Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Blaðsíða 58
Bœkur almenns efnis
tíma, átti hvað mestan þátt í
því að sagt var skilið við
hugsunarhátt miðalda í
heimspeki og vísindum.
204 blaðsíður.
Hið íslenzka
bókmenntafélag.
Verð: Verð: 1.690 kr.
ORÐSNILLD KVENNA
Málmfríður Sigurðardóttir
tók saman
Ný bók í röð hinna vinsælu
Snilldarbóka. Málmfríður
Sigurðardóttir hefur hér
safnað saman textabrotum,
Ijóðum og hugleiðingum fjöl-
margra íslenskra kvenna
um ástina, sorgina, dauð-
ann, landið, náttúruna, nótt-
ina og margt fleira.
200 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 1.980 kr.
ÓÐURINN UM EVU
Sagnir af gyðjum og
konum
Manuela Dunn Mascetti
Þýðing: Guðrún J.
Bachmann
Sr. Hanna María Péturs-
dóttir ritar formála
Hér gefst tækifæri til að
kynnast hinum kvenlegu rót-
um vestrænnar menningar
og skilja inntakið í sögnum
um gyðjur og konur - að
uppgötva gyðjuna sem býr í
hverri konu. Hér birtist kon-
an sem skapari og sem tor-
tímandi, sem ástkona, móðir
og meyja. Fræðandi og
heillandi bók með hátt á
annað hundrað litmyndum.
240 blaðsíður.
Forlagið
Verð: 2.880 kr.
PASSPORT TO ICELAND
Nýstárleg landkynning í
svipaðri stærð og broti og
vegabréf. Litmyndir eru á
svo til hverri síðu, ásamt
upplýsingum um land og
þjóð í léttum og oft gaman-
sömum dúr. Fremst í bókina
getur eigandi hennar skrifað
nafn sitt og heimilisfang og
aftast eru reitir þar sem
safna má stimplum frá þeim
stöðum sem hann heim-
sækir á íslandi. Bókin er
gefin út á ensku og þýsku.
32 blaðsíður.
Iceland Review.
Verð: 374 kr.
RÍKIÐ
Platon
Þýðing: Eyjólfur Kjalar
LÆRDÖMSKM BrlKMENNTArrLAC.SINS
PLATON
Ríkið
Fyrra bindi
HID fSLENZKA BÓKMENNTAFCLAO
Emilsson, sem einnig ritar
inngang og skýringar
Ríkið er helsta heimspekirit
sögunnar. Það er viðamesta
rit í flokki Lærdómsrita, tæp-
ar 800 síður, í tveimur bind-
um með öskju. í Ríkinu set-
ur Platon fyrstur manna
fram hugmyndir um fyrir-
myndarríkið, hvernig því
skuli stjórnað og fyrir komið,
til þess að greina í hverju
réttlæti felst. Einkenni ríkis-
ins telur hann að samsvari
einkennum sálarinnar. Ríkið
er því í senn elsta stjórn-
spekirit sögunnar og eitt
fyrsta ritið til að greina sálar-
líf mannsins.
Platon leitaði eftir heilla-
drýgsta fyrirkomulagi fyrir
heildina fremur en að sam-
félagi þar sem hver og einn
fengi að njóta sín að vild.
Ein þungamiðja Ríkisins
er útlistun Platons á frum-
myndakenningu sinni, að
sönn þekking sé þekking á
æðri veruleika en þeim
skuggaheimi sem við lifum í,
að heimspekingar séu einir
færir um að leiða samfélag-
ið í Ijósi þekkingar sinnar á
hinu góða.
Platon skipar sér af þess-
um sökum í sveit andstæð-
inga lýðræðis og varar við
þeim hættum sem listin hef-
ur í för með sér fyrir ham-
ingju og heill samfélagsins.
408 og 354 blaðsíður.
Hið íslenzka
bókmenntafélag.
Tvö bindi í öskju.
Verð: 4.890 kr.
SAGA ÍSAFJARÐAR OG
EYRARHREPPS HINS
FORNA l-IV BINDI
Jón Þ. Þór sagnfræðingur
Saga ísafjarðar og Eyrar-
hrepps hins forna l-lV er nú
fáanleg í fallegri gjafaöskju
með mynd af Isafirði dags-
ins í dag.
í þessu verki er að finna
mikinn fróðleik um byggð og
búsetu í Eyrarhreppi og
sögu ísafjarðar frá upphafi
til ársins 1945. Þar er greint
frá byggingarsögu kaup-
staðarins, bæjarbrag og lífs-
háttum, félags- og menning-
armálum, bæjarstjórn og
helstu þáttum bæjarmála og
uppbyggingu og þróun at-
vinnulífs á staðnum.
Verkið er prýtt 850 Ijós-
myndum, auk fjölda upp-
drátta og korta til skýringar
á efninu.
Samtals 1.286 blaðsíður.
Sögufélag ísfirðinga.
Dreifing í Reykjavík:
Hið íslenzka
bókmenntafélag.
Verð: 11.250 kr.
SAGA KEFLAVÍKUR
1766-1890
Bjarni Guðmarsson
Fyrsta bindi Sögu Keflavík-
ur. í bókinni er rakin
byggðasaga Keflavíkur frá
því þorp tók að myndast þar
laust eftir miðja 18. öld og
fram um 1890. Greint er frá
þróun atvinnu-, félags- og
menningarlífs og ýmsu fleiru
og við söguna koma ýmsar
persónur í Keflavík á fyrri
58