Bókatíðindi - 01.12.1995, Page 4

Bókatíðindi - 01.12.1995, Page 4
íslenskar barna- og unglingabcekur UNJIHJUUUS ■ VUDÉ tajUBMTTIS ELÍAS Auður Haralds og Valdís Óskarsdóttir Fyrirmyndarpilturinn Elías er að flytja til Kanada því að pabbi er búinn að fá vinnu sem brúarsmiður og mamma ætlar að smíða tennur upp í indíána. 123 blaðsíður. Lindin ISBN 9979-9144-1-6 Verð: 1.345 kr. EPLASNEPLAR Þórey Friðbjörnsdóttir Af hverju má maður ekki vaka fram eftir á kvöldin, fíflast í messu og kveikja í flugeldum inní herbergi? Og hvað á maður að gera þegar draumadísin tekur ekki einu sinni eftir manni þótt maður sé kominn með gel í hárið og klæddur í gamla leðurjakkann hans Ragga frænda? Verður maður piparsveinn að ei- lífu? Þannig spyr Breki Bollason í þessari smell- fyndnu og bráðfjörugu sögu Þóreyjar Friðbjörns- dóttur sem hlaut íslensku barnabókaverðlaunin árið 1995. Bókin Eplasneplarer fyrir stráka og stelpur á öllum aldri. 136 blaðsíður. Vaka-Helgafell hf. ISBN 9979-2-0281-5 Verð: 1.490 kr. FLEIRI GAMLAR VÍSUR HANDA NÝJUM BÖRNUM Guðrún Hannesdóttir valdi og myndskreytti Þessi gullfallega bók er sjálfstætt framhald af Gömlum vísum handa nýj- um börnum sem kom út í fyrra og hlaut mikið lof og viðurkenningar fyrir útlit og hönnun. 36 blaðsíður. Forlagið ISBN 9979-53-280-7 Verð: 1.390 kr. Eymundsson flnDflés moftison GALLAGRIPIR Andrés Indriðason Ási stendur uppi atvinnu- laus í sumarbyrjun. Hann er hrakfallabálkur en þótt ólánið elti hann og ekki sé allt sem skyldi heima fyrir á tilveran sínar björtu hlið- ar. Stelpa sem sýnir hon- um áhuga og honum líst ekkert á í fyrstu leynir á sér. Válegir atburðir í hverfinu verða til þess að hann þarf að horfast í augu við erfið- ar staðreyndir. Er pabbi hans ekki allur þar sem hann er séður? Eða er Ási bara ímyndunarveikur? Vel skrifuð og spennandi ungl- ingasaga um átök og sár vonbrigði, en líka vináttu, kjark og þor. 140 blaðsíður. Iðunn ISBN 9979-1-0286-1 Verð: 1.780 kr. GOGGI OG GRJÓNI VEL í SVEIT SETTIR Gunnar Helgason Ný saga um grallarana Gogga og Grjóna sem nú fara í sveit og láta til sín taka við búskapinn. Við- fangsefnin eru ótal mörg og margt sem kemur á óvart, enda er þetta ekkert venjuleg sveitasaga. Höf- undinn þekkja flestir af leiksviðinu og úr Stundinni okkar. Hallgrímur Helgason myndskreytti. 150 blaðsíður. Mál og menning ISBN 9979-3-0913-X Verð: 1.380 kr. HVAÐ NÚ? Hallfríður Ingimundardóttir Stefán er leiður þegar pabbi og mamma skilja en tekur brátt gleði sína á ný, því ennþá á hann pabba og mömmu þótt þau búi ekki lengur saman. Góð sam- lestrarbók fyrir foreldra og börn sem standa í líkum sporum og jafnframt nota- leg saga fyrir hvern sem er. 113 blaðsíður. Mál og menning ISBN 9979-3-0910-5 Verð: 1.490 kr. SÍMI: 4 6 2 6 O O BÓICVAL A K U R E Y R I — ÍSLENSKU DÝRIN Þetta er sannkölluð smá- barnabók. Hér eru öll ís- lensku húsdýrin saman komin. Bókin er þykkspjaldabók, öll litprentuð. Myndirnar eru eftir Halldór Pétursson. Setberg ISBN 9979-52-002-7 Verð: 490 kr. JÓN ODDUR OG JÓN BJARNI Guðrún Helgadóttir Jón Oddur og Jón Bjarni er ein vinsælasta barnabók sem gefin hefur verið út á íslandi. Þessi fyndna og bráðskemmtilega bók hef- ur um árabil verið ófáanleg en er nú endurútgefin með nýjum myndskreytingum. Hér segir frá ótrúlegum uppátækjum Jóns Odds og Jóns Bjarna, tvíburanna sem löngu eru þjóðkunnir. Þeir lenda í fjölda ævintýra 4

x

Bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.