Skinfaxi - 01.04.2017, Side 42
42 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags Íslands:
Laugar
Framhaldsskólinn á Laugum,
Laugum Reykjadal
Vopnafjörður
Vopnafjarðarhreppur, Hamrahlíð 15
Hólmi NS-56 ehf., Hafnarbyggð 23
Egilsstaðir
Skrifstofuþjónusta Austurlands ehf.,
Fagradalsbraut 11
Héraðsprent ehf., Miðvangi 1
Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf.,
Einhleypingi 1
K lassík ehf., Selási 1
Bókráð, bókhald og ráðgjöf ehf.,
Miðvangi 2–4
Seyðisfjörður
Seyðisfjarðarkaupstaður,
Hafnargötu 44
Neskaupstaður
Rafgeisli Tómas R. Zoëga ehf.,
Hafnarbraut 10
Höfn í Hornafirði
Framhaldsskólinn í A-Skaftafellssýslu
Nýheimum
Sveitarfélagið Hornafjörður,
Hafnarbraut 27
Skinney - Þinganes hf., Krossey
Selfoss
Vélaverkstæði Þóris ehf., Austurvegi 69
Gesthús Selfossi ehf., Engjavegi 56
Flóahreppur, Þingborg
Svavar Á. Sveinsson, Dalbraut 1 Rh.
Hveragerði
Hveragerðissókn, Hverahlíð
Þorlákshöfn
Sveitarfélagið Ölfus, Hafnarbergi 1
Laugarvatn
Menntaskólinn að Laugarvatni
Hvolsvöllur
Héraðsbókasafn Rangæinga,
Vallarbraut 16
Kirkjubæjarklaustur
Hótel Laki ehf., Efri-Vík
Kirkjubæjarstofa, Klausturvegi 2
Skaftárhreppur, Klausturvegi 15
Geirland ehf., Geirlandi
Vestmannaeyjar
Vinnslustöðin hf., Hafnargötu 2
Suðurprófastsdæmi, Búhamri 11
Guðjón Örn Jóhannsson
„Sjálfboðaliðastarfið gefur
mér tækifæri til að gera
það sem ég hef brenn-
andi áhuga á. Það er gef-
andi og ég mæli með því,“
segir Guðjón Örn Jóhanns-
son, íþróttakennari á
Sauðárkróki. Hann heldur
utan um Vinaliðaverkefni
á Íslandi, er í stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls og á
þrjár stelpur á aldrinum 9–17 ára sem æfa bæði frjálsar
íþróttir og körfubolta.
Guðjón segist hafa unnið sjálfboðaliðastörf af marg-
víslegu tagi í um 20 ár. Auk þess sem áður var getið hef-
ur hann starfað í foreldrafélögum og tekur einnig þátt í
félagsskap í skólanum sem málar á vorin fyrir fólk sem
þarf á hjálp að halda við slík verkefni.
Allt eru þetta störf sem Guðjón hefur gaman af.
„Ég tek ekki að mér sjálfboðaliðastarf nema mér finn-
ist gaman að því. Ég hef nóg að gera af því sem mér
finnst skemmtilegt,“ segir hann og bætir við að hann fái
þakklæti að launum fyrir sjálfboðaliðastarfið, sem fólk
fái yfirleitt ekki fyrir launuð störf.
Dagný Finnbjörnsdóttir
„Það er oft mjög mikið að
gera hjá mér. En þetta er
skemmtilegt. Þegar elsti son-
ur minn fór að æfa körfu-
bolta fylgdi ég með. Það
skiptir máli að börnin finni
að maður hafi áhuga og
hvetji þau áfram,“ segir
Dagný Finnbjörnsdóttir.
Hún er 28 ára og býr í Hnífsdal, er húsmóðir, menntaður
snyrtifræðingur og er í fjarnámi við háskóla.
Dagný er ötul í sjálfboðaliðastarfi. Hún æfði körfu-
bolta á árum áður og er í stjórn barna- og unglingaráðs
körfuknattleiksdeildar Vestra. Hún er líka formaður
Sambands vestfirskra kvenna og er í félagi kvenna í
atvinnurekstri.
Þegar Dagný fór að vinna sem
sjálfboðaliði í barna- og ungling-
aráði körfuknattleiksdeildarinnar
fann hún sylluna sína. „Þegar ég
fór að vinna með börnunum fann
ég að það sem ég vildi í raun og
veru var að læra var að verða
grunnskólakennari,“ segir hún og
viðurkennir að stundum sé mikið
að gera. Þá skipti máli að eiga
góða dagbók.
Erla Gunnlaugsdóttir
„Það er afar skemmti-
legt að kynnast frá-
bæru fólki þegar maður
starfar sem sjálfboða-
liði,“ segir Erla Gunn-
laugsdóttir, 22 ára
nemi á Austurlandi.
„Ég var fyrst sjálfboða-
liði þegar ég var svona
10–12 ára, á yngri barna móti sem fram fór á Vilhjálms-
velli. Mér finnst gaman að sjá gleðina og ánægjuna hjá
keppendum og áhorfendum á mótum og hátíðum. Það
er gaman er að finna að með sjálfboðaliðastarfinu hef
ég aukið ánægju bæði hjá mér og öðrum. Ég er aðal-
lega sjálfboðaliði á íþróttaviðburðum og það gefur það
mér kost á að kynnast mismunandi íþróttum og sjá
ánægjuna sem fylgir almennri hreyfingu.“
Hafsteinn Snær Þorsteinsson
„Það er gaman að vera
nálægt fólki sem er ánægt
með það sem maður er að
gera. Þannig líður mér best,“
segir Hafsteinn Snær Þor-
steinsson. Hann er 19 ára og
hefur verið ljósmyndari á
Unglingalandsmótum og
Landsmótum UMFÍ um
nokkurra ára skeið – hefur ætíð boðið sig fram og unnið
frábærlega vel af einskærum áhuga í sjálfboðavinnu.
Hann fór fyrst að taka myndir á Unglingalandsmóti
UMFÍ á Höfn í Hornafirði um verslunarmannahelgina
árið 2013. Þá var hann 15 ára gamall.
Mikið af myndunum, sem UMFÍ notar, hefur Haf-
steinn tekið. Hann tók meðal annars forsíðumyndina
á Skinfaxa, tímariti UMFÍ, sem kom út fyrir síðasta
Unglingalandsmót.
Guðmunda Ólafsdóttir
„Það er alltaf gaman að vera sjálfboðaliði því að ég finn
er að gera samfélaginu gagn,“ segir Guðmunda
Ólafsdóttir. Hún er formaður frjálsíþróttaráðs HSK
og formaður Umf. Þjótanda í Flóahreppi en hefur
verið sjálfboðaliði frá unga aldri.
Guðmunda er 28 ára og telur að hún hafi verið
um 12 ára þegar hún fór að selja jólapappír í sjálf-
boðavinnu fyrir ungmennafélagið. Þegar hún hafði
aldur til fór hún að mæla í stökkum og fleira. Guð-
munda segir þó geta stundum verið erfitt að vera
sjálfboðaliði, sérstaklega þegar hún þurfi að virkja
fleiri með sér og búa til hóp og vinna gott verkefni.
Alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða
Árið 1985 ákváðu Sameinuðu þjóðirnar að
5. desember hvert ár skyldi verða alþjóðlegur
dagur sjálfboðaliða. Tilgangurinn með degin-
um er að vekja athygli á framlagi sjálfboðaliða
í samfélaginu. Misjafnt er, eftir löndum og
tíma, hvernig sjálfboðin störf eru skilgreind.
Innan íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar eru
ástæður þess að fólk tekur að sér sjálfboðaliðastörf
meðal annars þær að með þeim hætti getur fólk kynnst
öðrum foreldrum, þjálfurum og stjórnarmönnum í félög-
um og þannig fullnægt félagslegum þörfum sínum
ásamt með því að hjálpa félagi sínu til að ná settum mark-
miðum íþróttarinnar. Jafnframt veita sjálfboðaliðastörfin
fólki tækifæri til að læra leikreglur og kynna sér rekstur
félagasamtaka og almenn félagsstörf. Þátttaka og stuðn-
ingur foreldra skipta börn og ungmenni miklu máli og
auka líkurnar á að þau haldi áfram að stunda íþróttir.
Innan aðildarfélaga UMFÍ starfa hundruð sjálfboða-
liða sem leggja á sig ómælda vinnu, samfélaginu til
gagns og hagsbóta. Án þessarar miklu vinnu, sem sjálf-
boðaliðarnir leggja af mörkum, væri hið góða og viða-
mikla starf, sem unnið er í aðildarfélögum UMFÍ, ekki
til. Störf sjálfboðaliða skipta því ekki aðeins miklu máli
fyrir aðildarfélög UMFÍ heldur eru þau ómetanleg fyrir
íslenskt samfélag.
UMFÍ fagnar degi sjálfboðaliðans og færir öllum sjálf-
boðaliðum einlægt þakklæti fyrir óeigingjarnt starf
þeirra. Bestu þakkir!
Hvað gefur það fólki að sinna sjálfboðaliðastarfi?
Malarhöfða 8 · 110 Reykjavík
Sími 577 2727 · Fax 577 2737
www.blikk.is
Snæfellsbær