Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2019, Blaðsíða 10

Skinfaxi - 01.02.2019, Blaðsíða 10
10 SKINFAXI UMSK HSK USVS USÚ UÍA HSÞ UMSE UÍF UMSS USAH USVH HSS HSV HSB HHF UDN HSH UMSB ÍBR ÍBH ÍS ÍRB ÍBV ÍA ÍBA Tillaga um aðild íþróttabandalaga að UMFÍ verður á dagskrá sambandsþings UMFÍ í október. Formaður vinnuhóps um málið segir það stórt framfaraskref og að það sé í samræmi við stefnu UMFÍ um að allir séu með og getur styrkt UMFÍ gríðarlega mikið. „Ég sé fyrir mér að saman getum við orðið ein stór heild, lands- samband með sterka samningsstöðu og öflugur málsvari fyrir almenningsíþróttir á Íslandi. Það er nú eða aldrei. Við verðum að fullorðnast og ákveða hvað við viljum vera, landshlutasam- tök eða kröftug fjöldahreyfing allra íþróttahéraða landsins sem hlustað er á,“ segir Guðmundur Sigurbergsson, stjórnarmaður í UMFÍ og formaður vinnuhóps um aðild íþróttabandalaga að UMFÍ. Sambandsþing UMFÍ verður haldið á Laugarbakka í Miðfirði í október. Á dagskrá þingsins verður aðildarumsókn bandalag- anna að UMFÍ. Málið var á dagskrá þingsins, sem haldið er á tveggja ára fresti, árið 2017. Á þinginu voru tillögur um aðild bandalaganna ýmist felldar eða vísað frá. Tillögur um breyting- ar á lögum, sem tengdust inngöngunni, náðu ekki 2/3 hluta atkvæða en þó var meira en helmingur þingfulltrúa sem studdi lagabreytingarnar eða 63 af 109. Tólf sátu hjá og voru 34 á móti. Þar sem lagabreytingin komst ekki í gegn var aðildar- umsóknin ekki talin þingtæk. Boðað var til sambandsráðsfundar sérstaklega vegna málsins í janúar 2018 til að svara ákalli hreyf- ingarinnar um áframhaldandi samtal um aðild íþróttabandalag- anna að UMFÍ. Stjórn UMFÍ er einróma í afstöðu sinni og telur inngöngu bandalaganna skref fram á við fyrir ungmennafélagshreyfing- una, það sé hreyfingunni til hagsbóta að öll íþróttahéruð lands- ins hafi möguleika á því að starfa í ungmennafélagshreyfingunni. Sameiginlegir kraftar nýtist betur til framtíðar. Aðildin sé jafn- framt í samræmi við stefnu UMFÍ um að allir séu með á eigin forsendum. Kraftur þess að vinna saman Guðmundur telur það stórt og mikilvægt skref fyrir þróun ungmenna- og íþróttahreyfingarinnar á Íslandi gerist íþróttabandalögin aðilar að UMFÍ. Það geti skipt sköpun þegar fram í sækir. „Menntamálaráðherra kynnti nýverið stefnumótun í íþróttamálum til ársins 2030. Af henni má greina ýmsa þætti, meðal annars mögulega endurskoðun á íþrótta- héruðum og skarpari áherslur í verka- skiptingu verkefna á milli UMFÍ og ÍSÍ. Við þurfum að vera undirbúin og reiðubúin til að bregðast við breyttum þörfum samfélagsins og takast á við verkefni framtíðar- innar. Það gerum við best saman. Við hjá UMFÍ höfum góða tengingu við félögin í landinu og höldum stóra viðburði á borð við Unglingalandsmót UMFÍ. Íþróttabandalögin búa jafnframt yfir mikilli þekkingu á sama hátt og núverandi sambandsaðilar UMFÍ. Í samræðum okkar sjáum við fyrir okkur að allir geti sótt í þekkingarbrunna annarra. Við það styrkjumst við gríðarlega saman og getum eflt íþróttalíf landsins. Það eru þessir sameigin- legu kraftar sem bindur okkur saman. Ef ekki verður hver í sínu horni og erfiðara að sækja fram,“ segir Guðmundur og leggur áherslu á að forysta sambandsaðila UMFÍ horfi til framtíðar þegar snúi að umsókn íþróttabandalaga að UMFÍ. „Ég – og stjórn UMFÍ – er fullviss um að með þessu skrefi verði til tækifæri, svigrúm til að verða öflugri málsvari íþróttahéraða á Íslandi. En það sem líka skiptir máli er að sameiginlegir kraft- ar auka skilvirkni,“ segir Guðmundur. Hagsmunir núverandi sambandsaðila varðir UMFÍ á 13,33% hlut í Íslenskri getspá á móti ÍSÍ og ÖBÍ. Sam- bandsaðilar UMFÍ fá í hverjum mánuði greiðslur vegna eignar- hlutar UMFÍ og skiptir það sköpum. Eðlilega hafa forsvarsmenn í ungmennafélagshreyfingunni áhyggjur af því að sneið þeirra minnki með aðild íþróttabandalaga að UMFÍ. Guðmundur segir að það sé búið að gera ráð fyrir hagsmun- um núverandi sambandsaðila við inngöngu. Búið verði svo um hnútana að í kjölfar aðildar verði leitað til ÍSÍ um endurskipulag skiptingarinnar og fái íþróttabandalögin ekki aðgang að lottó- fjármagninu fyrr en UMFÍ og ÍSÍ hafi samið upp á nýtt, þannig séu hagsmunir núverandi sambandsaðila tryggðir. Til viðbótar þurfi með sama hætti og við aðrar lagabreytingar víðtæka sátt um málið eða 2/3 hluta atkvæða svo lögum um lottóið verði breytt. UMFÍ verður öflugra landssamband

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.