Bókatíðindi - 01.12.1995, Síða 2
Bókin um nýju bækurnar- Bókatíðindi- berst nú enn inn
um bréfalúgur heimilanna, árviss atburður mánuði fyrir
jól. Innihald er svipað frá ári til árs, en þó alltaf nýtt, -
heldur fleiri Ijóðabækur þetta árið, heldur fleiri
skáldsögur í fyrra, smávegis áherslubreytingar í kaflanum með
bókum almenns efnis osfrv. Margar skemmtilegar bækur,
smellnar, fróðlegar, fallegar, uppbyggilegar, vekjandi, örvandi...
Sem sagt: Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi - sem er einmitt
tilgangurinn með fjölbreyttri bókaútgáfu.
Ein bókanna sætir sérstökum tíðindum og markar í raun
tímamót í bókaútgáfu á íslandi. Það er margmiðlunarútgáfa
Námsgagnastofnunar á íslandshandbókinni, fyrsta íslenska CD-
ROM "bókin" eða diskurinn. Erlendis hefur útgáfa af þessu tagi
vaxið hröðum skrefum undanfarinn áratug og á stóru alþjóða-
bókasýningunni í Frankfurt í haust var stærsta sýningardeildin í
þriðja sinn lögð undir svokallaða elektróníska útgáfu sem
stundum er nefnd rafræn á íslensku. Þar voru CD-ROM diskar í
þúsundatali, þótt ekki þætti innihaldið alltaf svara til umbúðanna,
því eins og einn gagnrýnendanna benti á: Tæknin stjórnar sér ekki
sjálf, diskarnir verða því aðeins einhvers virði að höfundar,
ritstjórar og útgefendur sameinist um að setja á þá bitastætt efni.
Við hliðina á diskunum ryður önnur ný útgáfa sér til rúms, "web-
publishing" þe. útgáfa beint á Internetið og gefur ófyrirsjáanlega
möguleika.
Til að njóta margmiðlunarinnar þarf að sjálfsögðu að hafa tölvu
og tengsl við Internetið. Kostir þessarar tækni eru augljósir, ekki
síst til upplýsingamiðlunar, þar sem fljótlegt er að skipta um og
lagfæra efni þegar ný þekking bætist við. Þessir nýju miðlar geta
þó aldrei komið í stað bókarinnar, - þeir eru viðbót en ekki það
sama. Fer nokkur með tölvuna í rúmið undir svefninn? Situr með
hana í góðum hægindastól eða hefur hana með í bakpokanum á
ferðalagi? Enda sýnir það sig þar sem tækninnar hefur lengst
notið við, í Bandaríkjunum, að þar hefur bóklestur aukist, - þvert á
það sem óttast var.
Fullviss þess að lesendur eigi framundan margar Ijúfar stundir
með bók í hendi óskum við gleðilegra jóla um leið og vakin er
athygli á ókeypis happdrættismiða á baksíðu Bókatíðindanna.
f.h.Félags íslenskra bókaútgefenda
Vilborg Harðardóttir
íslenskar barna- og
unglingabœkur............. 4
Þyddar barna- og
unglingabœkur.............12
íslensk skáldverk.........18
Þydd skáldverk ...........28
LjóÖ......................37
Bœkur almenns efnis ......41
Ævisögur og
endurminningar............54
Handbœkur.................62
Útgefendur ............... 71
Höfundaskrá............... 72
Titlaskrá ................ 74
Útgefandi: Félag íslenskra bókaútgefenda Suðurlandsbraut 4A 108 Reykjavík sími:553-8020, fax:588-8668
Flönnun kápu: Leó Þór Lúðvíksson nemi í grafískri hönnun, MFIÍ
Ábm.: Vilborg Harðardóttir
Upplag: 103.000
Prentun: ísafoldarprentsmiðja
Prentvinnsla: Litróf, BM-útgáfan
Bókband: Flatey
Sérútgáfa af Fréttabréfi
Félags íslenskra bókaútgefenda
2