Skinfaxi - 01.04.2017, Blaðsíða 30
30 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
„Vefsíða eins og www.umfi.is á að vera öflugt
miðstykki í góðri upplýsingagjöf og virka vel
á helstu tækjum og tólum,“ segir Arnór Boga-
son, hönnuður hugbúnaðarfyrirtækisins
Vettvangs. Fyrirtækið hefur unnið með starfs-
fólki UMFÍ lungann úr árinu við að búa til nýja
vefsíðu.
Á vefsíðunni eru fréttir af UMFÍ og sam-
bandsaðilum og myndasafn auk upplýsinga
um úthlutanir úr sjóðum og hægt að skoða
eldri tölublöð Skinfaxa. Þar eru líka allir sam-
bandsaðilar UMFÍ með aðgang að CoreData,
Nóra og Felix.
Nýja vefsíðan er afrakstur endurmörkunar
á vörumerki UMFÍ sem HN Markaðssamskipti
hafa unnið að með UMFÍ. Þar var allt kapp
lagt á að laða fram rétta andann, ungmenna-
félagsandann, yngja vörumerkið upp og nota
aðra stafagerð en áður. Fleira úr endurmörkun
UMFÍ mun líta dagsins ljós síðar.
Vettvangur sérhæfir sig í gerð vefsíðna í
vefhugbúnaðarkerfinu Umbraco. Kerfið er
tiltölulega einfalt í notkun fyrir leikmenn en
öruggt og mjög sveigjanlegt. Kerfið er ákjós-
anlegt fyrir þá sem vilja sveigjanleika og að
geta bætt tímabundið við síðum. Af þeim
sökum hefur notendum fjölgað nokkuð upp
á síðkastið. Umbraco kemur upprunalega frá
Danmörku eins og margt annað gott sem
UMFÍ hefur sótt sér í gegnum tíðina.
Arnór segir að þegar búin sé til ný vefsíða
gefist kærkomið tækifæri til að taka til í skipu-
laginu og hagræða því sem eigi að koma á
framfæri og sem telja má að gagnist notend-
um. Öðru fremur sé markmið vefsíðu ung-
mennafélaga og íþróttafélaga – eins og
annarra – að miðla upplýsingum til notenda.
Vefsíða félaga á að upplýsa notendur
Hvernig kemur félagið
þitt upplýsingum á
framfæri?
Hvað viltu að það geri
betur?
Þetta er gott að skoða
með gagnrýnum hætti.
Arnór hjá Vettvangi
segir að þegar ný
vefsíða er búin til
gefist kærkomið
tækifæri til að taka
til í skipulagi
fyrirtækisins
á netinu.
Fyrirtækið Vettvangur bjó til nýja vefsíðu fyrir UMFÍ og var hún tekin í notkun í október.
Vissir þú …
Sambandsaðilar UMFÍ / formenn Félög með beina aðild að UMFÍ / formenn
... að hjá félögum með beina
aðild er hlutfallið ein kona á
móti tíu körlum ...
... að það eru jafnmargar
konur og karlar formenn
sambandsaðila UMFÍ ...