Skinfaxi - 01.02.2019, Blaðsíða 28
28 SKINFAXI
Án fjölda sjálfboðaliða væri nær ómögulegt að halda
flesta stærri viðburði UMFÍ. Sjálfboðaliðar sinna fjöl-
breyttum verkefnum og ganga í öll verk, stór og smá,
með bros á vör.
Hjördís Gunnlaugsdóttir
er einn þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða hér á landi sem vinnur á bak
við tjöldin og gerir íþróttafélögum og ýmsum félagasamtökum kleift
að halda fjölmenn íþróttamót og skipuleggja stærri viðburði.
Hún segist nánast alin upp við að það þyki sjálfsagt að vinna
og hjálpa til við hina ýmsa viðburði og taka þátt í fjölbreyttu félags-
málastússi.
„Foreldrar mínar voru virkir á þessum vettvangi en hjá mér byrj-
aði þetta í alvöru með börnunum mínum. Ég á þrjú börn sem tóku
öll þátt, mismikið þó, í íþróttum þegar þau voru börn og unglingar.
Þegar aðstoða þurfti við mót og ferðalög fannst mér alveg sjálfsagt
að aðstoða auk þess sem þetta starf var einnig mjög skemmtilegt,“
segir hún.
Eitt barna Hjördísar var í Skátafélaginu Skjöldungum þar sem
hún sat í stjórn í þrjú ár og tvö barna hennar æfðu frjálsar íþróttir
en þar þótti sjálfsagt að aðstoða við þau mót sem félagið hélt að
hennar sögn.
„Auk þess var ég bekkjarfulltrúi á einhverjum tímapunkti fyrir öll
börnin mín í grunnskóla þar sem við stóðum fyrir ýmsum skemmtun-
um og ferðum með krökkum og foreldrum.“
Vann mikið fyrir Þrótt
Helsta framlag Hjördísar til sjálfboðaliðastarfa hefur þú verið í
gegnum íþróttafélagið Þrótt í Reykjavík þar sem börnin hennar æfðu
fótbolta. „Þar var ég í flokksráði í mörg ár og hef svo sannarlega
grillað ófáar pylsurnar og hamborgarana, staðið sjoppuvaktir á
mótum og gert ýmislegt með krökkunum utan boltans til að þétta
samheldnina. Einnig fylgir það þessu starfi að vera fararstjóri á
fótboltamótum sem er alltaf mikið ævintýri.“
Hjördís sat einnig í stjórn Rey Cup sem er stærsta knattspyrnumót
landsins fyrir 13–16 ára stelpur og stráka. „Rey Cup er alþjóðlegt
knattspyrnumót sem er haldið á félagssvæði Þróttar en það sækja
bæði innlend og erlend lið. Þar þurftum við að sjá um gistingu, mat
og afþreyingu fyrir rétt um 1.000 ungmenni en þetta er mikil vinna
sem tugir foreldra í félaginu leggja á sig til að mótið gangi sem
best upp.“
Safnaði tonnum af rusli
Undanfarin ár hafa þó verið rólegri hjá Hjördísi enda krakkarnir
vaxnir úr grasi. Því fylgir þó ekki að hún hafi gefið sjálfboðaliða-
starfið upp á bátinn. „Í fyrrasumar fór ég til dæmis með félagasam-
tökunum Hreinni Hornstrandir til Bolungavíkur á Ströndum yfir eina
helgi en samtökin halda utan um ruslahreinsun á Hornströndum á
hverju ári. Þar söfnuðum við nokkrum tonnum af rusli, svo sem
miklu magni af plasti, netatrossum, ýmsum veiðarfærum og öðru
drasli sem rekur þar á fjörur. Þetta var mikið ævintýri og skemmti-
legt og vona ég að ég fái að taka þátt í svona ferð aftur.“
Í vor bauð hún sig fram til að starfa við Fossavatnsgönguna en
um er að ræða skíðagöngu sem haldin er hvert ár á Ísafirði í kring-
um 1. maí.
„Mikill fjöldi tekur að jafnaði þátt í göngunni en þar var ég á
drykkjarstöð uppi á heiði og skemmti mér sérlega vel ásamt öðrum
sjálfboðaliðum. Rúsínan í pylsuendanum er auðvitað fiskihlaðborðið
og ball sem haldið er að göngu lokinni en það er ávallt vel sótt
enda mjög skemmtilegt,“ segir hún.
Gott að ögra sér
Hjördís hvetur sem flesta til að taka þátt í sjálfboðaliðastarfi enda
sé það svo gefandi.
„Í starfi mínu sem sjálfboðaliði hitti ég alltaf og kynnist fjöldanum
öllum af skemmtilegu fólki. Um leið stíg ég aðeins út fyrir boxið og
ögra sjálfum mér. Það er nánast alltaf eitthvað skemmtilegt að ger-
ast í kringum svona hópa og maður skemmtir sér yfirleitt vel og
hefur gaman af.“
ALLTAF JAFNMIKIÐ
ÆVINTÝRI AÐ VERA
SJÁLFBOÐALIÐI