Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Blaðsíða 71
Ævisögur og endurminningar
TÖFRALAMPINN
Ingmar Bergman
Óvenjuleg og hvöss ævi-
saga, þar sem hinn heims-
frægi kvikmyndastjóri og
túlkandi sterkustu tilfinninga,
ákveður að lýsa öllu af full-
kominni hreinskilni, líka því
allra leyndasta og viðkvæm-
asta í fjölskyldulífi, persónu-
legum hugrenningum og
kenndum, t.d. heiftúðugu
viðhorfi til foreldra og
allskyns annarlegum kennd-
um til annars fólks og
kvenna. Bókin er eins og
margar af kvikmyndum Ing-
mars miskunnarlaus krufn-
ing mannlífsins, í þetta skipti
hans sjálfs, en allir eru sam-
mála um að hún sé frábær-
lega skrifuð.
240 blaðsíður.
Fjölvi-Vasa.
Verð: 2.480 kr.
UNDARLEGT
ER LÍF MITT!
Bréf Jóhanns Jónssonar
skálds til sr. Friðriks
A. Friðrikssonar
Ingi Bogi Bogason bjó til
prentunar
Vorið 1992 fannst bunki
með bréfum Jóhanns Jóns-
sonar skálds til séra Friðriks
A. Friðrikssonar. Fundur
þessi vakti mikla athygli,
enda margt á huldu um líf
Jóhanns Jónssonar. Bréfin
eru skrifuð frá 1912-25 og
gefa einstæða mynd af ung-
um, næmum manni sem
reynir að fóta sig í veröld á
hverfanda hveli. Ingi Bogi
Bogason bókmenntafræð-
ingur bjó bréfin til prentunar,
tengir þau saman, semur
skýringar og skrifar inngang
um skáldið.
200 blaðsíður.
Vaka-Helgafell.
Verð: 2.980 kr.
ÞÓRUNN MAGGÝ
Miðilsstörf og vitnisburðir
Guðný Þ. Magnúsdóttir
í formála segir Þórunn
Maggý: „... hér er fyrst og
fremst um að ræða þroska-
sögu mína sem miðils.
Einkalíf mitt undanskil ég að
mestu leyti, nema þegar
það tengist sögu dulrænna
hæfileika minna, til dæmis
með því að hafa áhrif til
aukins þroska eða beina
mér inn á andlegar brautir
Þórunn Maggý segir hér
merkilega sögu sína og
ýmsir sem hafa kynnst
henni segja frá reynslu
sinni. Athyglisverð frásögn
af störfum eins þekktasta
miðils á íslandi.
Skjaldborg hf.
Verð: 2.990 kr.
INDRIÐI G. ÞORSTEINSSON
ÆTTJÖRÐ MÍN KÆRA
Seinna bindi ævisögu
Hermanns Jónassonar
Indriði G. Þorsteinsson
Hver var fyrstur í heiminum
til að segja nei við Hitler,
samkvæmt forsíðufrétt í
New York Times?
Hver hafði forystu á hendi
þegar við slitum samband-
inu við Dani 1940 pg undir-
bjuggum lýðveldi á íslandi?
Engum sem les ævisögu
Hermanns Jónassonar dylst
að þar fór ein af hetjum ís-
lendinga.
Bókina prýðir mikill fjöldi
mynda.
240 blaðsíður.
Reykholt.
Verð: 3.480 kr.
/EVINTýRABÓklN UI7J
ALFRGÐ
FLÓkA
ÆVINTÝRABÓKIN
UM ALFREÐ FLÓKA
Nína Björk Árnadóttir
Hann var einfari í list sinni
og engum líkur, tregafullur
ærslabelgur, marglyndur og
ástleitinn, snillingur sem
kvaðst hafa fæðst á rangri
stjörnu. Nína Björk dregur
upp persónulega og hisp-
urslausa mynd af Flóka og
ræðir við fjölmarga sam-
ferðamenn hans. Sérstæð-
asta minningabók ársins,
prýdd miklum fjölda mynda,
m. a. teikningum eftir lista-
manninn sem ekki hafa áður
verið birtar opinberlega.
201 blaðsíða.
Forlagið.
Verð: 2.980 kr.
fr Sagt um bœkur og lestur: "^t
Þegar allt kemur til alls fjalla allar bœkur um Ég þekki aðeins eina tómstundaiðju sem verður
lesandann. aldrei þreytandi, það er lestur.
Olle Hedberg Roald Amundsen
Njóti maður þess ekki að lesa bók aftur og aftur er Lestur er sálinni það sem hreyfing er
í rauninni ekkert unnið við að lesa. líkamanum.
Oscar Wilde Paul Sweeney __^il
71