Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Blaðsíða 29
- — 1
íslensk skáldverk
fyndin og sorgleg.
250 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 2.480 kr.
TRÖLLAKIRKJA
Ólafur Gunnarsson
Efnismikil og dramatísk
skáldsaga þar sem spurt er
um sektina og fyrirgefning-
una, manninn og Guð. Sig-
urbjörn arkitekt hefur stór-
brotin áform á prjónunum en
örlögin grípa inn í atburða-
rásina og glæst áform snú-
ast í harmleik. Frásögnin er
lituð ósvikinni sagnagleði
sem lesendur Ólafs þekkja,
litrík og Ijóðræn í senn.
279 blaðsíður.
Forlagið.
Verð: 2.880 kr.
ÚTÞRÁ
Nemo Nemo (pennaheiti)
Nýr skáldsagnahöfundur
sendir nú frá sér skáldsögu
sem hann kýs að birta undir
„skáldanafni”. Skáldsagan
gerist í byrjun áttunda ára-
tugar, þegar miklar þjóðfé-
lagsbreytingar áttu sér stað
um allan heim með tilkomu
hippamenningarinnar. Sak-
laus unglingsstúlka hreifst
með þeim straumum hippa-
tímabilsins sem bárust til ís-
lands og Danmerkur og fiktar
með jafnöldrum sínum við
hassreykingar. Hún dvelst í
Kaupmannahöfn um sumar
og má þegar hún snýr heim
til fósturjarðarinnar þola sví-
virðilega líkamsskoðun á
Keflavíkurflugvelli. Hún lendir
í hremmingum kynslóðaá-
rekstra sem leiða til þess að
hún er beitt brögðum og lok-
uð inni á stofnun. Skáldsag-
an fjallar um örvæntingarfulla
baráttu hennar fyrir frelsi.
190 blaðsíður.
Fjölvi-Vasa.
Verð: 2.480 kr.
VEFARINN MIKLI
FRÁ KASMÍR
Halldór Laxness
Fáar bækur Halldórs Lax-
ness hafa vakið jafn mikla
almenna athygli og Vefarinn
þegar hann kom út árið
1927, enda hafði Halldór
einsett sér að skrifa verk
sem talið yrði nútímalegt.
Viðtökur lesenda voru mjög
á tvo vegu: Ýmsir töldu að
sagan sýndi að nú væri ís-
land búið að eignast nýtt
stórskáld og sögðu „loksins,
loksins!” en öðrum fannst
sagan bæði óþjóðleg og of
bersögul. Hér er Vefarinn
kominn í nýrri útgáfu.
328 blaðsíð'ur.
Vaka-Helgafell.
Verð: 2.890 kr.
a Bók fyrir íslensk böm a
Blómin okkar er ný bók frá bókaútgáfunni
Bjöllunni. I henni er sextíu íslenskum
jurmm lýst, þjóðsögum og þjóðtrú er fléttað
saman við frásögnina og sagt ffá hlutverki
plöntunnar. Sjötíu einstæðar ljósmyndir eftir
Björn Þorsteinsson prýða bókina. Þessi bók er
fengur fyrir öll börn í landinu. Ekki síður en
Húsdýrin, Fuglarnir og Villtu spendýrin
okkar en þær hafa allar notið mikilla vinsælda
hjá íslenskum börnum og foreldrum þeirra.
Höfundi bókanna, Stefáni Aðalsteinssyni, tekst
á aðdáanlegan hátt að flétta saman vandaða
fræðimennsku og fagurt og einfalt mál.
ABókaútgáfan
___Bjallan