Bókatíðindi - 01.12.1995, Qupperneq 20
Islensk skáldverk
heimavistarskóla úti á
iandi. Sagan lýsir baráttu
hans við starfið og óstýri-
láta nemendur og þó ekki
síst baráttu hans við sjálfan
sig. Og einn daginn verður
slys og það kemur í hans
hlut að blása lífi í nemanda
sem liggur meðvitundar-
laus inni á herbergi sínu.
204 blaðsíður.
Reykholt
ISBN 9979-836-11-3
Verð: 2.360 kr.
GUÐSGJAFAÞULA
Halldór Laxness
Guðsgjafaþula er yngsta
skáldsaga Halldórs Lax-
ness og er nú endurútgef-
in. Á skoplegan hátt tekur
Halldór til meðferðar vel
þekkta atburði í atvinnulífi
og stjórnmálum, umfram
allt þó sögu síldarinnar.
Sagt hefur verið að sögu-
hetja bókarinnar, íslands-
bersi, sé einhver skemmti-
legasta persóna sem
komið hefur fyrir í sögum
Halldórs Laxness.
306 blaðsíður.
Vaka-Helgafell
ISBN 9979-2-0040-5
Verð: 3.295 kr.
. bókabúðin
DOrg UnklargAtu 2
Lækjargötu 2
101 Reykjavík
551-5597
HÍBÝLI VINDANNA
Böðvar Guðmundsson
Ólafur fíólín og Steinunn
kona hans ákveða að
kveðja eymdina í Borgar-
firðinum og hefja nýtt líf í
auðsæld Vesturheims. Það
skiptast á skin og skúrir í
þessu ferðalagi en að
lokum kemst landnema-
hópurinn á eigið land fyrir
vestan og stofnar þar
nýlendu, Nýja-ísland, í
nágrenni við indíánana
vestan Winnipegvatns. I
sögulegri skáldsögu fjallar
höfundur um erfiða tíma
og hugrakkt fólk af kímni
og stílfimi.
336 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-0904-0
Verð: 3.890 kr.
HJARTA
/
HJARTASTADUR
Steinunn
Sigurðardóttir
Móðir flýr með unglings-
dóttur sína úr sollinum í
Reykjavík austur á firði. Þar
með hefst ferðasaga í
tvennum skilningi; lagt er
upp í ferð um innri og ytri
heima. Þetta er átakasaga
full af kímni og kostulegum
íslendingum eftir einn
vinsælasta rithöfund okkar.
374 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-0905-9
Verð: 3.890 kr.
HÓLM ANESPISTLAR
Stefán Sigurkarlsson
HÓLMANESPISTLAR
Stefán Sigurkarlsson
íslenska þorpið, skrautlegt
mannlífið með allri sinni
dulúð, gleði og sorgum, er
viðfangsefni Hólmanes-
pistla. Miðpunktur Hólma-
ness er Faktorshúsið sem
flest frásagnarvert, ímynd-
að eða raunverulegt, teng-
ist á einn eða annan hátt.
Mannlífssögur úr þorpi
sem ekki er til á landa-
kortinu en gæti verið
hvaða íslenskt þorp sem er.
143 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-0902-4
Verð: 2.980 kr.
BÓKABÚÐ
BRYNJARS
Suöurgötu 1
550 Sauöarkróki
453-5950
I líjiim 111. Iíi(irns,vin
r-j '■ '-M-t m .><^9 ■'ii 'V* a:*.. '
HRAUNFÓLKIÐ
Björn Th. Björnsson
Skáldsaga sem gerist í
Þingvallasveit á öndverðri
19. öld. Hún segir af mis-
blíðlegum samskiptum
Þingvallaklerka og bónda
þar í sveit sem þykir
djarftækari til kvenna en
kristin lög leyfa. Um leið er
þetta stórbrotin aldarfars-
og þjóðfélagslýsing, skrif-
uð af höfundi metsölubók-
arinnar Falsarinn.
272 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-0831-1
Verð: 3.480 kr.
HVÍLDARLAUS FERÐ
INNÍ DRAUMINN
Matthfas Johannessen
Smásagnasafnið Hvíldar-
laus ferð inní drauminn
hefur að geyma 22 smá-
sögur og stutta þætti þar
sem þestu kostir Matthí-
asar sem skálds fá notið
sín. Þar er m.a. að finna
fíngerðan og Ijóðrænan
skáldskap, hnittnar frá-
sagnir og ógleymanlegar
mannlýsingar svo að eitt-
hvað sé nefnt. Styrkur
höfundarins liggur ekki síst
í blæbrigðaríkum og fjör-
legum stíl, myndauðugu
og oft margræðu líkinga-
máli. Tvær sögur bókar-
innar eru umfangsmestar,
Hvar er nú fóturinn minn?
og Seglin og vindurinn,
margslungnar sögur sem
verða lesendum eftirminni-
legar eins og annað fjöl-
breytilegt efni bókarinnar.
189 blaðsíður.
Hörpuútgáfan
ISBN 9979-50-065-4
Verð: 2.980 kr.
í SÍÐASTA SINN
Ágúst Borgþór
Sverrisson
í þessum níu sögum eru
leiddarfram persónursem
eru hversdagslegar á yfir-
borðinu en við lesturinn er
afhjúpað margs konar
brjálæði og leyndarmál.
Eitt af meginstefjum bók-
arinnar er sjúklegt hömlu-
leysi þar sem áður viður-
kennd fíkniefni koma ekki
við sögu heldur kynlífsfíkn,
matarfíkn og spilafíkn.
Tónninn er oft sorglegur
en sumar sögurnar eru líka
bráðfyndnar því persón-
urnar lenda margar hverjar
í kostulegum ævintýrum.
Þess má geta að ein
20