Úrval - 01.02.1958, Blaðsíða 25
SMÁTT OG STÓRT I HINNI NÝJU HEIMSMYND
TJRVAL
mældur í sentímetrum á sek-
úndu, margfaldaður með sjálf-
um sér.
Líking Einsteins segir, að
hvert gramm efnis (það getur
verið vetni, radíum eða hvaða
efni sem er), sem breytist í
orku (hún getur verið hiti, ljós
eða eitthvert annað form orku),
gefi 21,5 milljarða kílógramm-
kaloría == 25 milljónir kíló-
wattstunda. Ef kílówattstundin
er metin á 40 aura, þá væri eitt
gramm af efni, sem breyttist í
orku 10 milljón króna virði!
Þegar litið er á þessar tölur
skilst, að sólin og stjörnurnar
hafa ráð á að sóa orku sinni
einmitt af því að hún verður til
við það að efni breytist í orku.
Og það er nóg efni í sólinni,
sem er 332.000 sinnum efnis-
meiri en jörðin. Samt er sólin
ekki stór í samanburði við aðr-
ar stjörnur. Það eru til mill-
jarðar stjama, sem eru stærri
en sólin, eiga meiri eldsneytis-
forða og sóa orku sinni af enn
meira örlæti en hún.
Víst má telja, að sólin sé að
miklu leyti gerð úr vetni, og
cg vetni er ágætt atomeldsneyti.
Við atómbrunann breytist það
ekki i vatn eins og þegar það
brennur á venjulegan (kemisk-
an) hátt, heldur í helium.
Helium er þessvegna askan eða
úrgangsefnið sem verður til við
myndun þeirrar kjarnorku, sem
heldur heiminum gangandi. Uti
í geimnum er óhemju magn
heliums; það eru „öskuhaugam-
ir“ frá ofnum þeim sem fram-
leiða orku handa alheimsvél-
inni.
Það er hægðarleikur að gera
sér í hugarlund hvað gerist í
iðrum sólarinnar þegar vetni
breytizt í helium. Það er kjarn-
orkumyndun, þar sem kolefni
og köfnunarefni verka með ná-
vist sinni sem einskonar hvatar
(katalýsatorar) meðþeim afleið-
ingum, að fjórir vetniskjarnar
renna saman í einn helium-
kjama um leið og óhemjumikil
orka leysist úr læðingi. Því er
sem sé þannig varið, að fjórir
vetniskjarnar vega til samans
nokkru meira en einn helium-
kjarni, mismunurinn er það efni
sem breytist í orku. Með lík-
ingu Einsteins er hægt að
reikna út, að 4 grömm af vetni
gefa af sér (nærri) 4 grömm
af helium að viðbættri þeirri
crku, sem fæst þegar 86 lestir
af úrvals steinkolum brenna á
venjulegan hátt. Já, en af
hverju kyndum við þá ekki
orkuver okkar með 4 grömm-
um af vetni, sem fá má úr 36
sm3 af vatni? Ur hverjum
lítra vatns ætti þannig að vera
hægt að fá hitaorku til jafns
við það sem fæst úr 2400 lest-
um af steinkolum. Og vatnið
kostar ekkert!
Þetta er fávísleg spurning,
því allir vita, að þannig getum
við ekki brennt vatni hér á
jörðunni. En það er einmitt
þesskonar brennsla sem á sér
stað í iðrum sólarinnar. Þar má
23