Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2019, Blaðsíða 22

Skinfaxi - 01.02.2019, Blaðsíða 22
22 SKINFAXI RÉTTUR TILGANGUR OG HUGSJÓNIR Öll ferðin í heild sinni stóð upp úr að mati Emblu Lífar Halls- dóttur enda lærdómsríkur og skemmtilegur viðburður. Emblu Líf leist strax vel á She Runs-viðburðinn þegar hún frétti af honum, bæði tilgang hans og þær hugsjónir sem hann stóð fyrir og var ekki lengi að hugsa sig um. „Við vorum fimm stelpur úr Borgarholtsskóla sem fórum til Parísar en utan okkar komu stelpur frá tveimur öðrum fram- haldsskólum,“ segir Embla Líf en hún er 18 ára Mosfellingur sem stefnir langt í lífinu. Þegar hópurinn mætti til Parísar tók við stíf dagskrá. „Þar má nefna ratleik um stóran hluta borgarinnar sem tók heilan dag. Boðið var upp á marga frábæra fyrirlestra í anda Ted Talk, íþróttastöðvar, og 3 km hlaup þar sem 3.500 stúlkur tóku þátt en þar tók ég á móti viðurkenningu fyrir hönd íslenska hópsins. Hvert land átti að skipuleggja atriði og ákvað íslenski hópurinn að skella í eitt gott „Húh!“ með þátttakendum. Við þurftum aðeins að útskýra atriðið fyrir hópnum en á endanum tókst það bara nokkuð vel. Auk þess sýndum við kynningarmyndband um Ísland.“ Hún segir She Runs hafa verið afar lærdómsríkan og skemmti- legan viðburð. „Ég lærði margt af fyrirlestrunum og ekki síður af öðrum þátttak- endum. Fjórar flottar íþróttakonur héldu fyrirlestra sem kenndu okkur margt auk þess að efla þroska okkar og skilning á lífinu. Þar komu þær m.a. inn á sigra og ósigra, hvað teljist rétt og rangt og hvaða lærdóm við getum dregið af mistökum okkar í lífinu. Utan þess var auðvitað skemmtilegt að upplifa aðra menningu og að sjá atriði annarra landa. Í raun stóð öll ferðin í heild sinni upp úr enda var hún virkileg skemmtileg.“ ÆVINTÝRALEG FERÐ SEM GLEYMIST EKKI Eva Bryndís Ágústsdóttir er mikil íþróttakona auk þess að vera á kafi í söng, leiklist og tónlist. Dagarnir í París líða henni seint úr minni. Dvölin í París var mjög eftirminnileg og lærdómsrík að sögn Evu sem er Hafnfirðingur á sautjánda ári. „Það sem ég naut mest var að kynnast sem flestum og skemmta mér með íslensku stelpunum. Mér fannst ótrúlegt að heyra hversu illa er komið fram við stelpur og konur innan íþrótta í sumum löndum en sjálf hef ég æft ýmsar íþróttir á borð við fótbolta, hand- bolta og ýmsar bardagaíþróttir. Fyrir vikið stendur þetta mér nærri. Við kynntumst stelpum frá Keníu, Ástralíu, Lettlandi, Ungverjalandi og Frakklandi en ég hef mjög gaman að því að kynnast fólki og heyra hvernig menningin er í öðrum löndum.“ Það sem ferðin hefur helst kennt Evu, að eigin sögn, er að þora að taka þátt í óvissunni. „Þetta var ævintýraleg ferð sem ég mun aldrei gleyma! Þegar ég heyrði fyrst um She Runs vissum við ekki mikið hvað þetta gekk allt út á. Það sem við vissum var að við þurfum ekki að borga krónu fyrir flug og gistingu og að þetta væri einhvers konar leiðtogaviðburður fyrir stelpur. Þrátt fyrir það hoppuðum við út í óvissuna og skemmtum okkur svaka vel. Mér finnst mjög mikilvægt að ferðast og gera klikkaða hluti meðan við erum ung. Þannig lærum við að passa upp á okkur sjálf og þroskast sem manneskjur. Um þessar mundir er ég einmitt stödd í stóru verkefni sem er að ganga í kringum landið til styrktar Barnaspítalanum. Þá er mikil- vægt að geta tekið þátt í óvissu morgundagsins og dvölin í París hefur heldur betur undirbúið mig fyrir það ferðalag.“

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.