Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2019, Blaðsíða 37

Skinfaxi - 01.02.2019, Blaðsíða 37
 SKINFAXI 37 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði, sem haldin var í Borgarnesi í apríl sl., tókst afar vel. Ungmennaráð UMFÍ, sem saman stendur af tíu manns af öllu landinu á aldrinum frá 16 til 25 ára skipuleggur ráðstefnuna frá grunni. Fjöldi gestafyrirlesara kom á ráðstefnuna, sveitarstjórnarfólk, áhrifavaldar og ráðgjafar auk ráðamanna. Þar á meðal voru Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráð- herra, Soffía Ámundadóttur, formaður íþróttanefndar ríkisins, og Salvör Nordal, umboðsmaður barna, auk Gunnlaugs Júlíussonar, sveitarstjóra Borgarbyggðar, og margra fleiri. Á fundinum hvatti menntamálaráðherra ráðstefnugesti til að taka að sér félagsstörf. „Ég er talskona þess að ungt fólk taki þátt í félagsstarfi. Ég hef gert það frá 13 ára aldri og nú á vett- vangi stjórnmálanna,” sagði Lilja og rifjaði upp að hún hefði verið virk í félagsstörfum frá því í grunnskóla, verið formaður nemendafélags Fellaskóla og látið til sín taka í baráttunni gegn Hvött til að taka þátt í félagsstörfum Ungmennaráðstefna á vegum Ungmennaráðs UMFÍ fagnaði 10 ára afmæli í apríl sl. Undir lok ráðstefnunnar birtu þátttakendur ályktanir úr vinnu- hópum sem þeir höfðu verið í. Ályktanirnar voru birtar í formi setninga til stjórnvalda. Hér eru tvö dæmi: kjarnavopnum á leiðtogafundi þeirra Ronalds Reagans, forseta Bandaríkjanna, og Mikhaíls Gorbatsjevs, leiðtoga Sovétríkjanna, í Höfða árið 1986. „Það að hafa byrjað í félagsstörfum ung hefur hjálpað mér gríðarlega. Það skiptir líka máli að hafa ástríðu fyrir því sem maður gerir. Ég hvet ykkur eindregið til að taka þátt í félagsstörfum, skrifa niður það sem þið eruð að hugsa og finna vettvang til að setja mál á dagskrá,“ sagði hún.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.