Íslensk bókatíðindi - 01.12.1992, Blaðsíða 7
—
íslensk skáldverk fyrir börn og unglinga
150 blaðsíður.
ísafold.
Verð: 1.690 kr.
PONNI OG FUGLARNIR
Atli Vigfússon
Teikningar: Hólmfríður
Bjartmarsdóttir
Glæsileg bók beint úr nátt-
úru íslands. Texti og teikn-
ingar gefa þessari bók ein-
staklega fallega umgjörð.
Bókin er öll myndskreytt í lit-
um. Ævintýrin gerast í æð-
arvarpinu og Ponni fylgist
með frá degi til dags.
48 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 1.290 kr.
PUNTRÓFUR
OG POTTORMAR
Helga Möller
Puntrófur og pottormar eru
þrátt fyrir allt ósköp venju-
legir krakkar sem gætu átt
heima við götuna þína. Lísa
og vinir hennar búa við
Fjörugötu. Ýmislegt
skemmtilegt drífur á daga
krakkanna og ekki vantar í-
myndunaraflið. Það gerist
margt á einu sumri, hvort
sem það er í sumarbústaða-
ferð eða í fjöruleikjum. Það
er líka hægt að trúlofast þótt
maður sé ungur og ef ekki
er farið varlega geta sumir
leikir endað á slysadeildinni.
Þetta er fyrsta bók Helgu
Möller. Bráðskemmtileg
saga um uppátektarsama
krakka, sem láta sér ekki allt
fyrir brjósti brenna, en samt
er allt í góðu, eins og þau
segja gjarnan.
106 blaðsíður.
Fróði hf.
Verð: 1.190 kr.
ROItCRT SCIIMIDT
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
SAGAN AF GÝPU
Gylfi Gíslason
myndskreytti
Hér fá börnin tækifæri til að
kynnast íslenskum þjóðsög-
um í myndskreyttum útgáf-
um. Alkunn er sagan um
kerlinguna sem fór til himna
með sál bónda síns, og ekki
er síðri sagan af Gýpu
bóndadóttur sem át allt sem
á vegi hennar varð. Myndir
Gylfa Gíslasonar leiftra af
kímni og frásagnargleði.
Samtímis í íslenskri og
enskri útgáfu.
24 blaðsíður hvor bók.
Forlagið.
Verð: 980 kr. hvor bók.
REBBI FJALLAREFUR
Helgi Jónsson
Myndir: Robert Schmidt
Þessi bók verður ein af
bókaperlunum á íslenskum
bókamarkaði í ár. Sagan er
óður til íslenskrar náttúru og
hefur flest til að bera sem
íslenskar skáldsögur fyrir
börn, unglinga og fullorðna
þurfa að innihalda.
Þessi bráðskemmtilega
saga sem gerist í villtri nátt-
úru íslands er sögð frá sjón-
arhóli refsins sem hefur
þraukað, oft við erfiðar að-
stæður, í misjöfnu veðurfari
og þolað fjandskap manns-
ins.
Einstök bók fyrir alla fjöl-
skylduna.
180 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 1.790 kr.
SKOÐUM LANDIÐ
Björn Hróarsson
Bók með fallegum Ijósmynd-
um og skemmtilegum texta
sem skýrir helstu fyrirbrigði
sem verða á vegi manna á
ferðalagi úti í íslenskri nátt-
úru. Þessi bók vekur áhuga
barna á að kynnast landi
sínu og nánasta umhverfi.
Hún er prentuð á þykkan
pappír og auk fjölda mynda
er í henni gott íslandskort.
48 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 1.190 kr.
lilllSTJÁ.V .IÓ\SSO\
SMYGLAUA
HKUIRVM
SMYGLARAHELLIRINN
Kristján Jónsson
Hér segir frá ævintýrum Jóa
Jóns, Pésa vinar hans,
Kiddý Mundu skátaforingja
og vinkvenna hennar í
Tígrisflokknum. Pési verður
fyrir fólskulegri árás og eru
Runólfur og félagar hans úr
þjófafélaginu grunaðir.
109 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
Verð: 990 kr.
SÓL SKÍN Á KRAKKA
Sigrún Eldjárn
Þegar Sunna og Pétur fá að
fara með mömmu og pabba
til Eþíópíu í Afríku komast
þau að því að allt er öðru vísi
en heima á íslandi. Bókin er
gerð að frumkvæði Rauða
7