Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2019, Blaðsíða 17

Skinfaxi - 01.02.2019, Blaðsíða 17
 SKINFAXI 17 Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að aukin skemmtun og ánægja í íþróttum hefur jákvæð áhrif á íþróttaiðkun unglinga og getur skilað því að ungt fólk haldi áfram að stunda íþróttir fram á fullorðinsár. Í STUTTU MÁLI 1. Þátttakendur nefndu mikilvægi samveru með öðrum iðkendum á æfingum. Samveran styrkir vinatengsl og gæti leitt til nýrra og fleiri vinatengsla og stærri vina- hóps. Það að geta tengst öðrum þótti stór þáttur í andlegri vellíðan. 2. Hittingar og hópefli utan æfingatíma og/eða í æfinga- og keppnisferðum þótti styrkja liðsheildina og vina- tengslin meðal íþróttaiðkenda. Þar má telja sundferðir, ferðir í keilu, matarboð og/eða út að borða svo fátt eitt sé nefnt. Þetta gefur iðkendum tækifæri til að kynn- ast persónulega og styrkja vinabönd. 3. Jákvæður stuðningur og hvatning frá æfingafélögum dregur úr streitu og bætir andlegan líðan. Á hinn bóg- inn geta neikvæð samskipti leitt til þess að ungir iðk- endur hætti í íþróttum. 4. Öguð vinnubrögð, samskiptahæfni og hvatning þjálf- ara skiptir miklu máli í að búa til jákvætt andrúmsloft fyrir unglinga og gefa þeim rými til að bæta sig í skipulögðu umhverfi. 5. Hugmyndaríkur þjálfari með stöðugt nýjar og fjölbreytt- ar æfingar gefur iðkendum tækifæri á bætingum sem eykur andlegan og líkamlegan styrk og vellíðan. 6. Þátttakendur lögðu áherslu á kosti þess að gera íþrótta- æfingar að föstum lið í skipulagi dagsins. Á æfingum fá iðkendur tækifæri til samskipta við aðra, íþróttaiðkun losar iðkendur frá inniveru, sjónvarpsáhorfi, tölvum og símum, hún bætir svefnvenjur og kemur daglegu lífi í fastar skorður. 7. Þátttakendur telja íþróttaiðkun mikilvæga fyrir framtíð sína, hvort sem um er að ræða atvinnumöguleika eða ánægjulegt fjölskyldulíf með börnum og vinum. 8. Íþróttaiðkun eykur líkurnar á að unglingar lifi heilbrigðu lífi því að hún gefur þeim tól sem hjálpar þeim til að styrkja sig andlega og líkamlega og lifa betra lífi en ella. Hvað eykur skemmtun og ánægju í íþróttum?

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.