Bókatíðindi - 01.12.1995, Side 32
Þydd skáldverk
síðan rekin úr landi. Henni
var sagt að barnið hefði
fæðst andvana - þó fannst
henni hun hafa heyrt
barnsgrát. Þremur árum
síðar snýr hún aftur til
Argentínu undir nýju nafni
til þess að komast að því
hvað hafi orðið um barnið
hennar. Sagan, sem að
hluta er byggð á reynslu
Patricu Wright sjálfrar,
hefur hlotið verðlaun fyrir
ótrúlega spennandi og
raunsannar lýsingar á
Argentínu á tímum herfor-
ingjastjórnarinnar.
320 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0164-9
Verð: 1.990 kr.
RiMlœWM
»li*i m m uim lu.a'ii •Xl.tir'ir
HÆGUR VALS I
CEDARBEND
Robert James Waller
Þýðing: Kristján
Jóhann Jonsson
Ný bók eftir höfund met-
sölubókarinnar Brýrnar í
Madisonsýslu. Hægur vals
í Cedar Bend segir frá
Jellie Braden sem er inni-
lokuð í ástríðulausu hjóna-
bandi og einfaranum
Michael Tilman. Þau laðast
hvort að öðru og smám
saman breytist líf þeirra
beggja. Er hún hverfur á
braut til þess að glíma við
leyndarmál úr fortiðinni
kastar hann öllu frá sér og
heldur á eftir henni. Þá
skiptirengu þótt um hálfan
hnöttinn sé að fara. Þeir
sem féllu fyrir Brúnum í
Madisonsýslu verða ekki
sviknir af Hægum valsi í
Cedar Bend.
231 blaðsíða.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0273-4
Verð: kr. 1.990 kr.
HÖND AÐ HANDAN
Arlene Shovald
Þýðing: Ragnar
Hauksson
Spenna - ástir - afbrýði er
undirtitill þessarar óvenju-
legu sögu sem er í senn
spennusaga, ástarsaga og
jafnvel draugasaga!
Örugglega saga sem vert
er að lesa.
192 blaðsíður.
Úrvalsbækur
Frjáls fjölmiðlun hf.
ISBN 9979-840-28-5
Verð: 895 kr.
í ALLRI SINNI DÝRÐ
Kirsten Holst
Þýðing: Sólveig
Jónsdóttir
Kirsten Holst er einn helsti
spennuhöfundur Dana. Hér
segir hún frá lögreglu-
manninum Hpyer sem
kominn er á eftirlaun, en
lætur til leiðast að leita að
vinkonu fyrrverandi vinnu-
félaga síns, en vinkonan er
týnd á Kanaríeyjum. Og
fyrr en varir er Hpyer kom-
inn á kaf í mál sem er allt
annað en hættulaust - og
málalyktir koma jafnvel
honum sjálfum á óvart.
192 blaðsíður.
Úrvalsbækur
Frjáls fjölmiðlun hf.
ISBN 9979-840-27-5
Verð: 895 kr.
KONAN SEM MAN
Linda Lay Shuler
Þýðing: Álfheiður
Kjartansdóttir
Skáldsagan Konan sem
man hefur farið sigurför
um heiminn. Hún hefur
hlotið einróma lof lesenda
og gagnrýnenda og verið
líkt við bækur Jean M. Auel
um stúlkuna Aylu. Sjálf
sagði Auel um Konuna
sem man: Hrífandi og
skemmtileg saga sem ég
gat ekki lagt frá mér. Sagan
gerist í lok 13. aldar í
Ameríku. Kvani er ung
indjánastúlka sem hrakin
er burt frá ættbálki sínum
sökum þess að hún hefur
blá augu og er því talin
norn. Sagan lýsir leit
hennar að nýjum heim-
kynnum, nýrri ást, en óvin-
ir og óblíð náttúra fylgja
henni við hvert fótmál. í
fjarlægu gljúfri gerir hún
síðan uppgötvun sem
gjörbreytir öllu lífi hennar.
Konan sem man er stór-
kostleg lýsing á heimi
frumbyggja Ameríku fyrr á
öidum, ástríðum þeirra og
ævintýrum. Á meðan beð-
ið er eftir nýrri bók frá Jean
M. Auel er þessi bók til-
valin lesning.
429 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0321-8
Verð: 2.990 kr.
SUSANNATA.lA.70
“HO-T VILH; A^HSSOM
ÍS.ENbKAOI
LÁT HJARTAÐ
RÁÐAFÖR
Susanna Tamaro
Þýðing: Thor
Vilhjálmsson
Þessi bók kom fyrst út í
heimalandi höfundar, ítal-
íu, fyrir 18 mánuðum og
hefur selst þar í 2 millj-
ónum eintaka. Og hefur nú
komið út á 20 tungumálum
og hvarvetna hlotið frá-
bærar viðtökur.
Amman er dauðvona og
skrifar bréf til ungrar
dótturdóttur sinnar í Amer-
íku. Hún rifjar upp liðinn
tíma - og leyndarmálin
streyma fram. Segir frá
harmsögu dóttur sinnar,
móður stúlkunnar, for-
eldrahúsum, hjónabandi,
skrifar um djúpar tilfinn-
ingar, sorg og gleði.
Lát hjartad ráda för er
saga konu sem lifað hefur
langan dag og óskar
barnabarni sínu þeirra
heilla, að hjartað megi
ráða för - áður en það er
um seinan.
Thor Vilhjálmsson hefur
þýtt bókina af þeirri snilld
og orðgnótt sem lesendur
hans þekkja frá verkum
hans.
160 blaðsíður.
Setberg
ISBN 9979-52-138-4
Verð: 1.980 kr.
LEIKSOPPUR
ÖRLAGANNA
Victoria Holt
Þýðing: Þórey
Friðbjörnsdóttir
Victoria Holt, sem kölluð
hefur verið drottning ástar-
sagnanna, bregst ekki
aðdáendum sínum frekar
en fyrri daginn í þessari
spennandi og rómantísku
sögu þar sem atburðarásin
heldur lesandanum föngn-
um frá upphafi til enda.
Súsanna Pleydell gerist
hjúkrunarkona í Krímstríð-
inu og kemst þar að því
hver það er sem á hug
hennar allan en sá maður
er ekki allur þar sem hann
er séður.
365 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0302-1
Verð: 1.990 kr.
32
j