Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Blaðsíða 56
Bækur almenns efnis
KÓNG VIÐ VILJUM HAFA
Örn Helgason
í þessari bók er upplýst eitt
at mestu feimnismálum ís-
lenskrar sögu á þessari öld.
Þrír kunnir íslendingar, þeir
Jón Leifs, Guðmundur
Kamban og Kristján Alberts-
son, fóru á fund þýska prins-
ins Friedrich Kristjan zu
Schaumburg Lippe og ósk-
uðu eftir því að hann tæki
við konungdómi á íslandi.
Prinsinn starfaði í áróðurs-
málaráðuneyti Göbbels.
Hverjir stóðu að baki þeirra
félaga? Af hverju vill utanrík-
isráðuneyti íslands ekki leyfa
aðgang að skjölum þeim er
skýra frá þessum ráðagerð-
um? Forvitnileg bók.
148 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 2.490 kr.
—— nié«ei-
KORALFORSPIL
mmm
KÓRALFORSPIL
haf;sins
Dr. Örn Ólafsson
Titill þessa ritverks er tekinn
úr Dymbilvölku Hannesar
Sigfússonar, og á að sýna
viðfangsefnið, módernisma í
íslenskum bókmenntum
frameftir þessari öld. Ritið
skiptist í tvo meginhluta, því
fyrst er fjallað um Ijóð, síðan
um lausamálsrit. Þessi
skipting helgast af mismun-
andi aðferðum bókmennta-
greina, enda þótt sömu
skáld komi fyrir í báðum
hlutum.
304 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 2.990 kr.
KRISTJÁN DAVÍÐSSON
KRISTJÁN DAVÍÐSSON
Aðalsteinn Ingólfsson
Sérlega glæsileg íslensk
myndlistarbók um einn okk-
ar fremsta málara. Fyrst er
texti um listamanninn á ís-
lensku og ensku, þá fylgja
mjög vandaðar litprentanir
af 30 verkum hans, loks
æviágrip og skrár. Einstök
gjafabók, í sama broti og rit-
röðin Meistaraverkin um
helstu málara 20. aldar.
66 blaðsíður.
Mál og menning og
Nýhöfn.
Verð: 3.980 kr.
LAXAVEISLAN MIKLA
Halldór Halldórsson
Á hálfum áratug var sóað úr
opinberum sjóðum yfir tíu
milljörðum króna í laxeld-
isævintýrið. Stjórnmála-
mennirnir bruðluðu, þjóðin
borgar brúsann. Hér er öll
LAXAVEISLAM
sú saga rakin, upphaf lax-
eldis, gullgrafaraæðið sem
hljóp á menn og loks hvern-
ig pólitíkusarnir reyndu að
hlaupast frá öllu og koma
tapinu yfir á opinbera sjóði.
Hér er um að ræða hneyksl-
ismál með spillingu af verstu
gráðu. Talin upp öll gjald-
þrotin, nokkur þau stærstu
voru yfir milljarð króna hvert
og áttu sér pólitíska guðfeð-
ur. Hér er flett ofan af
vafasömu gróðabralli og
sjóðasukki manna í æðstu
stöðum sem ættu að bera
kinnroða fyrir.
240 blaðsíður.
Fjölvi-Vasa.
Verð: 2.980 kr.
LIÐSMENN MOSKVU
Samskipti íslenskra
sósíalista við
kommúnistaríkin
Árni Snævarr og
Valur Ingimundarson
íslenskir kommúnistar áttu
náin samskipti við Moskvu
og leppríki Ráðstjórnarríkj-
anna. Höfundarnir hafa unn-
ið að bókinni í tvö ár og
byggja hana meðal annars
á skjölum frá Austur-Þýska-
landi og Sovétríkjunum. Hér
koma fram margar upplýs-
ingar sem eiga eftir að valda
úlfaþyt í íslensku stjórn-
málalífi.
Almenna bókafélaglð hf.
Verð: 2.995 kr.
JÓN ORMUR HALLDÓRSSQN
Löndin
ísuðri
STJÓRNMÁL OG SAGA SKIF’TINGAR HEIMSINS
LÖNDIN í SUÐRI
Stjórnmál og saga
skiptingar heimsins
Jön Ormur Halldórsson
Bókin fjallar um stjórnmál og
þróun þeirra í Suðrinu, en
það er samheiti þeirra landa
sem áður voru nefnd Þriðji
heimurinn. Jafnframt eru
rædd mál sem snerta mann-
kyn allt, svo sem hungrið (
heiminum, mannfjölgunar-
vandinn og þróunaraðstoð.
Höfundur er stjórnmálafræð-
ingur og býr yfir geysimikilli
þekkingu á málefnum fjar-
lægra heimshluta.
250 blaðsíður.
Heimskringla. Háskóla-
forlag Máls og menningar.
Verð: 2.680 kr.
MADONNA-
ÁN ÁBYRGÐAR
Christopher Andersen
Þýðing: Gissur Ó.
Erlingsson
Bókin segir frá lífshlaupi
þessarar þekktu pop-söng-
konu og leikkonu. Hún hefur
56