Skinfaxi - 01.04.2017, Page 32
32 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Lisbeth Trinskjær er skólastjóri lýð-
háskóla í Danmörku. Hún var stödd
hér á landi í haust ásamt fleiri lýð-
háskólafrömuðum af Norðurlönd-
unum. Lisbeth Trinskjær undrast
að ekki skuli vera fyrir löngu búið
að setja lýðháskóla á laggirnar hér
á landi.
„Ég er alveg undrandi á því að lýðháskólar
skuli ekki vera til á Íslandi. Þeir auka víðsýni
nemenda, skapandi hugsun, fá ungmenni til
að hugsa svolítið öðruvísi og taka áhættu auk
þess að draga úr brottfalli úr skólum,“ segir
Lisbeth Trinskjær, formaður samtaka lýð-
háskóla í Danmörku.
Hún var fram á haust líka formaður stjórnar
samtaka lýðháskóla á Norðurlöndunum.
Trinskjær er skólastjóri lýðháskólans Ubberup
Højskole í Danmörku. Hún fundaði hér á landi
í haust ásamt fleirum úr stjórn norrænu sam-
takanna nú á haustmánuðum.
Trinskjær og fleiri í stjórninni undruðust
að hér skuli ekki vera eiginlegir lýðháskólar.
Slíkir skólar auðgi samfélagið. Án lýðháskóla
sé menntavegurinn ansi einsleitur og fátt um
möguleika fyrir ungt fólk í námi.
Bæta lýðháskólar í raun og veru einhverju við?
„Jú, þegar fólk fer í lýðháskóla þá kynnist það
fleiru en ef það gengi hefðbundnari mennta-
veg. Í lýðháskólunum fá nemendur að kynn-
ast mörgu sem þeir vissu ekki um áður og fá
ekki að kynnast í öðrum skólum. Margir sem
fara í lýðháskóla segja að víðsýni þeirra hafi
aukist. En svo er það fleira. Í venjulegu námi
er einblínt á frammistöðu nemenda og því
þora þeir ekki að taka áhættu í námi sínu.
Telur lýðháskóla
draga úr brottfalli
úr námi
Lýðháskólar gera út á forvitni nemenda og
því má taka áhættu þar. Þar uppgötva nem-
endur nýjar hliðar á sjálfum sér, kannski nýtt
áhugasvið og læra jafnvel nýtt tungumál.
Það sem skiptir ekki síður máli er að í lýðhá-
skóla læra nemendur að þekkja rætur sínar,
samfélagið, hefðir og menningu. Nemendur
fá því meiri þekkingu á allan hátt í lýðháskóla.
Þess vegna skiptir máli fyrir Íslendinga að
hafa lýðháskóla.“
Minna brottfall úr skóla
Fjöldi lýðháskóla er á hinum Norðurlöndun-
um og hafa margir Íslendingar farið utan til
náms, bæði með og án stuðnings UMFÍ. Trins-
kjær segir suma setja lýðháskóla skör neðan
en aðra framhaldsskóla. Það sé ekki rétt.
„Margir halda að nám í lýðháskóla sé ekki
eins gott, ekki jafn metnaðarfullt eða krefj-
Lisbeth Trinskjær undrast að ekki skuli
vera fyrir löngu búið að setja lýðháskóla
á laggirnar hér að norrænni fyrirmynd.