Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2019, Blaðsíða 15

Skinfaxi - 01.02.2019, Blaðsíða 15
 SKINFAXI 15 • Lone og sveitarstjórnarfólkið frá Odder eru fjarri því eini hópurinn frá Danmörku sem hefur leitað til UMFÍ upp á síðkastið. Haustið 2018 kom hópur frá DGI Østjylland í Danmörku í heimsókn í þjón- ustumiðstöð UMFÍ. Heimsóknin var liður í verkefni á milli Dananna og Ungmennafélags Selfoss sem hafði farið utan í því augnamiði að auka tengsl danska sambandsins við Selfyssingana. DGI Østjylland er héraðssamband innan DGI sem eru systursamtök UMFÍ í Danmörku. • Í apríl kom svo í heimsókn í þjónustumiðstöð UMFÍ hópur sveitarstjórnarfólks og starfsmanna frá bæjarfélaginu Haderslev á Suður-Jótlandi. Danirn- ir voru líkt og landar þeirra áður staddir hér á landi til að kynna sér starf íþrótta- og ungmenna- félaga en líka forvarnastarf og markmið í lýðheilsu- málum. • Sveitarstjórnarfólk frá Herning á Jótlandi kom í maí og leitaði líka eftir fræðslu um íþróttir og for- varnir og markmið UMFÍ og Íslendinga í lýðheilsu- málum. Dönsku gestirnir spurðu margs, sérstak- lega um það hvernig Íslendingum hafi tekist að draga úr áfengisneyslu og notkun tóbaks. Danir eru jafnframt að skoða kosti frístundakorta í íþrótta- starfi og ýmislegt fleira sem þeir telja til fyrirmynd- ar hér á landi. Lone segir það sama eiga við um danska unglinga og eigi – eða átti – við íslensk ungmenni. „Þau byrja að neyta áfengis á síðasta ári í grunnskóla, um 15–16 ára aldurinn. Sum byrja fyrr en önnur seinna. Við höfum unnið að því fjölga í seinni hópn- um, sérstaklega fækka þeim sem drekka í framhaldsskólum.“ Lone segir meginmarkmið heimsóknarinnar til Íslands vera að fræðast um íslenska forvarnamódelið og þær leiðir sem farnar hafa verið hér á landi til að fjölga ungmennum í íþrótt- um og skipulögðu tómstundastarfi. „Þið hafið náð mjög góðum árangri í forvarnamálunum. Við viljum átta okkur betur á hvað þið gerðuð og þess vegna er lærdómsríkt að koma til UMFÍ og læra af ykkur,“ segir hún. Sveitarstjórnarfólkið frá Odder ásamt Auði Ingu Þorsteinsdóttur, framkvæmdastjóra UMFÍ. Hópurinn frá Herning.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.