarna
átti það sama við um Ungmennaráð UMFÍ og
önnur verkefni sem ungt fólk kemur að.
„Oft eru hópar ungmenna mataðir, komið
er með hugmyndir til þeirra og sagt hvað þau
eigi að gera. Í ungmennaráði UMFÍ er stjórnin
sett í hendur ráðsins. Starfsmaður UMFÍ vinn-
ur með ráðinu, veitir því stuðning og aðstoð-
ar við fjármögnun á hugmyndum þess. Þegar
ég tók eftir þessu fann ég að ég hafði eitthvað
til málanna að leggja, sjálfstraustið jókst og
ég þurfti að nota gagnrýna hugsun til að
horfa á viðfangsefnin með öðrum augum.
Ef virkja á ungt fólk er farsælast að láta
stjórnina í hendur þess frekar en að láta hina
eldri um að ákveða hvað unga fólkið vilji.
Starfsmaðurinn eða þeir sem eldri eru vinni
svo að því að láta óskir ungmennanna verða
að veruleika eða sýni þeim að öðrum kosti
að hugmyndirnar eigi ekki stoð í veruleikan-
um,“ segir Björn og þakkar Sabínu Halldórs-
dóttur, landsfulltrúa UMFÍ, fyrir ótrúlega gott
starf. „Sabína hefur verið tengiliðurinn okkar.
Hún hefur haldið utan um okkur og verið dug-
leg að spyrja okkur hvernig við viljum láta
hugmyndir rætast. Þar að auki hefur Sabína
reynslu og menntun til að koma okkur
áfram.“
Meira sjálfstæði er gott
Ungmennaráð UMFÍ hefur frá 2009 haldið
ungmennaráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði
á hverju ári og verkefni þau sem fjallað hefur
verið um hafa verið breytileg frá ári til árs.
Björn Grétar segir minnisstæðasta verkefnið
vera ráðstefnuna Stjórnsýslan og við sem var
haldin á Ísafirði 2014.
„Þetta var eins og tilraunaverkefni því að
þarna var öll stjórn ráðstefnunnar sett í hend-
urnar á okkur ungmennaráðinu, allar um-
ræður, spurningar, aðferðin og vinnustofur.
UMFÍ hélt utan um ráðstefnuna og leiddi
okkur á réttar brautir ef við vorum að fara út
af. Vel tókst til þannig að þetta fyrirkomulag
er enn svona,“ segir Björn Grétar.
Meiri og sjálfstæðari vinnubrögð hjá Ung-
mennaráði UMFÍ og aukið þor leiddi til þess
að Björn fékk áhuga á setu í stjórn UMFÍ. Hann
ætlaði hins vegar í fyrstu aðeins að taka sæti
í varastjórn. Um þetta leyti var meðalaldur í
stjórn UMFÍ 47,63 ár. Björn var á þessum tíma
22 ára. Þegar hann tók sæti í stjórninni lækk-
aði meðalaldur stjórnar um átta ár og fór nið-
ur í 39,36 ár. Í aðalstjórn sitja sjö en fjórir í
varastjórn. Fleira spilaði inn í því að á sama
tíma tók Þorgeir Tryggvason, sem er þremur
árum yngri en Björn, sæti í varastjórn. Fyrir
voru líka, undir þrítugu, Hrönn Jónsdóttir í
aðalstjórn og Sigurður Óskar Jónsson í vara-
stjórn.
Björn segist hafa viljað sjá fleiri málsvara
fólks undir 30 ára aldri í stjórn UMFÍ og því
ákveðið að gefa kost á sér.
„Ég átti reyndar enga von á því að komast
í aðalstjórn á þinginu í Vík í Mýrdal. Ég var þá
í Háskóla Íslands að læra tómstunda- og
Björn Grétar
í hnotskurn
· Fæddur í Reykjavík 28. október 1992.
· Búsettur á Akureyri og lærir flug-
umferðarstjórn.
· Í sambúð með Jenný Láru Arnórs-
dóttur. Þau eiga saman soninn
Jökul Loga.
Mælir með
því að ungt
fólk sækist
til áhrifa