Skinfaxi - 01.02.2019, Blaðsíða 36
36 SKINFAXI
Minningarsjóður Ölla var stofnaður árið 2013, til minn-
ingar um körfuknattleiksmanninn Örlyg Aron Sturluson. Umsókn-
um til sjóðsins hefur fjölgað, að sögn framkvæmdastjóra hans.
„Við vitum öll að það getur verið dýrt að stunda íþróttir. Foreldr-
ar barna og ungt fólk hafa ekki alltaf efni á því. Þegar þannig
stendur á getum við stutt við íþróttir barna og ungs fólks,“ segir
María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Minningarsjóðs Ölla.
Sjóðurinn var stofnaður árið 2013, til minningar um körfuknatt-
leiksmanninn Örlyg Aron Sturluson sem flestir þekktu sem Ölla
en hann var einn af efnilegustu körfuboltaspilurum landsins.
Hann spilaði stjörnuleik Körfuknattleikssambands Íslands 15.
janúar árið 2000. Daginn eftir lést hann af slysförum. Ölli var
aðeins 18 ára gamall.
Heimildarmynd um Ölla var frumsýnd árið 2013 og var sjóð-
urinn stofnaður af móður hans í tengslum við sýningu myndar-
innar. Minningarsjóður Ölla styrkir börn til íþróttaiðkunar sem
eiga ekki kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða
umsjónarmanna.
Allir geta fengið stuðning
„Ölli var mjög umhyggjusamur, með stórt hjarta og mátti ekkert
aumt sjá. Hann kom alltaf öllum til hjálpar. Móðir Ölla vildi gera
eitthvað í anda hans. Hún gaf
leyfi fyrir heimildarmyndinni
og stofnaði svo sjóðinn í kjöl-
farið. Í upphafi fjármögnuðum
við sjóðinn með sölu myndar-
innar en nú er stærsta fjáröfl-
unin okkar ár hvert fólgin í
áheitum sem hlauparar safna í
Reykjavíkurmaraþoninu. Síðan
hafa fyrirtæki og einstaklingar
einnig stutt við sjóðinn,“ segir
María Rut en bætir við að þótt
sjóðurinn sé tiltölulega lítill styrki
hann flesta sem til hans leita ef
Örlygur Aron Sturluson,
sem kallaður var Ölli, hóf feril
sinn með meistaraflokki Njarð-
víkur 16 ára gamall árið 1997
og var lykilmaður í liðinu þegar
það hampaði Íslandsmeistara-
titli ári síðar. Eftir frábært tíma-
bil hélt Örlygur út til Norður-
Karólínu í Bandaríkjunum til
þess að stunda nám og spila
körfubolta með Charlotte
Christian Knights. Eftir dvölina
lék hann aftur með meistaraliði
Njarðvíkur og A-landsliði
Íslands og var valinn fyrstur í
lið í Stjörnuleik Körfuknattleikssambands Íslands.
Sjóðurinn tekur jafnframt á móti frjálsum framlögum en reikn-
ingsnúmer sjóðsins er 0322-26-021585, kt. 461113-1090.
Minningarsjóðurinn á Facebook:
https://www.facebook.com/minningarsjodurolla
www.minningarsjodurolla.is
það hjálpar iðkendum til að stunda íþróttir fram til 18 ára ald-
urs. Ekki er lögð áhersla á að sinna afreksfólki heldur er við-
miðið að allir geti stundað íþróttir.
„Við hjálpum til við ýmislegt, greiðum árgjald barna í íþrótt-
um, gjöld í keppnum, veitum styrki til keppnisferða iðkenda og
gerum margt fleira sem tengist íþróttaiðkun barna. Við höfum
líka boðið upp á styrki til kaupa á íþróttafatnaði og skóm því að
það skiptir máli að eiga góðan fatnað,“ segir hún og bendir á
að ýmsir leiti til sjóðsins, bæði foreldrar og stuðningsnet barna.
„Félagsráðgjafar hafa leitað til okkar fyrir hönd barna, þjálf-
arar, kennarar og foreldrar. Hver sem er getur haft samband við
okkur, hringt eða sent okkur tölvupóst eða skilaboð á Facebook.
Við erum líka með enga yfirbyggingu. Allt sem kemur inn í sjóð-
inn fer út úr honum aftur í formi styrkja. Við erum með afar ein-
falt umsóknarferli og afgreiðum umsóknir hratt. Þannig viljum við
hafa það,“ segir María Rut. Hún hefur fundið fyrir því að umsókn-
um hafi fjölgað, sérstaklega í fyrra og það sem af er þessu ári.
„Við vitum ekki hvort það er vegna þess að fleiri þurfi á stuðn-
ingi að halda eða hvort að fleiri vita af sjóðnum en áður. Við
getum alveg annað eftirspurninni og munum gera það,“ segir
María Rut hjá Minningarsjóði Ölla.
ÖLLI HJÁLPAR BÖRNUM
OG UNGMENNUM AÐ
STUNDA ÍÞRÓTTIR
Hluti af hópnum sem hljóp í fyrra. María Rut Reynisdóttir og Særún Lúðvíksdóttir..
Kristján Möller safnaði mest í
minningarsjóðinn í fyrra.