Skinfaxi - 01.04.2017, Page 31
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 31
Í haust hófst nýtt nám í Opna háskólanum
í Reykjavík sem hugsað er fyrir stjórnendur
í þriðja geiranum. Til þriðja geirans teljast
frjáls félagasamtök, sjálfseignarstofnanir
og sjóðir (non-profit sector) eða félög þar
sem markmið starfseminnar er ekki að skila
hagnaði.
Námslínan er samstarfsverkefni Opna há-
skólans í HR og Almannaheilla sem eru sam-
tök þriðja geirans og vinna þau að sameigin-
legum hagsmunamálum fyrir almannaheilla-
samtök og sjálfseignarstofnanir sem starfa í
almannaþágu.
Kennslan byggist upp á sjö kennslulotum
þar sem farið er yfir hagnýt verkefni og störf
stjórnenda innan þriðja geirans hér á landi
og erlendis. Einnig er áhersla lögð á persónu-
Nám fyrir stjórnendur
félagasamtaka
Námskeiðið samanstendur af eftirtöldum
námslotum sem hver um sig er 8 klst.
• Frjáls félagasamtök og réttarumhverfi
• Forysta og stjórnun í þriðja geiranum
• Stefnumótun almannaheillasamtaka
• Mannauðsstjórnun og stjórnun sjálfboðaliða almanna-
heillasamtaka
• Fjármálastjórnun, fjáraflanir og samningatækni
• Hagnýt verkefna- og viðburðastjórnun
• Markaðssetning og samfélasmiðlar
Ragnheiður Sigurðar-
dóttir, landsfulltrúi UMFÍ,
er ein þeirra sem stunda
námið
„Námið gefur góða innsýn í umhverfi og
rekstur frjálsra félagasamtaka. Hópurinn
er líflegur og oft kvikna áhugaverðar og
skemmtilegar umræður. Kennararnir eiga
það sameiginlegt að búa yfir mikilli þekk-
ingu á sínu sviði. Þeir ná að halda manni
við efnið allan daginn.“
UMFÍ er einn samstarfsaðila námsins
„Starf ungmenna- og íþróttafélaga er gríðarlega umfangsmikið og
víðtækt. Félögin og reyndar samfélagið allt er mjög metnaðarfullt
og eðlilega eru gerðar miklar kröfur til stjórnenda um fagleg vinnu-
brögð. Það er mikilvægt að bjóða upp á nám sem stjórnendur og
starfsmenn ungmenna- og íþróttafélaga geta nýtt sér. Þar eru þau
verkfæri sem nýtast nútímasamfélaginu til heilla,“ segir Auður Inga
Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.
lega þróun þátttakenda með það að leiðar-
ljósi að efla og styrkja stjórnendur til að tak-
ast á við áskoranir sem oft eru ólíkar þeim
sem stjórnendur á almennum vinnumarkaði
standa frammi fyrir.
Að námslínunni koma margir af færustu
sérfræðingum Háskólans í Reykjavík, Háskóla
Íslands og Háskólans á Bifröst auk samstarfs-
aðila úr íslensku atvinnulífi sem allir hafa
mikla reynslu á sínu sviði.
Núna eru nemendur 18 talsins og koma
þeir frá fjölmörgum félagasamtökum. Þeir
segjast ánægðir með námið, það sé hagnýtt
og vandað, með fjölbreyttum kennslu-
aðferðum og ólíkum kennurum.
Nú þegar er byrjað að undirbúa að fara
aftur af stað með námið haustið 2018. Aðild-
arfélög UMFÍ hljóta sérkjör fyrir sitt fólk.