Bókatíðindi - 01.12.1995, Síða 3
‘7‘7> - ? £
íslenskar barna- og
unglingabœkur
ABRAKADABRA
Kristín Steinsdóttir
Fyndin, óvenjuleg og
skemmtileg saga eftir verð-
launahöfundinn vinsæla,
Kristínu Steinsdóttur.
Hraði, spenna og litríkar
persónur. Daginn sem
töfrakarlinn Argur sveif inn
um gluggann hjá Alla í
Njólanesi hófst makalaus
atburðarás - svo ótrúleg
raunar að það þýðir ekkert
að reyna að lýsa henni hér!
Eina ráðið er að lesa sög-
una. En gætið þess að vill-
ast ekki í skóginum sem
Argur töfraði til sín því að
þar er margt á seyði...
120 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0324-2
Verð: 1.490 kr.
ÁFRAM LATIBÆR
Magnús Scheving
Bráðskemmtileg saga um
íbúa bæjar sem uppnefnd-
ur hefur verið vegna ein-
dæma leti þeirra. Sumir
hafa líka tamið sér aðrar
slæmar venjur. Við kynn-
umst til að mynda Sigga
sælgætisstrák, Halla
hrekkjusvíni, Sollu stirðu,
Magga mjóa og Nenna
níska. - Ákveðið er að
halda íþróttahátíð um allt
land. Bæjarstjórinn (sá eini
sem nennir að hreyfa sig)
veit ekki hvernig hann á að
fá krakkana til að taka þátt
í henni. Þá kemur íþrótta-
álfurinn til skjalanna. Hann
kennir þeim mun á leik og
ofbeldi, hvað er hollur mat-
ur, hvernig á að liðka sig
og leika sér í ýmsum úti-
leikjum...
Magnús fléttar fróðleik
við fyndna og fjörlega
sögu og heldur athygli les-
enda eins og honum er
lagið. - Halldór Baldursson
hefur teiknað gamansamar
myndir sem falla mjög vel
að söguþræðinum.
Að auki fylgir bókinni
geisladiskur með leiðbein-
ingum Magnúsar um léttar
leikfimiæfingar - við tónlist
sem Máni Svavarsson hef-
ur samið og valið.
Það hefur verið beðið eftir
þessari bók! Hún kemur
mörgum á hreyfingu!
80 blaðsíður.
Æskan
ISBN 9979-808-23-3
Verð: 1.892 kr.
DOLLI DROPI ARKAR
UM AKUREYRI
Texti og mynd-
skreyting: Jóna Axfjörð
Dolli dropi er vinur yngstu
barnanna á leikskólunum.
Hann býr í Skýjaborg en
skreppur niður til að hitta
börnin. Höfundurinn Jóna
Axfjörð er hér á heima-
slóðum, Akureyri, og Dolli
tekur þátt í því að slá kött-
inn út tunnunni.
32 blaðsíður.
Fjölvi
ISBN 9979-58-270-7
Verð: 1.280 kr.
DULARFULLI
FERJUMADURINN
Kristján Jónsson
Lék Jóakim sundkennari
tveimur skjöldum? Hver
var Kjartan? Og hver vann
skemmdarverk á „rólunni"
svo að Ari litli var nærri
drukknaður? Ráða þeirTóti
svarti, lögregluþjónn og
samstarfsmaður hans,
Gummi svakalegi, við að
leysa úr þessu, eða koma
Jói, Kiddý Munda og skát-
arnir enn til bjargar?
Ný bók eftir þennan vin-
sæla barnabókahöfund
með teikningum eftir
DULARFULLI
FEiJUMAÐUBINN
Bjarna Jónsson.
123 blaðsíður.
Skjaldborg hf.
ISBN 9979-57-250-7
Verð: 1.380 kr.
EINU SINNI VAR
RAUNAMÆDDUR RISI
Áslaug Jónsdóttir
Skemmtileg saga fyrir litlu
börnin sem finnst gaman
að skoða dýrin og líkja eftir
hljóðum þeirra. Áslaug
sýnir hér enn á sér nýja
hlið sem snjall listamaður
og sögumaður sem nær til
litlu barnanna.
24 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-0887-7
Verð: 1.280 kr.
EKKERT AÐ ÞAKKA!
Guðrún Helgadóttir
Eva og Ari Sveinn komast
óvænt yfir tösku sem
skuggalegir náungar
henda út um bílglugga á
flótta undan lögreglu.
Óhætt er að segja að
innihaldið komi þeim á
óvart. Og hvað gera hug-
myndaríkir krakkar við
svona tösku? Eva og Ari
Sveinn taka til sinna ráða
og koma af stað óborgan-
legri atburðarás.
Guðrún Helgadóttir, sem
nýlega hlaut Norrænu
barnabókaverðlaunin, fer á
kostum í þessari fyndnu og
spennandi sögu fyrir börn
og unglinga. Ekkert að
þakka! er tvímælalaust ein
allra besta bók hennar.
125 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0325-0
Verð: 1.490 kr.
3