Úrval - 01.02.1958, Síða 91

Úrval - 01.02.1958, Síða 91
„Hann var að glíma við myrk og ilularfull öfl, sem mannlegum huga var ef til vill ofvaxið að skilja.'1 í leyndum hjartans Saga eftir W. Somerset Maugham. DR. Audlin leit á skrifborðs- klukkuna. Hana vantaði tuttugu mínútur í sex. Hann furðaði sig á því að sjúklingur- inn skyldi ekki vera kominn, því að Mountdrago lávarður var stundvís með afbrigðum, enda var það orðtak hans, að með því að vera stundvís væri maður að slá hinum skynsömu gullhamra og veita heimskingj- unum ofanígjöf. Það hafði ver- ið ákveðið að Mountdrago lá- varður kæmi klukkan hálf sex. Dr. Audlin gat ekki talist sér- kennilegur maður í útliti. Hann var hár vexti og grannholda, herðamjór og dálítið lotinn. Hárið var grátt og tekið að þynnast, og langleitt, magurt andlitið var markað djúpum dráttum. Hann var rétt um fimmtugt, en leit út fyrir að vera eldri. Grá augun voru þreytuleg. Maður veitti því fljótt athygli, að þau hreyfðust mjög lítið; þau einblíndu á mann, en augnaráðið var svo hlutlaust, að það olli engum óþægindum. Það færðist sjaldan líf í augu hans og það varð ekki ráðið af þeim, hvað honum bjó í huga. Hann virtist depla augunum miklu sjaldnar en annað fólk. Hann var fremur handstór og fingumir langir, og handtak hans var mjúkt, en þó fast. Dr. Audlin var ávallt klæddur dökk- um fötum. Hálsbindið var svart. Fötin gerðu það að verkum, að andlitið virtist fölara og grá augun tómlegri. Af útliti hans hefði mátt draga þá ályktun, að hann væri sársjúkur maður. Dr. Audlin var geðlæknir, sem beitti sálgreiningaraðferðinni. Tilviljun ein hafði valdið því, að hann lagði fyrir sig þessa sér- grein, og hann var í rauninni vantrúaður á gildi hennar. Hann hafði nýlega lokið læknisprófi, þegar stríðið brauzt út, og starfaði á ýmsum sjúkrahúsum, til þess að afla sér meiri þekk- ingar og reynslu. Hann bauð yf- irvöldunum þjónustu sína og var sendur til Frakklands skömmu síðar. Það var þá sem hann uppgötvaði hinn furðulega hæfileika, sem hann var gæddur. Hann gat dregið úr sársauka með því að snerta sjúklingana 853
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.