Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2019, Blaðsíða 13

Skinfaxi - 01.02.2019, Blaðsíða 13
 SKINFAXI 13 FINNST FÁIR HAFA SKOÐAÐ STARF UMFÍ „Það kom mér á óvart að svo virðist sem lítið sé talað um það hvaða gildi viðburðir UMFÍ hafa fyrir ungmenni og fáir hafa skoðað starfið,“ segir Erla. Hún er fædd árið 1995 og 24 ára. Þremur árum áður en hún fæddist var Unglingalandsmót UMFÍ haldið í fyrsta sinn. Erla er ungmennafélagi fram í fingurgóma, ólst upp við að fara á Landsmót UMFÍ og taka þátt í viðburðum ungmenna- félagshreyfingarinnar. Hún hefur sjálf tekið þátt í sex Unglinga- landsmótum, unnið fyrir sambandið sitt, sem er UÍA, og auk þess tekið þátt í umræðupartýum UMFÍ, ráðstefnunni Ungu fólki og lýðræði og gert margt fleira. Hún var meðal annars starfs- maður UÍA þegar Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Egils- stöðum um verslunarmannahelgina 2017. Erla, sem ólst upp á Egilsstöðum, segir undarlegt að á ungl- ingsárunum hafi hún iðulega verið sú eina í sínum bekk sem fór á Unglingalandsmót UMFÍ. Almennt hafi ekki margir í árgangi hennar farið á mótin. „Þetta breyttist reyndar strax þegar mótið var haldið á Egilsstöðum árið 2011 en þá vissu fleiri af því og héldu áfram að fara á mótin eftir það,“ segir Erla og telur mikil- vægt að mótið sé haldið sé sem víðast um landið svo að fólk kynnist því. „Um leið og fólk kynnist mótunum eykst forvarna- gildið,“ bætir hún við. Erla segir það hafa verið forvitnilegt að kíkja á bak við tjöld- in hjá UMFÍ og skoða hvernig unnið er að framgangi stefnu UMFÍ í mörgum málum, svo sem í forvarnamálum. „UMFÍ vinnur alveg magnað starf á mörgum sviðum. For- varnir eru til dæmis mjög góð hliðarafurð af umræðupartýum UMFÍ þar sem allir skemmta sér án áfengis og vímuefna. Í partýunum endurspeglast að ungt fólk vill forvarnir og að UMFÍ hlustar á þær raddir,“ segir Erla. Hún telur það sama eiga við um Unglingalandsmót UMFÍ. „Þetta er áreiðanlega einhver ódýrasta fjölskylduhátíð sem völ er á. Fólk ætti að fara á mótið. Ég á sjálf þrjár yngri systur. Við fórum öll saman á Unglingalandsmót UMFÍ. Amma kom með og við vorum öll saman á tjaldsvæðinu. Mótið styrkir sam- veru fjölskyldunnar. Það er jákvætt enda sýna niðurstöður rann- sókna að tengsl eru á milli samveru og neyslu. En ég held að fólk átti sig ekki almennilega á því hvað starf UMFÍ er gott og Unglingalandsmótið hefur góð áhrif. Ég mæli eindregið með Unglingalandsmótinu og hvet foreldra til að senda börn sín á viðburði UMFÍ,“ segir Erla Gunnlaugsdóttir. Hvernig er unnið að markmiðunum? Erla dregur fram nokkur markmið UMFÍ í forvarnamál- um og skoðar sérstaklega hvernig unnið er með þau. 1Að vera leiðandi í forvörnum sem varða heilsu og holla lífshætti. UMFÍ stefnir ekki einungis að því að draga úr neyslu einstaklinga heldur að bæta almenna lýðheilsu fólks. 2 Þjálfarar, leiðbeinendur og aðrir sem ábyrgð bera séu meðvitaðir um mikilvægi þess að halda áfengi, tóbaki og öðrum vímuefnum frá viðburðum. 3 UMFÍ skapi ungmennum vettvang til áhrifa og vinna hefur verið lögð í að koma ungmenna- ráðum til starfa hjá héraðssamböndunum. Þar verður til vettvangur fyrir ungt fólk til að koma saman, halda fundi og ræða saman, m.a. um það hvernig þau sjái framtíðina fyrir sér. 4 Að efla og styrkja leiðtogahæfileika og sjálfs- mynd einstaklinga. Fram kemur í ritgerðinni að formaður UMFÍ hvetji héraðssambönd og aðildarfélög til að fjölga ungu fólki í stjórnum og hafa það með í starfinu. 5 Að efla forystufólk sambandsaðila og sjálfsmynd einstaklinga. Stjórn og framkvæmdastjóri UMFÍ hafa unnið að því að efla samstöðu og samvinnu sam- bandsaðila UMFÍ. Samráðsfundir efla vinnu hjá félög- unum. Ungmennaráðstefnur eins og Ungt fólk og lýð- ræði styrkja sjálfsmynd ungs fólks.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.