Skinfaxi - 01.04.2017, Side 41
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 41
V ignir Örn Pálsson er formaður Héraðssambands Stranda-
manna (HSS). Sambandið var stofnað 19. nóvember árið
1944 og fagnaði því 73 ára afmæli á árinu. Vignir Örn Páls-
son hefur verið formaður HSS með hléum síðan árið 1994.
Hvað er að frétta? Það er allt gott að frétta héðan frá Hólma-
vík. Í nóvember fóru átta krakkar frá HSS á Silfurleika ÍR. Það var
nokkuð gott. Fjórir 11 ára og eldri voru í alvörugreinum en tvær
sex ára stelpur í þrautabraut. Það er flott að þau yngri fái að taka
þátt í keppnisgreinum. Annars leist okkur vel á að það væri loksins
að koma almennilegur skíðasnjór. Hér var norðanbylur í viku. Ein-
hverjir komust á skíði. En svo gerði suðvestanátt og tók að hlýna á ný.
Samstarf er gott Sonur minn hefur verið að æfa körfubolta
með Íþróttafélaginu Vestra á Ísafirði og er þetta þriðji veturinn.
Það er gott hjá Vestra að sækja sér liðsmenn í félagið víða að enda
hefur yngri iðkendum fækkað, bæði á Vesturlandi og Vestfjörðum.
Drengurinn, sem er fæddur árið 2003, æfir með drengjum sem eru
ári eldri en hann. Þeim hefur gengið vel. Allir leggjast á eitt, meira
að segja þjálfari Vestra sem hefur ekið til móts við okkur feðgana og
við mæst á miðri leið þegar ég hef ekið syninum vestur í keppni.
Samstarfið er slíkt að það mætti alveg kalla það vesturbandalag.
Er boðið upp á nýjungar á svæði HSS? Ungmenna-
félagið Geisli og grunnskólinn á Hólmavík hófu samstarf í haust.
Það svipar til Íþróttaskóla HSV en nemendur í 1.–4. bekk skólans
stunda íþróttir fyrir hádegi á virkum dögum. Þetta er í þróun en er
jákvætt því það brýtur upp daginn hjá börnunum. Svo eru æfing-
arnar á skólatíma og því losna foreldrar þeirra við allt skutl. Þarna
fá krakkarnir kynningu á ýmsum íþróttagreinum.
HVAÐ
ER AÐ
FRÉTTA?
Samvinna
af hinu góða
HSS í hnotskurn
• HSS nær yfir þrjú sveitarfélög, frá
hreppamörkum Strandabyggðar og
Húnaþings vestra, að Kaldalóni og
botni Ísafjarðardjúps.
• Aðildarfélög HSS eru Umf. Hvöt
á Blönduósi, Umf. Geisli í Súðavík,
Umf. Neisti á Drangsnesi, Sundfélagið
Grettir í Bjarnarfirði, Umf. Leifur heppni
í Árneshreppi, Skíðafélag Stranda-
manna og Golfklúbbur Hólmavíkur.
• Iðkendur eru um 100 á öllum aldri.