Skinfaxi - 01.04.2017, Síða 35
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 35
Í NIH
Í NIH er best að vera,
alltaf er þar nóg að gera.
Íþróttir við erum að stúdera
og lífið hér er auðvelt að fúnkera.
Í NIH er alltaf gaman
við eyðum miklum tíma saman.
Hygge er það sem við gerum mest
en stundum höldum við líka fest.
Í NIH upplifir maður mikið
félagslífinu þarf að sinna
og lífstíðarvini er hér að finna,
þægindaramma maður dustar af rykið.
Í NIH við ferðumst víða
Í Amsterdam-hlaupi er mikil ástríða.
Afþreying á La Santa lét‘mann fá valkvíða
og að gera þríþraut lét kroppinn svíða.
Í NIH er löng matarröð
og tungumálið var fyrst kvöð
þó við séum öll mishröð
að þá í NIH erum við öll lífsglöð.
– Guðbjörg Skúladóttir.
„Í skólanum hef ég kynnst fólki frá Argent-
ínu, Ástralíu, Danmörku, Eistlandi, Finnlandi,
Færeyjum, Japan, Kosta Ríka, Kína, Kólum-
bíu, Mexíkó, Noregi, Nýja-Sjálandi, Portúgal,
Skotlandi, Svíþjóð, Tékklandi, Úganda og
Þýskalandi. Í skólanum geta æfingarnar oft
verið strembnar. En þær eru samt oftast há-
punktur dagsins. Mikil áhersla er lögð á tækni
til að fyrirbyggja meiðsli. Við fylgjum sér-
sniðnu lyftingaprógrammi til að bæta styrk
og snerpu. Í skólanum hef ég lokið þjálfara-
námskeiði 1 fyrir trampólín og fíbergólf og
jafnframt er ég kominn með dómararéttindi
í DMT (Double Mini Trampoline) sem er ný-
leg grein innan fimleikanna og hefur ekki
enn verið reynt á Íslandi. Ef af því verður get-
ur reynsla mín hér í Danmörku nýst vel við
uppbyggingu á því sviði.“
– Konráð Elí Sigurgeirsson er nemandi
við fimleikalýðháskólann í Ollerup.
„Skólinn er þvílík upplifun og þessi önn er
aðeins meira en hálfnuð. Það er rosa gaman
hérna og ég er búinn að sjá og læra alls konar
hluti, orðinn miklu fróðari um líkamann og
hugann varðandi æfingar og félagslíf. Mér
finnst skemmtilegast þegar við erum á fjalla-
hjólaæfingum og erum að skoða nýjar braut-
ir og keppa! Svo er þetta eitthvað alveg nýtt
fyrir mér og alveg nýr skóli sem var að byrja
þannig að hann er kannski ekki alveg eins og
allir hinir gömlu en það er rosa gaman hérna
og ég hvet alla sem langar til að prufa lýð-
háskóla að láta vaða!“
– Kristinn Jónsson er nemandi
við lýðháskólann Hald Ege.
Næsti umsóknarfrestur til þess
að sækja um styrk til náms við lýð-
háskóla í Danmörku er til 10. janúar
nk. Nánari upplýsingar eru að finna
á heimasíðu UMFÍ www.umfi.is