Skinfaxi - 01.04.2017, Page 29
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 29
Ungmennafélag Íslands I Sigtún 42 I S. 568 2929 I umfi.is
Hvernig á
að stofna
ungmennaráð?
Björn Grétar segir stjórn Ungmenna-
ráðs UMFÍ hafi oft fengið fyrirspurnir
um það hvernig eigi að stofna ung-
mennaráð. Ljóst sé af því að ráðið sé
öðrum fyrirmynd. Björn segir svarið
liggja í augum uppi: „Lykillinn er
markvisst utanumhald. Það skilar sér
í sterkara ungmennaráði sem veitir
ungu fólki rödd til að tjá sig. Ráð-
stefnan Ungt fólk og lýðræði hefur
verið vopn okkar til að láta í okkur
heyra og ná til fjölmiðla. Og þegar
við erum spurð að því hvað við eig-
um að gera þá svöruðum við:
Stofnið ungmennaráð, sinnið því og
verið virk!“
Hvað get ég gert?
Björn Grétar var 16 ára og hafði engan áhuga á
stjórnmálum og pólitík þegar hann settist í ung-
mennaráð UMFÍ árið 2008. „Mér fannst ég of ungur,
ég bjó úti í sveit og upplifði mig þannig að ég hefði
ekkert vit á pólitískri hugsun enda var ekki verið að
miðla henni til okkar unga fólksins og því höfðum
við ekki áhuga á pólitík. Það sem næst komst henni
var Spaugstofan um helgar. En þessa hugsun þarf
að virkja eins og annað. Margir 15–17 ára unglingar
segjast ekki hafa áhuga á pólitík. Það er algjör vit-
leysa. Þvert á móti er þetta fólkið sem á að vera
virkir þátttakendur í samfélaginu. Það verður að
virkja það,“ segir Björn og áréttar ályktun frá ráð-
stefnunni Ungt fólk og lýðræði vorið 2017.
Ályktunin fól í sér að fulltrúar ungmennaráða fái
að sitja fundi hjá sem flestum nefndum innan sveit-
arfélaga, að æskilegt sé að breyta lögum og sam-
ræma reglur ungmennaráða um land allt með þarfir
ungs fólks að leiðarljósi. Samhugur var um lækkun
kosningaaldurs í sveitarstjórnarkosningum úr 18
árum í 16. „Mín skoðun er sú að það eigi að lækka
kosningaaldur innan sveitarfélaga niður í 16 ára.
Í fyrsta lagi gerir það að verkum að sveitarstjórnir
þurfa að höfða til yngri kynslóðarinnar svo að hóp-
urinn fái áhuga á sveitarstjórnarmálum. Auðvitað
er ekki hægt að höfða til allra. En þeir sem hafa það
geta haft áhrif.“
En hvaða áhrif hafði stjórnarseta á Björn?
„Hún hafði áhrif á mig sem manneskju. Það að
sitja í ungmennaráði og stjórn UMFÍ hefur eflt gagn-
rýna hugsun mína og eflt félagsvitundina. Nú er ég
orðinn meðvitaðri um nærumhverfi og samfélagið
mitt en áður. Nú er ég farinn að hugsa:
Hvað get ég gert?“
félagsmálafræði og sá þetta haldast í hendur.
En mikill tími fór í að átta mig á UMFÍ. Það
var ekki eins klippt og skorið og ég hélt og
allt flóknara en í ungmennaráðinu. Á þess-
um tíma var ég að ganga í gegnum miklar
breytingar í einkalífinu. Ég trúlofaðist, flutti
norður á Akureyri og eignaðist barn. Þetta
allt hafði áhrif á vinnuna hjá UMFÍ, því gat ég
ekki komið öllu til skila sem ég vildi og hætti
af þeim sökum,“ segir Björn Grétar.
Á ungt fólk þá ekki að fara í stjórn UMFÍ?
„Jú, auðvitað. En það tekur tíma að læra
og venjast stjórnarstörfum. Ég myndi byrja á
því að vera virkur innan ungmennafélagsins
míns og bjóða mig síðan fram í varastjórn
UMFÍ. Þar er gott að kynnast starfsemi stjórn-
ar UMFÍ og vekja athygli á sér. Ég hefði viljað
vera tvö ár í viðbót. En ég taldi farsælla að
víkja til hliðar í nokkur ár fyrir einhverjum sem
gæti gert betur en ég. Ég mundi vilja koma
aftur eftir nokkur ár,“ segir Björn Grétar og
leggur áherslu á að hann sé mjög spenntur
fyrir stjórn UMFÍ sem nú situr.
„Það eru miklar breytingar í gangi hjá UMFÍ
sem ég hlakka til að sjá,“ segir Björn Grétar
að lokum.
RÁÐSTEFNUR
Ungs fólks og lýðræðis
2009 – Eru ungmennaráð
gjallarhorn ungs fólks?
Akureyri
2010 – Lýðræði
og mannréttindi
Dalabyggð
2011 – Ungt fólk
og fjölmiðlar
Hveragerði
2012 – Fjölmiðlar og mann-
réttindi Hvolsvöllur
2013 – Þátttaka
ungs fólk í
skipulagsmálum
sveitarfélaga
Egilsstaðir
2014
– Stjórnsýslan
og við – áhrif
ungs fólks á
stjórnsýsluna
Ísafjörður
2015 – Margur verður
af aurum api – réttindi
og skyldur ungs fólks
á vinnumarkaði
Stykkishólmur
2016 – Niður með grímuna
– geðheilbrigði ungmenna
á Íslandi Selfoss
2017 – Ekki bara framtíðin
– ungt fólk, leiðtogar nútímans
Laugarbakki í Miðfirði