Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Blaðsíða 43
Ljóð
lesanda er ætlað að ráða í.
61 blaðsíða.
Forlagið.
Verð: Verð: 1.780 kr.
GIMSTEINAR
Ljóð 16 skálda
Ólafur Haukur Árnason
valdi Ijóðin
Hér eru saman komin á bók
nokkur Ijóð höfunda sem
gáfu út fyrstu bók sína á því
tímabili er ísland var sjálf-
stætt konungsríki, 1918-
1944. Mörg Ijóðin spegla vel
viðhorf og tíðaranda áranna
milli heimsstyrjalda og tíma
seinna stríðsins. Bjarni
Jónsson listmálari teiknaði
kápu og titilsíður.
223 blaðsíður.
Hörpuútgáfan.
Verð: 1.980 kr.
HIÐ EILÍFA ÞROSKAR
DJÚPIN SÍN
Úrval spænskra Ijóða
1900-1992
Þýðing: Guðbergur
Bergsson
Hið
eilífa
þroskar
djúpin
l RVU SP-tSSKRA LIÓOA IWO-IWt
I PVOISCU
cuostitcs atncssosA8
Það er mikill menningarvið-
burður þegar safn spænskra
nútímaljóða kemur loks fyrir
sjónir íslenskra Ijóðaunn-
enda í þýðingu þess manns
sem unnið hefur mest allra
að því að kynna spænskar
bókmenntir hér á landi. Um
170 Ijóð eftir 52 Ijóðskáld
eru í safninu. Þýðandinn rit-
ar formála og gerir vandlega
grein fyrir sögu spænskrar
nútímaljóðlistar.
190 blaðsíður.
Forlagið.
Verð: 1.980 kr.
&(lymreA
//fj/iti/i/t > ).
í/(a/t/u‘S,so/t
HLYMREK
Jóhann S. Hannesson
Jóhann S. Hannesson var
eitt mesta limruskáld þjóðar-
innar meðan hans naut við.
Þessi bók geymir limrurnar
úr bókinni Hlymrek á sex-
tugu, sem hefur verið ófáan-
leg um árabil, og áður óbirt-
ar limrur sem skáldið lét eftir
sig. Kristján Karlsson bjó
kveðskapinn til prentunar.
60 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 1.690 kr.
HREINT OG BEINT
Ljóð og Ijóðlíki
Þorgeir Ibsen
Nýr Ijóðahöfundur ýtir hér úr
vör - þótt seint sé - með
Ijóðabók sem hann kallar
Hreint og beint. Þar eru
farnar troðnar slóðir í hefð-
bundnum stíl, en nýstárleg-
um þó um sumt. Höfundur á
það til að víkja af alfaraleið í
Ijóðum sínum, einkum í
þeim Ijóðum sem hann
nefnir Ijóðlíki en ekki Ijóð -
með því fororði að Ijóðlíki
geti ekki kallast Ijóð fremur
r i
Gefið bœkur á góðu verði
FÉLAG ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA
L________________________________________
en smjörlíki smjör. - En Ijóð-
líki hans eru samt allrar at-
hygli verð og virðast standa
vel fyrir sínu. Þar ber kvæð-
ið Minning greinilega hæst -
Ijóðlíki eins og höfundur
nefnir það - um Stein Stein-
arr, um atvik úr lífi hans sem
er á fárra vitorði, atvik sem
aldrei hefur verið lýst áður
eða frásögn um það á þrykk
komist. Þar er ekki verið að
skafa utan af hlutunum, allt
skilmerkilega fram sett á
hreinu, tæru og fögru máli, -
í sannleika sagt: Hreint og
beint.
96 blaðsíður.
Skuggsjá.
Verð: 2.190 kr.
KLAKABÖRNIN
Linda Vilhjálmsdóttir
Linda Vilhjálmsdóttir er eitt
besta skáld sinnar kynslóð-
ar og vakti athygli Ijóðaunn-
enda fyrir tveimur árum með
bók sinni, Bláþráður. Skáld-
skapur hennar er tilfinninga-
ríkur, háðskur og tregafullur
í senn og formskyn hennar
er einstakt.
48 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 1.690 kr.
KLUKKAN í TURNINUM
Vilborg Dagbjartsdóttir
Innileiki og skörp íhygli ein-
kenna Ijóð Vilborgar. Einföld
að formi við fyrstu sýn, en á-
leitin í látleysi sínu. í bókinni
er m.a. þýðing á Ijóðabálkin-
L
43